Fréttablaðið - 13.11.2010, Qupperneq 4
4 13. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
22°
14°
13°
10°
14°
16°
10°
10°
21°
11°
20°
17°
25°
1°
14°
19°
5°Á MORGUN
Hægur vindur,
síst við A-ströndina.
MÁNUDAGUR
Vaxandi SA-átt
einkum SV-til.
-1
-3
-5
-3
-4
-3
0
3
2
4
-10
12
12
9
10
8
11
10
12
5
10
8
-4
-7 -9
-8
-3 2
0 -4
-2
3
KALT Í VEÐRI
Kuldaboli bítur vel í
kinnar þessa helg-
ina og horfur eru
á frosti nánast um
allt land, einkum á
morgun. Það dreg-
ur úr vindi í dag
og á morgun má
búast við hæglæt-
isveðri. Á mánu-
daginn kemur lægð
upp að landinu og
þá hlýnar heldur í
veðri.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
FRAMKVÆMDIR Runólfi Ólafs-
syni, framkvæmdastjóra Félags
íslenskra bifreiðaeigenda, hugn-
ast illa áform um að leggja veg-
tolla á umferð til að fjármagna
framkvæmdir á Reykjanesbraut,
Suðurlands- og Vesturlandsvegi.
„Það hefur verið þjóðarsátt um
gjaldtöku til framkvæmda og hún
hefur farið fram með sköttum á
eldsneyti,“ segir Runólfur. Árlega
séu 35 milljarðar innheimtir með
þeim hætti en aðeins hluti fjárins
renni til vegaframkvæmda.
Þá gagnrýnir hann að í hug-
myndum um gjaldtöku sé ekki
gert ráð fyrir
valleiðum, það
er leiðum sem
ekki þurfi að
greiða fyrir að
aka um. Fólk
muni því ekki
eiga val.
Runólfur
gagnrýnir líka
framkvæmd-
irnar sem ráð-
ast á í. „Í þessu
árferði vil ég frekar að farið
verði í minni viðhaldsverkefni.
Það er hægt, og þarf, að auka
öryggi víða með litlum tilkostn-
aði.“
Hann er líka andvígur tvöföldun
Suðurlandsvegar. „Ég tel réttara
að fara í 2+1 veg. Slíkir vegir eru
öruggari en 2+2 vegir og við sjáum
að sú leið hefur verið valin á fjöl-
förnum vegum víða, til dæmis á
Norðurlöndunum og í Bretlandi.“
Runólfur undrast líka þau áform,
sem heimil eru með lögum frá í
sumar, að stofna sérstakt félag utan
um framkvæmdirnar. „Það stendur
til að stofna Vegagerð ohf. til hliðar
við Vegagerðina. Er þetta leið til að
búa til ný störf?“ spyr hann. - bþs
FÍB hafnar áformum um vegtolla á öllum leiðum til og frá höfuðborgarsvæðinu:
Rof á þjóðarsátt um gjaldtöku
RUNÓLFUR
ÓLAFSSON
DÓMSMÁL Reynt var að sætta ágrein-
ing um meðferð nauðgunarmála í
rannsóknar- og réttarkerfinu á fjöl-
mennum, ríflega þriggja tíma sam-
ráðsfundi sem Ögmundur Jónasson
dómsmálaráðherra boðaði til í ráðu-
neytinu í gær.
Alls voru 37 manns boðaðir á
fundinn, meðal annars frá lögreglu,
ríkissaksókn-
ara, dómstólum,
Stígamótum,
Neyðarmóttöku
vegna nauðgana,
Jafnréttisstofu,
Femínistafélagi
Íslands, Rann-
sóknarstofu
í kvenna- og
kynjafræðum,
Kvennaathvarf-
inu, V-dags-
samtökunum og
öllum þingflokk-
um.
Tilefni fund-
arins var meðal
annars sú ólga
sem skapaðist
eftir ummæli
Björgvins Björg-
vinssonar, yfir-
ma n ns k y n-
ferðisbrotadeildar lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu, og Valtýs
Sigurðssonar ríkissaksóknara um
nauðgunarmál í DV. Björgvin sat
fundinn en ekki Valtýr.
