Fréttablaðið - 13.11.2010, Qupperneq 12
13. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
Feðradagurinn er haldinn hátíðlegur
annan sunnudag í nóvember á hverju
ári, nákvæmlega hálfu ári á eftir
mæðradeginum.
Veltu fyrir þér ábyrgð, siðgæði,
uppeldi og fyrirmyndum. Hugsaðu
um réttindi barna til föður síns og
skyldur föðurins gagnvart börnunum.
Allar götur síðan 1910 hefur feðra-
dagurinn verið haldinn hátíðlegur,
fyrst í Bandaríkjunum, þar sem hann varð viður-
kenndur hátíðardagur árið 1972. Svíar héldu
daginn hátíðlegan frá 1931 og Danir frá 1935.
Gerðu pabba þínum dagamun og helltu upp á
hressandi BKI kaffi. Fáðu þér ilmandi bolla af
BKI kaffi og fagnaðu feðradeginum á Íslandi.
Njóttu dagsins. Gríptu tækifærið, fáðu þér BKI kaffi.
Angan af
kaffi kemur
bragðlauk-
unum af stað
og ilmurinn
segir til um
ríkt bragðið
af BKI kaffi.
Helltu upp
á gott BKI
kaffi.
BKI Classic
Feðradagurinn er á morgun!
Fagnaðu
feðradeginum
með BKI kaffi
Feðradagurinn er á morgun
Kauptu BKI
fyrir feðradaginn
Sérvaldar baunir frá
þekktustu kaffisvæðum
heimsins tryggja hið
mjúka bragð, lokkandi
ilminn og fersklegt
eftirbragðið.
BKI Extra
Snöggristað við háan hita.
Þannig næst fram ríkara
kaffibragð við fyrsta sopa
en léttur og mjúkur keimur
fylgir á eftir. Kíktu á bki.is
Kauptu gott kaff
i í dag
á góðu verði
Einnig til 250 gr á
ennþá betra ver
ði
á meðan birgðir
endast
„Ég er nokkuð viss um að íslensk
stjórnvöld hafi vitað af þessu,“
segir Luis E. Arreaga, sendi-
herra Bandaríkjanna á Íslandi,
þegar hann er spurður hvort
íslensk stjórnvöld hafi verið upp-
lýst um allar þær ráðstafanir sem
bandaríska sendiráðið hefur gert
í öryggismálum, meðal annars
hið umdeilda eftirlit með nánasta
nágrenni sendiráðsins.
„Eðlilega get ég ekki farið út í
smáatriði, en við höfum alltaf rætt
þessi mál við íslensk stjórnvöld,“
segir hann. „Hins vegar gerist það
oft, þegar rætt er við fólk í ein-
hverjum hluta stjórnsýslunnar, að
þá veit annar hluti stjórnsýslunn-
ar kannski ekki af því. Ég held að
við þurfum núna að taka tíma í að
ræða þetta tiltekna mál nánar.“
Sendiráð Bandaríkjanna við
Laufásveg hefur á liðnum árum
sætt gagnrýni fyrir öryggisráð-
stafanir, sem hafa þótt fyrirferð-
armiklar og valdið nágrönnum
sendiráðsins óþægindum. Til að
mynda hafa nágrannar krafist
þess að hindranir á gangstétt og
götu fyrir framan sendiráðið verði
fjarlægðar.
„Við erum sjálf ekkert ánægð
með þessari hindranir heldur. Ef
við ættum val þá myndum við
ekki hafa neinar hindranir og
enga öryggisverði. Því miður hafa
aðstæður undanfarna áratugi gert
okkur nauðbeygð til að taka örygg-
ismálin alvarlega. Ég veit að stund-
um mistúlkar fólk það sem við
gerum og telur það fjandsamlegt,
en allt slíkt er fjarri okkur. Við
reynum eins og við getum að lág-
marka allt rask fyrir nágrennið.“
Til greina kemur að flytja
Hann segir að til greina hafi komið
að flytja sendiráðið í hentugra hús-
næði til þess að valda nágrönnum
ekki ónæði. „Þetta er eitt af því
sem alltaf kemur til álita.“
Nýlega bárust fréttir af því
að sendiráð Bandaríkjanna hafi
haft samband við lögreglu þegar
maður stóð beint fyrir framan
dyr sendiráðsins með skilti, sem á
stóð „Friður“. Lögregla fjarlægði
manninn af vettvangi.
„Auðvitað höfum við ekkert á
móti því að fólk segi hug sinn. Það
segir sig sjálft. Við reynum hins
vegar að tryggja að fólk sem kemur
í sendiráðið eða fer frá sendiráð-
inu geti gert það án þess að telja
sér ógnað á neinn hátt eða telji sér
ekki óhætt að koma í sendiráðið.
