Fréttablaðið - 13.11.2010, Síða 6
6 13. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
Ellefu vikna árangurmælt námskeið Kvíðameðferðarstöð-
varinnar þar sem kenndar eru leiðir til að draga úr kvíða
og óöryggi í félagslegum aðstæðum og í samskiptum
með aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar.
Kennsludagar: Fimmtudagar frá 15:00-17:00, alls 22 klst.
Kennarar: Sálfræðingar Kvíðameðferðarstöðvarinnar
Næsta námskeið hefst fimmtudaginn 25. nóvember 2010
Skráning og fyrirspurnir í síma 534-0110 eða kms@kms.is
Nánari upplýsingar: www.kms.is
Öryggi í samskiptum
-námskeið við félagsfælni
steinn úr djúpinu
Steinn Kárason og gestir
Páll Rósinkrans, Haukur Hauksson, Íris Guðmundsdóttir,
Guðmundur F Benediktsson, Hreindís Ylva Holm
Söluaðilar:
BRETLAND Lítill kínverskur post-
ulínsvasi frá 18. öld var sleginn
nýjum eiganda fyrir 43 milljónir
punda á miðvikudag, eða 7,8 millj-
arða íslenskra króna. Um heims-
met er að ræða fyrir kínverskan
forngrip af þessu tagi. Kaupandi
vasans er óþekktur.
„Eigendurnir höfðu ekki hug-
mynd um að vasinn væri einhvers
virði“, er haft eftir Helen Porter,
forsvarsmanni Bainbridge upp-
boðsfyrirtækisins, sem fær 1,5
milljarða króna að auki fyrir sína
aðkomu að málinu.
Vasinn, sem er fjörutíu senti-
metrar á hæð, fannst í heimahúsi
í norðurhluta Lundúnaborgar
þegar eigendurnir, systkini
sem ekki vilja láta nafns síns
getið, voru að ganga frá eigum
foreldra sinna, en þau erfðu
vasann ásamt öðrum eigum
þeirra.
Söluverðið var tölu-
vert yfir mati uppboðs-
fyrirtækisins. Vonir stóðu
til þess að salan myndi
skila 160 til 200 milljón-
um króna.
Ekkert er vitað um hvern-
ig vasinn endaði á háalofti
verkamannafjölskyldu í Bretlandi,
en talið er að hann hafi verið
fluttur frá Kína um 1860.
Vasanum er lýst sem ein-
stöku meistaraverki sem beri
handverksmanni sínum fag-
urt vitni. Vasinn er frá tíma
keisarans Qianlong en
hann ríkti í Kína á árun-
um 1735 til 1796. - shá
Kínverskur postulínsvasi fannst á háalofti og reyndist drjúg búbót:
Vasi sleginn á átta milljarða
MILLJARÐA VIRÐI Upphafs-
boð var 500 þúsund pund en
vasinn var sleginn á 43 milljónir
punda eftir hálftíma „slagsmál“
um dýrgripinn.
KÖNNUN Um þriðjungur þeirra sem
afstöðu tóku í könnun telja utan-
þingsstjórn ákjósanlegasta ríkis-
stjórnarkostinn miðað við núver-
andi kringumstæður. Aðeins rúmur
fimmtungur telur sitjandi ríkis-
stjórn besta kostinn.
Alls sögðust 33,7 prósent þeirra
sem þátt tóku í könnun MMR
vilja utanþingsstjórn, en 21,7 pró-
sent núverandi ríkisstjórn áfram.
Svipaður fjöldi, 21,1 prósent, vill
samstjórn allra flokka sem eru á
Alþingi.
Alls sögðust 16,0 prósent vilja
nýja ríkisstjórn undir forystu ann-
arra flokka en þeirra sem nú sitja í
stjórn. Þá sögðust 7,5 prósent vilja
að fleiri flokkar komi að núverandi
stjórnarsamstarfi.
Í tilkynningu frá MMR er bent
á að samtals 50,3 prósent þeirra
sem afstöðu tóku vilji að núver-
andi stjórnarflokkar komi áfram
að stjórn landsins með einhverjum
hætti.
Könnunin var gerð dagana 3. til 5.
nóvember. Svarendur voru á aldrin-
um 18 til 67 ára, valdir af handahófi.
Alls svöruðu 813 könnuninni, þar af
tóku 82 prósent afstöðu til spurning-
arinnar. - bj
Aðeins fimmtungur vill að ríkisstjórnin starfi áfram óbreytt samkvæmt könnun:
Um þriðjungur vill utanþingsstjórn
LÖGREGLUMÁL „Það er ólýsanlegt
þrekvirki að ná hrossunum út
úr brennandi hesthúsinu,“ segir
Þorlákur Sveinsson, sonur Sveins
Inga Grímssonar sem átti hest-
húsið í Mosfellsbæ sem varð eldi
að bráð í fyrrakvöld.
Í húsinu voru þrír vel ættað-
ir stóðhestar, tveir reiðhestar, 1.
verðlauna hryssa og tvö folöld.