Ögmundur Jónasson segir fund-
inn hafa verið gagnlegan og skoð-
anir manna ekki ýkja skiptar. „Ég
held að kveikjan sé fyrst og fremst
sú staðreynd að það eru ákveðnar
vísbendingar um að fólk sem verð-
ur fyrir kynferðisofbeldi beri ekki
nægilegt traust til kerfisins,“ segir
ráðherrann. „Það er gríðarlegt
misræmi á milli meintra
brota annars vegar og
hins vegar úrlausna í
dómskerfinu. Það eru
alvarlegar brotalamir þar
og þetta er skref sem við
erum að stíga til að finna
þær og laga.“
Hrafnhildur S. Gunn-
arsdóttir, ráðskona Fem-
ínistafélagsins, segir
fundinn hafa verið hinn
fróðlegasta og þátttak-
endur hafi verið sam-
mála um mikilvægi þess
að skoða meðferð nauðg-
unarmála og hvernig
bæta megi ferlið. „Upp
úr umræðunum komu alls kyns til-
lögur um úrbætur, til dæmis að það
væri mikilvægt að halda úti fræðslu
fyrir dómara og aðra sem vinna að
málunum svo að þolendur kynferð-
isafbrota mæti ekki skilningsleysi
eða fordómum. En svo er líka ljóst
að það skortir þekkingu á mála-
flokknum og að það þarf frekari
rannsókna við.“
Daði Kristjánsson,
fulltrúi Ríkissaksókn-
ara, segir fundinn hafa
verið mjög gagnlegan og
málefnalegan. Það hafi
verið mjög gott framtak
hjá ráðherra að boða til
hans. „Ég held að fund-
urinn hafi fært aðila nær
hverja öðrum og dreg-
ið úr ágreiningi og menn
hafi öðlast meiri skilning
á sjónarmiðum hvers ann-
ars,“ segir Daði. „Ég held
að niðurstaðan sé sú að
staðan sé ekki fullkomin
en hún sé viðunandi og að
við séum á réttri leið.“
Ögmundur segir að nú verði þær
ábendingar sem fram komu teknar
saman og unnið frekar úr þeim. „Og
síðan reynt að hrinda í framkvæmd
þeim sem augljóslega eru til góðs,“
segir hann. stigur@frettabladid.is
Reynt að lægja öldur
á fjölmennum fundi
Óánægja með meðferð nauðgunarmála var rædd á tæplega 40 manna fundi í
dómsmálaráðuneytinu í gær. Lögregla, saksóknarar, dómstólar, femínistar og
Stígamót meðal þátttakenda. Almenn ánægja ríkir með andann á fundinum.
Sjö saksóknarar og aðstoðarsaksóknarar hjá embætti Ríkissaksóknara hafa
sent frá sér yfirlýsingu í tilefni af umræðunni um meðferð nauðgunarmála
hjá embættinu.
Segja þeir meðferð naugðunarmála vandaða og í fullu samræmi við
gildandi lög. Þeir segja að þótt spjótin hafi einkum beinst að Valtý sé mesti
þunginn í afgreiðslu nauðgunarmála hjá þeim.
„Um leið og við lýsum því yfir að við erum að sjálfsögðu viljug til að
skoða alla málefnalega og rökstudda gagnrýni á störf okkar í því skyni
að við getum gert betur, þá lýsum við því hér með yfir, með hliðsjón af
ofangreindu, að Valtýr Sigurðsson nýtur fulls trausts okkar í starfi sínu sem
ríkissaksóknari,“ segir í yfirlýsingunni.
Undirmennirnir styðja Valtý
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
HRAFNHILDUR S.
GUNNARSDÓTTIR
Það er gríðar-
legt misræmi
á milli meintra
brota annars
vegar og hins
vegar úrlausna
í dómskerfinu.
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
DÓMSMÁLA-
RÁÐHERRA
KAJRAMÁL Kostnaður við rekst-
ur landsliðs knattspyrnufélags
kvenna, sem er í kringum 10.
sæti yfir þau bestu í heimi, er
rúmlega helmingi minni en við
rekstur A-landsliðs karla árið
2010. Viðskiptablaðið greindi frá
þessu nýverið.