Ef þessi einstaklingur hefur verið
fjarlægður þá hefur það nákvæm-
lega ekkert með skoðanir hans að
gera.“
Hann segist ekki líta svo á að
vægi samskipta Íslands og Banda-
ríkjanna hafi minnkað eftir að
bandaríska herliðið hér á landi var
kallað heim. Samstarf um nýtingu
jarðhita skipti bæði löndin miklu
máli og meira að segja telur hann
samstarf í öryggismálum enn vera
mikilvægt.
„Í öryggismálum hafa aðstæður
allar breyst mjög. Kalda stríðinu
er lokið og það sem krafðist nær-
veru okkar hér er ekki lengur fyrir
hendi. Það þýðir ekki að öryggis-
mál séu ekki partur af samstarfi
okkar heldur eru þau einn helsti
kjarninn i þeim.“
Samstarfið í öryggismálum
snýst nú um netöryggi, alþjóðlega
glæpastarfsemi, peningaþvætti og
annað sem lítil áhersla var áður
lögð á. „Við tökum líka tvíhliða
varnarsamning okkar við Ísland
enn mjög alvarlega. Hann hefur
verið í gildi í áratugum saman og
er enn í fullu gildi.“
Athyglin hefur í auknum mæli
beinst að norðurslóðum og opnun
siglingaleiða yfir Norðurskautið.
„Þarna opnast nýir samstarfs-
möguleikar landanna á mjög víð-
tæku sviði. Stefna Bandaríkja-
stjórnar er í þessum efnum mjög
svipuð stefnu Íslands. Við sjáum
að bráðnun hafíss opnar mögu-
leika fyrir skipaferðir og aðgang
að náttúruauðlindum. Mikilvægast
er að vinna náið með öðrum lönd-
um, sérstaklega Íslandi og öðrum
löndum sem eiga hagsmuna að
gæta á svæðinu, og tryggja að allt
sem við gerum, til dæmis í sam-
bandi við náttúruauðlindir, sé gert
af fullri ábyrgð.“
Arreaga er hagfræðimenntað-
ur og fylgist af áhuga með þróun
mála eftir efnahagshrunið hér á
landi fyrir tveimur árum.
„Það sem gerðist hér og það sem
gerðist í Bandaríkjunum er að
mörgu leyti líkt. Við lentum líka í
fjármálahruni. Bandaríkjastjórn
þurfti að grípa inn í til að koma
í veg fyrir algjört hrun banka-
kerfisins. Við erum enn að tak-
ast á við afleiðingarnar. Það hafa
verið sett lög og þið eruð að gera
nákvæmlega það sama. Þið eruð
að gera umbætur á bankakerfinu
og íslenska þjóðin hefur þurft að
færa fórnir.“
Íslensk stjórnvöld
upplýst um eftirlit
FRÉTTAVIÐTAL: Luis E. Arreaga, sendiherra Bandaríkjanna
Guðsteinn
Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is
Luis E. Arreaga, nýr
sendiherra Bandaríkj-
anna á Íslandi, segir
íslensk stjórnvöld jafn-
an hafa verið upplýst
um öryggisráðstafanir
sendiráðsins. Hann segir
margt líkt með fjármála-
hruninu hér og vestra.
Luiz E. Arriega er fæddur og uppalinn í Gvatemala. Faðir hans vann á bíla-
sölu og móðir hans var grunnskólakennari. Hann flutti átján ára til Banda-
ríkjanna, fyrst sem skiptinemi og fór að læra hagfræði, en ílentist eins og
margir.
„Ég varð svo heillaður af Bandaríkjunum. Ef maður lætur sig dreyma um
eitthvað þá er hægt að láta þá drauma rætast í Bandaríkjunum,“ segir hann.
Hann gekk ungur til liðs við utanríkisþjónustuna og hefur starfað víða um
heim, meðal annars í El Salvador þegar þar ríkti borgarastyrjöld og í Perú
þegar skæruliðasamtökin Skínandi stígur og Tupac Amaro létu hvað mest til
sín taka þar með bílsprengjum, mannránum og morðum.
Hann starfaði í Genf þegar fjöldamorðin í Rúanda voru framin og fékk
það hlutverk að samhæfa viðbrögðin, og heimsótti þá bæði Rúanda og
nágrannalöndin Búrúndí, Tansaníu og Saír, sem nú heitir Lýðræðislega
lýðveldið Kongó.
„Þetta voru erfiðir tímar, en um leið mjög gefandi, því mér tókst að leggja
mitt af mörkum til að útvega fólki í mikilli neyð aðstoð.“
Hann hefur ekki gegnt sendiherrastöðu fyrr, en hyggst gera sér far um að
kynnast íslensku þjóðinni, meðal annars með því að læra tungumálið eins
vel og kostur er.
Innflytjandi í Bandaríkjunum
LUIS E. ARREAGA Tók við sendiherrastöðu Bandaríkjanna á Íslandi síðastliðið vor.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON