Fréttablaðið - 13.11.2010, Page 18
18 13. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
Eftir bankahrunið hefur fjöldi fólks misst heimili sín eða er
við það að missa þau vegna óyfir-
stíganlegrar greiðslubyrði sem fall
krónunnar og aukin verðbólga hafa
orsakað. Þörfin fyrir leigumarkað
hefur því aukist til muna og í mörg-
um tilfellum er ekki hægt að vænta
þess að fólk ráði við að greiða mark-
aðsverð á húsaleigu.
Leigumarkaðurinn á Íslandi er að
mörgu leyti vanþróaður og óskipu-
lagður og ekki er hugað nógu vel að
málefnum leigjenda, enda er hlut-
fall þeirra sem eiga eigið húsnæði
mjög hátt. Víða erlendis, t.d. í Dan-
mörku, er málum öðruvísi háttað og
margir kjósa að leigja allt sitt líf í
stað þess að fjárfesta í fasteign.
Almennar leiguíbúðir (Almene
boliger) í Danmörku eru nokkurs
konar félagslegar leiguíbúðir í eigu
leigufélaga eða leigufyrirtækja.
Byggingarkostnaður við þær er
fjármagnaður með styrk frá sveit-
arfélögunum (14%), í gegnum íbúða-
lánasjóði (84%) og af tryggingarfé
frá leigjendum (2%). Sveitarfélögin
ábyrgjast íbúðalán umfram 65% og
fá á móti ráðstöfunarrétt yfir 25%
af íbúðunum til félagslegs húsnæð-
is.
Í öllum sveitarfélögum í Dan-
mörku eru almennar íbúðir ætl-
aðar öllum, en sérstaklega þeim
sem ekki ráða við að greiða mark-
aðsleigu. Húsaleigan skal einungis
fjármagna afborganir lána og við-
haldskostnað leiguhúsnæðisins. Það
þýðir að ekkert félag eða fyrirtæki
má hagnast á útleigu íbúðanna. Þar
ríkir íbúalýðræði, sem þýðir að íbú-
arnir ákveða sjálfir hvaða viðhald
eða betrumbætur skal farið í hverju
sinni. Húsaleiga hækkar því einung-
is í takt við það.
Almenna leigukerfið hefur það
markmið að tryggja framboð af
húsnæði fyrir fólk í mismunandi
tekjuhópum á viðráðanlegu leigu-
verði. Kerfið gefur líka lágtekju-
fólki möguleika á að setjast að á
svæðum þar sem mikil eftirspurn
er eftir húsnæði. Því má segja að
almenna leigukerfið sé hornsteinn
í lausn á félagslegum hús-
næðisvanda dansks sam-
félags. Það er þó aðeins
lausn ef íbúarnir eru
blanda af efnalitlum og
efnasterkum fjölskyld-
um.
Þegar flutt er í almenna
leiguíbúð greiðist trygg-
ing sem samsvarar 3 mán-
aða húsaleigu. Hafi leigj-
andi ekki efni á henni er
hægt að fá lán hjá sveit-
arfélaginu sem þarf fyrst
að greiða af eftir 5 ár, ef
tekjur eru undir ákveðnu
viðmiði. Mjög misjafnt er
hve langur biðlisti er eftir húsnæði
en hægt er að skrá sig á biðlista frá
15 ára aldri. Einungis er hægt að
rifta leigusamningi ef um vanefnd-
ir á samningi með ákveðnum hætti
er að ræða, til dæmis síendurtekið
ónæði, skemmdir á húsnæðinu eða
vanskil á leigu.
Samkvæmt húsaleigulögum á
Íslandi er aðilum frjálst að semja
um upphæð leigunnar og því er
í raun ekkert þak á upphæðinni.
Algengt er að samið sé um að leiga
breytist í takt við vísitöluhækkan-
ir. Húsaleiga er í mörg-
um tilfellum svo há að
ákveðnir hópar í sam-
félaginu ráða ekki leng-
ur við að greiða hana og
oft ekki í neinu samræmi
við uppfærslukostn-
að, viðhald og ávöxtun
eignarinnar. Sjá má að
þrátt fyrir umtalsverða
aukningu leiguhúsnæðis
frá bankahruninu helst
leiguverð ennþá mjög
hátt. Leiguverð á Íslandi
þarfnast einfaldlega
aðhalds.
Í Danmörku er sér-
stök nefnd sem metur hvað geti
talist eðlilegt og sanngjarnt húsa-
leiguverð, þar sem ekkert félag eða
fyrirtæki má hagnast á útleigunni.
Með þessu er spornað við óeðlilega
hárri húsaleigu. Nefndin getur
úrskurðað að leigusali skuli lækka
leigu og endurgreiða ofgreidda
leigu ef það á við. Með þessu er
gripið fyrir hendur markaðarins,
en ástandið í íslensku samfélagi er
þannig að það er nauðsynlegt.
Almenn niðurfærsla lána er of
kostnaðarsöm og leysir ekki vanda
þeirra verst stöddu. Lagt hefur
verið til að Íbúðalánasjóður megi
selja yfirteknar íbúðir á kaupleigu
til 3 ára. Eftir 3 ár býðst leigjanda
að kaupa íbúðina og leiga síðustu
þriggja ára gengur upp í kaupverð-
ið. Hugmyndin er ekki slæm, en hér
er ekki gert ráð fyrir því að leigu-
verði sé stillt í hóf. Ef fólk vill ekki
eða ræður ekki við að kaupa hús-
næðið eftir 3 ár er frumvarpið ein-
ungis skammtímalausn á húsnæðis-
vanda þeirra verst stöddu.
Almenna leigukerfið í Dan-
mörku gæti hins vegar verið betri
lausn fyrir ríkið til að ráða fram úr
vanda skuldsettra heimila, svo ekki
sé talað um Íbúðalánasjóðs. Þannig
gæti ríkið yfirtekið fjölbýlishús og
breytt þeim í almennar íbúðir á við-
ráðanlegu leiguverði. Á þann hátt
væri verið að skapa öryggisnet
fyrir fjölskyldur sem ekki ráða við
skuldbindingar sínar og eru búnar
að missa heimili sín eða eru á barmi
þess.
Leigumark-
aðurinn á
Íslandi er að
mörgu leyti
vanþróaður
og óskipu-
lagður
Mennta- og menningarmálaráð-herra hefur í þremur greinum
í Fréttablaðinu kynnt nýja stefnu í
háskólamálum og í frumvarpi til
fjárlaga, þar sem frekari niður-
skurður í fjármögnun háskóla er
boðaður ásamt breytingum á reikni-
líkani sem notað er til að skipta fjár-
veitingum milli háskólanna, kemur
einnig fram ákveðin stefna. Af
sumu sem hefur verið ritað í kjöl-
farið mætti ætla að nú eigi að flytja
fé í stórum stíl úr „hörðum“ grein-
um yfir í „mjúkar“ og að þetta muni
draga úr samkeppnishæfni þjóðar-
innar og valda samfélaginu varan-
legu tjóni.
Kennsluframlög til háskólanna
eru reiknuð út miðað við áætlað-
an fjölda nemenda á fræðasviðum
háskólanna og hvað hver nemandi er
talinn kosta á einu ári að meðaltali.
Nú er augljóslega misdýrt að mennta
nemendur eftir því í hvaða námi þeir
eru og þeir eru því flokkaði í mis-
háa reikniflokka. Þannig er ódýrara
að halda úti námi sem byggist nær
eingöngu á fyrirlestrum sem marg-
ir nemendur geta sótt í einu en námi
sem byggist á verkefnavinnu, þjálf-
un á rannsóknastofu eða vettvangi
eða námi sem mjög fáir nemendur
stunda, að ekki sé talað um listnám
sem fer jafnvel fram í einkatímum.
Tækjakostur og aðbúnaður er auð-
vitað misdýr en munur á kostnaði
skýrist að miklu leyti af eðli kennsl-
unnar og hópastærð. Tannlæknanám
er í dýrasta reikniflokki vegna þess
að þar eru einungis teknir inn örfáir
nemendur á hverju ári.
Nám í hugvísindum og félagsvís-
indum er metið langódýrast og það
hefur lengi verið vitað að lægsti
reikniflokkurinn er of lágur. Hann
virkar þar sem hægt er að kenna
í stórum hópum en nám á þessum
sviðum fer alls ekki allt þannig fram.
Vandamálið hefur verið sérstaklega
áberandi í hugvísindum þar sem eru
margar mikilvægar námsgreinar
með fáum nemendum, sérstaklega í
tungumálum. Kennsluaðferðir hafa
líka þróast á undanförnum árum og
á seinni stigum náms er meira gert
úr verkefnavinnu, málstofum og
öðru sem skilar mun betri árangri
en fyrirlestrar en getur ekki farið
fram í stórum hópum. Reikniflokk-
arnir hafa ekki fylgt þessari þróun
eftir. Af þessum sökum þurftu hug-
vísindin við Háskóla Íslands þegar
árin fyrir hrun að hagræða mjög í
rekstri. Endurskoðun á vægi reikni-
flokka var því nauðsynleg en er von-
andi bara fyrsta skref í stærri end-
urskoðun á reiknilíkaninu þar sem
kennslufyrirkomulag á öllum fræða-
sviðum verður skoðað.
Síðustu daga hefur mikið verið
gert úr breyttum áherslum í háskóla-
málum sem koma fram í leiðréttu
reiknilíkani, þar sem lægsti flokk-
urinn hækkar hlutfallslega (þó hann
lækki í krónutölu) en hærri flokk-
arnir lækka til að mæta mismun-
inum (fyrir utan hjúkrunarfræðina
sem er eini flokkurinn sem hækk-
ar). Kennarar í Raunvísindadeild
Háskóla Íslands mótmæla þessum
breytingum, málið fær talsverða
umfjöllun í utandagskrárumræðu
um háskólamál á Alþingi 18. október
sl. og í nokkrum aðsendum greinum
í Fréttablaðinu hefur breytingunum
verið mótmælt. Mótmælin byggjast á
þeirri skoðun að með þessu sé verið
að grafa undan nýsköpun og þekk-
ingariðnaði í landinu og þar með
draga úr samkeppnishæfni þjóðar-
innar.
Nú er engin ástæða til að efast um
mikilvægi raunvísinda, verkfræði og
tæknigreina en vert að benda á að án
öflugs háskólanáms og rannsókna í
hugvísindum verður samfélagið ekki
bara menningarlega fábreyttara
heldur mun það líka draga úr hæfni
okkar til nýsköpunar og gera hana
fátæklegri. Við þurfum fólk með
góða þekkingu á erlendum tungu-
málum og þjóðum meira en nokkru
sinni fyrr til að styrkja okkur í sam-
félagi þjóðanna sem og þekkingu á
menningu okkar og sögu, m.a. til
að menningartengd ferðaþjónusta
– sem er einn af vaxtasprotunum í
atvinnulífi Íslands – velti sér ekki
upp úr yfirborðsmennsku og tómu
sjálfshóli. Við þurfum umfram allt
fólk sem kann að lesa, túlka og
gagnrýna til að við komumst áfram
á styrkari grunni en við byggðum á
síðastliðin ár. Til að þetta verði þarf
öflugt nám og rannsóknir í hugvís-
indum.
Enn um styrk fræðasviða og mikilvægi hugvísinda
Háskólastarf
Eiríkur Smári
Sigurðarson
rannsóknastjóri á
Hugvísindasviði HÍ
Við þurfum fólk með góða þekkingu á
erlendum tungumálum og þjóðum meira
en nokkru sinni fyrr.
Að leigja eða eiga – jöfnum réttinn
Húsnæðismál
Elín Björg
Jónsdóttir
formaður BSRB
Hilmar
Ögmundsson
hagfræðingur BSRBv
Kosningar til stjórnlagaþings 27. nóvember 2010
Kjörstaðir
Kjörstaðir í Reykjavík við kosningar til stjórnlagaþings 27. nóvember nk. verða sem hér segir:
Reykjavíkurkjördæmi suður: Reykjavíkurkjördæmi norður:
Hagaskóli Ráðhús
Hlíðaskóli Kjarvalsstaðir
Breiðagerðisskóli Laugardalshöll
Ölduselsskóli Íþróttamiðstöðin í Grafarvogi
Íþróttamiðstöðin Austurbergi Borgaskóli
Árbæjarskóli Ingunnarskóli
Ingunnarskóli Klébergsskóli
Kjörfundur hefst laugardaginn 27. nóvember kl. 9.00 árdegis og lýkur kl. 22.00. Sérstök athygli er
vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á því að fá ekki að greiða
atkvæði.
Yfirkjörstjórnir í Reykjavíkurkjördæmum suður og norður munu á kjördag hafa aðsetur í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Á kjördag verður símanúmer yfirkjörstjórnar suður 411 4920 og yfirkjörstjórnar norður
411 4910.
Kjörskrá
Kjörskrá í Reykjavík vegna kosninga til stjórnlagaþings mun liggja frammi í Ráðhúsi Reykjavíkur frá
17. nóvember nk. fram á kjördag. Einnig er hægt að slá inn kennitölu á www.kosning.is og fá upp-
lýsingar um hvar viðkomandi á að kjósa.
Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Athugasemdum vegna
kjörskrár í Reykjavík skal beint til skrifstofu borgarstjórnar, Ráðhúsi Reykjavíkur, sími 411 4700,
netfang kosningar@reykjavik.is. Þar eru jafnframt veittar nánari upplýsingar. Borgarráð úrskurðar um
athugasemdir vegna skráningar í kjörskrá.
Borgarstjórinn í Reykjavík
Yfirkjörstjórnir Reykjavíkurkjördæma norður og suður
AF NETINU
Tvíeggja persónukjör
Til viðbótar við að kjósa forsætisráðherra beinni kosningu, virkja beint lýð-
ræði með aukinni notkun þjóðaratkvæðagreiðslna, semja alhliða borgara-
lega réttindaskrá og lækka kosningaaldurinn í sextán myndi ég vilja skoða
það að viðhafa persónukjör í einhverri mynd í þingkosningum.
Margar útfærslur koma til greina í þeim efnum. En vandinn sem við er
að etja er einkum sá að völd hafa smám saman en jafnt og þétt safnast að
stjórnmálaflokkunum, sér í lagi að fjórflokknum sem öllu ræður í íslenskum
stjórnmálum.
Vísir.is
Eiríkur Bergmann Einarsson
Skuldsetning framtíðarinnar
Það er ólíðandi að hið opinbera geti skuldsett framtíðarkynslóðir án þess
að brýn nauðsyn standi til. Ég held að það sé orðið tímabært að taka til
fullrar skoðunar hvort ekki sé orðið nauðsynlegt að binda hendur fjárveit-
ingarvaldsins í stjórnarskrá. Hugmyndin sem ég hef verið að velta fyrir mér
er hvort ekki sé hægt að koma sér saman um reglu sem kæmi í veg fyrir
óþarfa skuldsetningu án þess að binda hendur fjárveitingarvaldsins um of.
Það væri til að mynda hægt að hugsa sér að skuldsetning yfir ákveðnu hlut-
falli þjóðarframleiðslu yrði einungis heimil ef brýna nauðsyn bæri til í þágu
allsherjarreglu, öryggis ríkisins eða að almannahagsmunir þess krefðust.
Að auki væri hægt að hugsa sér að til þyrfti aukinn meirihluta Alþingis til
samþykktar á skuldsetningu sem færi yfir tiltekið (hærra) hámark þjóðar-
framleiðslu ársins, eða áranna, á undan.
Vísir.is
Vilhjálmur Þ. Á. Vilhjálmsson
Fréttamenn sofa hér og þar
Hafi Jóni Bjarnasyni verið hótað ráðherramissi, á hann að segja það sjálfur.
Einskis virði eru fullyrðingar Ásmundar Daða Einarssonar um það. Hann
sagði einu sinni, að sér hefði verið hótað í símboðum, en gat þó ekki sýnt
boðin. Fjölmiðlar lepja vænisýki hans, tala ekki við Jón. Minnir á frétt sjón-
varps um bóndann, sem var hissa á sæg geisladiska í vegköntum. Frétta-
maðurinn kunni ekki fagið, aflaði ekki upplýsinga um, hvaða músík væri þar.
Eiríkur Jónsson er eitt bezta fréttanef landsins og vakti athygli á þessu. Fórn-
ardýr tónlistar vilja sjá lista yfir tíu efstu í brottkasti tónlistar á vegköntum.
Jonas.is
Jónas Kristjánsson