Ljóst er að mikil verðmæti voru
í hrossunum sem tókst með snar-
ræði að bjarga á síðustu stundu.
Þrír menn komu að björgun-
inni, Gunnar Valsson, kunningi
eiganda hesthússins, og tveir
lögreglumenn. Þegar þeir komu
að hesthúsinu um ellefu leyt-
ið í fyrrakvöld var húsið læst,
þannig að þeir urðu að brjótast
inn í það.
„Inni var mikill reykur,
svartamyrkur og eldur logandi
í vegg milli hesthúsanna,“ lýsir
Gunnar aðkomunni. „Hrossin
voru prjónandi inni og reyndu að
komast út úr stíunum. Um leið og
við vorum búnir að koma þeim
út í gerði gaus eldurinn upp. Allt
gerðist þetta hratt. Það var eins
við hefðum átt að vera þarna
nákvæmlega á þessum tíma. Þetta
gekk eins og í lygasögu.“
Gunnar vissi ekki af folöldun-
um í hlöðunni, en kveðst hafa
kallað til lögreglumannanna og
beðið þá um að kíkja inn í hana.
Þá hefði komið í ljós að tvö folöld
hefðu verið þar í stíu. Lögreglu-
mennirnir gengu í að bjarga þeim
út.
Gunnar hrósar mönnunum
mjög fyrir framgöngu þeirra við
að bjarga hrossunum úr eldinum.
„Þeir voru algjörir snillingar
þessir lögreglumenn,“ segir
hann.
Svo mikill var reykurinn að
mennirnir þrír urðu að þreifa eftir
klinkunum til að geta opnað stíurn-
ar. Eldur snarkaði í gólfi kaffistofu
fyrir ofan þá.
„Svo þurftum við að slá hrossin
niður því þau prjónuðu alltaf upp
á milligerðin,“ útskýrir Gunnar og
segir mennina varla hafa greint
hver annan í mekkinum.
Þegar hrossunum hafði verið
komið út fóru Gunnar og lögreglu-
mennirnir inn í öll hús í lengjunni
til að athuga hvort hross væru í
fleiri húsum. Svo reyndist ekki
vera.
Mennirnir þrír fóru á slysadeild
að björgunarafrekinu loknu. Gunn-
ar kveðst hafa fengið reykeitrun,
en sé orðinn góður. „En það var
fyrst á slysadeildinni sem við sáum
hver framan í annan,“ segir hann
og er ánægður með björgunarstörf-
in. jss@frettabladid.is
Þrekvirki að bjarga
hrossum úr eldinum
„Ólýsanlegt þrekvirki,“ segir sonur eiganda hesthúss um framgöngu þriggja
manna sem björguðu átta hrossum úr eldi í fyrrakvöld. Mennirnir þurftu að
þreifa sig áfram inni í logandi hesthúsinu og enduðu kvöldið á slysadeildinni.
BRRENNANDI HESTHÚSIÐ Þrír menn börðust við að bjarga hrossunum í reykmekki
og myrkri. Þegar búið var að koma þeim út í gerði gaus eldurinn upp af miklum
krafti og húsið varð alelda á svipstundu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANIEL
LÖGREGLUMÁL Brotist var inn í
ljósmyndabúðina Pedromyndir á
Akureyri í gærmorgun. Þjófarnir
höfðu á brott með sér fjölda Canon
Eos myndavéla og skiptimynt upp
á 40 þúsund úr búðarkassanum.
Þórhallur Jónsson, eigandi
Pedromynda, segir þjófana hafa
spennt upp hurðina baka til og
komist þannig inn í verslunina.
Engar öryggismyndavélar eru á
staðnum og ekkert þjófavarnar-
kerfi, en Þórhallur segir þó að því
verði breytt hið snarasta. Tjónið er
um 5 milljónir króna. - sv
Innbrot á Akureyri:
Milljóna tjón
í ljósmyndabúð
Ákjósanlegasti ríkisstjórnarkosturinn
21,7%
Núverandi ríkisstjórn
7,5%
Fleiri flokkar komi að
sitjandi ríkisstjórn
16,0%
Ný ríkisstjórn undir
forystu annarra flokka
en nú sitja í ríkisstjórn
33,7%
Utanþingsstjórn
21,1%
Samstjórn allra
flokka á Alþingi
Hver af eftirfarandi möguleik-
um telur þú að sé ákjósanleg-
asti ríkisstjórnarkosturinn
miðað við núverandi
kringumstæður?
Heimild: MMR
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði
á 120 stöðum um land allt.
Nánari upplýsingar á
visir.is/dreifing
Hugnast þér vegatollar á þjóð-
vegum að höfuðborgarsvæðinu?
Já 24%
Nei 76%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Var rétt ákvörðun að hætta við
að reisa samgöngumiðstöð í
Vatnsmýrinni?
Segðu skoðun þína á visir.is.
KJÖRKASSINN