Morgunn


Morgunn - 01.12.1945, Page 74

Morgunn - 01.12.1945, Page 74
152 M 0 R G U N N óskemmdan enn í dag, hefði raunverulega framleitt þær háleitu hugsanir, sem forsetinn á lotningu vora og þakklæti fyrir? Ef svo er, að það sé þessi heili, sem framleiddi þær hugsanir, hvers vegna starfar hann þá ekki enn? Það er vegna þess, að hann er ekki lifandi lengur, er oss svarað. Og hversvegna er hann ekki lifandi lengur? Það er vegna þess, að sálin, sem hugsanirnar skóp og notaði heilann aðeins sem tæki til þess að koma hugsununum á framfæri í efnisheiminum, er ekki hér lengur, notar þenna heila ekki lengur, hún er farin. Ekki „dáin“, heldur farin „ meira að starfa Guðs um geim“, þótt jarðneska heilann noti hún okki lengur. Heilinn, sem í glasinu er geymdur skóp enga hugsun, hann var aðeins miðillinn milli sálarinnar, sem notaði hann, og efnisheimsins, sem hún lifði í um stund. Ca'mso Allií kannast við söngvarann heimsfræga, Caruso. Raddbönd hans eru sögð geymd í safni einu fyrir vestan haf, en nú eru þau hljóðnuð, engmn þeirra dásamlegu tóna, sem fyrir fáum árum fylltu hljóm- leikasali stórborganna, berast frá þeim lengur. Sálin, sem notaði þau um stutta stund, notar þau ekki lengur, og því liggja þau í glasinu, sem geymir þau, eins og slitið fat, eða minjagripur u.m horfna dýrð og daga, sem voru dýrð- legir. Sálin, sem notaði þessi raddbönd, eins og fiðlusnill- ingurinn strengina, er farin. Nú á hún sér annað heim- kynni með list sína, tónar hennar fylla nú aðra sali. Og þó er hún ekki fjarlæg með ö!lu. Ef skilyrðin eru fyrir hendi, getur hún ennþá náð inn í jarðneska heiminn með tónahaf, sem töfrar enn, eins og það gerði. Sálarrann- sóknamaðurinn og rithöfundurinn Dennis Bradley, sem fyrir nokkurum áium er farinn af þessum heimi, segir frá því í annarri sinna merku bóka um sálarrannsóknir og einkum um tilraunir sínar með hinn fræga, ameríska miðil, Valiantine, hvernig Caruso söng af vörum miðilsins, svo að þeir, sem viðstaddir voru, hlustuðu undrandi og hugfangnir. Raddbönd hins mikla meistara sönglistarinnar

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.