Heildarkostnaður við landslið-
in innan Knattspyrnusambands
Íslands (KSÍ) er um 250 milljón-
ir króna. Rúm 40 prósent af þeim
kostnaði fara í rekstur A-lands-
liðs karla, eða um 105 milljónir
króna. - sv
Rekstrarkostnaður landsliða:
Kvennalandslið
KSÍ fær minna
STJÓRNMÁL Alls eru 34 prósent
landsmanna enn óákveðin um
þátttöku í kosningunum til stjórn-
lagaþings sem fram fara 27. nóv-
ember næstkomandi samkvæmt
könnun MMR. Tæp 55 prósent
hyggjast taka þátt en rúm 11 pró-
sent ekki.
Þá sögðust 57,4 prósent þeirra
sem afstöðu tóku enn ekki hafa
kynnt sér neinn þeirra sem í fram-
boði eru til stjórnlagaþingsins.
Könnunin var gerð dagana 3. til
5. nóvember og svöruðu 813 ein-
staklingar á aldrinum 18 til 67 ára
spurningum um kosningarnar. - mþl
Stjórnlagaþingskosningar:
Margir óvissir
um þátttöku
MENNINGARMÁL Skipulagsráð
Reykjavíkur hefur samþykkt að
breyta deiliskipulagi og setja
kvöð á lóðirnar Mjóstræti 4 og
Garðastræti 15 til að tryggja
umferð um svokallaðan Skálda-
stíg sem liggur að hinu sögu-
fræga Unuhúsi.
Eigendur lóðanna hafa um
langt árabil leyft umferð um stíg-
inn en leitað samvinnu við borg-
aryfirvöld um framtíð hans.
„Einnig er lagt til að stígurinn
verði merktur báðum megin frá,
til dæmis með skiltum þannig að
sagan glatist ekki,“ segir í tillögu
sem samþykkt var. - gar
Ákvörðun í skipulagsráði:
Skáldastígur
verði verndaður
SKÁLDASTÍGUR „Um þetta dimma sund;
þar lá mín leið,“ orti Halldór Laxness um
Skáldastíg. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KOSOVO, AP Upp hefur komist um
alþjóðleg glæpasamtök í Kos-
ovó sem hafa stundað það að lofa
fátækum Kosovóbúum peningum
fyrir nýru úr sér. Fórnarlömbin
fengu aldrei neitt fyrir líffærin
sem voru seld fyrir jafnvirði tæp-
lega 16 milljóna íslenskra króna.
Sameinuðu þjóðirnar og ESB
hafa veitt yfirvöldum í Kosovó
stuðning við að halda uppi lögum
og reglu frá því landið fékk sjálf-
stæði. Ákæra yfir meintum líf-
færasvikurum er runnin undan
rifjum starfsmanna ESB. - mþl
Glæpasamtök í Kosovó:
Sviku líffæri út
úr fátæku fólki
SJÁVARÚTVEGSMÁL Engin niður-
staða náðist um stjórn makrílveiða
á næsta ári á fundi strandríkja í
Lundúnum í gær. Gera á úrslita-
tilraun til að ná
samkomulagi í
Ósló 25. til 26.
nóvember.
„Við höfð-
um vænst þess
að Evrópusam-
bandið og Nor-
egur legðu fram
raunhæfari til-
lögur á þessum
fundi en á þeim síðasta, sem tækju
mið af stóraukinni göngu makríls
í íslensku lögsöguna á undanförn-
um árum,“ segir Tómas H. Heiðar,
formaður íslensku samninganefnd-
arinnar. „Slíkar tillögur litu hins
vegar ekki dagsins ljós á fundinum
og því ber enn mikið í milli.“
Á síðasta fundi var lagt til að
hlutdeild Íslands í veiðunum yrði
3,1 prósent en Íslendingar höfnuðu
tillögunni sem algjörlega óraun-
hæfri. - sh
Úrslitatilraun í lok mánaðar:
Engin lending
um makrílinn
TÓMAS H. HEIÐAR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
GENGIÐ 12.11.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
205,0163
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
111,65 112,19
179,29 180,17
153,00 153,86
20,524 20,644
18,835 18,945
16,359 16,455
1,3592 1,3672
174,43 175,47
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR