Fréttablaðið - 13.11.2010, Síða 25
FÖGNUM ALÞJÓÐLEGRI ATHAFNAVIKU – TÖKUM VIRKAN ÞÁTT
Í FJÖLBREYTTUM VIÐBURÐUM VIKUNNAR
MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER
DÝRMÆTASTA LEXÍAN – FRÁ HUGMYND TIL FRAMKVÆMDAR | Stund: Kl. 12:00–13:00. Staður: Háskólinn í Reykjavík, Fönix 1.
Jóhannes Loftsson – frumkvöðull og handhafi Fræs ársins 2010.
Unnur Guðrún Pálsdóttir – frumkvöðull og framkvæmdastjóri Happ ehf.
Margrét Pála Ólafsdóttir – frumkvöðull og framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar.
Hilmar Veigar Pétursson – frumkvöðull og framkvæmdastjóri CCP.
Fundarstjóri: Friðrik Már Baldursson, forseti viðskiptadeildar HR.
ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER
Í FJÖTRUM HNEIGÐANNA | Stund: Kl. 12:00–13:00. Staður: Háskólinn í Reykjavík, Betelgás.
Einkenni við myndun eignabólu. Már W. Mixa, doktorsnemi við viðskiptadeild HR og stundakennari við skólann.
Viðbrögð stjórnenda skömmu áður en bólan springur. Guðrún Johnsen, lektor við viðskiptadeild HR.
Fundarstjóri: Haukur Freyr Gylfason, aðjúnkt við viðskiptadeild HR.
STELPU-STARTUP | Stund: Kl. 20:00. Staður: Hugmyndahús háskólanna, Grandagarði 2.
MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER
AÐ BREYTA GÖGNUM Í UPPLÝSINGAR | Stund: Kl. 12:00–13:00. Staður: Háskólinn í Reykjavík, Bellatrix.
Hjálmar Gislason, frumkvöðull og framkvæmdastjóri Datamarket, fjallar um möguleika gagnasafnsins, gagnadrifna ákvarðanatöku, stöðu opinberra
gagna og sýnir nokkur dæmi um áhugaverða hluti sem lesa má úr gögnum og veita nýja sýn á samfélagið og heiminn sem við búum í.
NÝSKÖPUN OG SJÁLFBÆRNI | Stund: 9:00–15:00. Staður: Opni háskólinn í Háskólanum í Reykjavík. Verð: Kr. 29.500.
Rögnvaldur J. Sæmundsson, dósent við viðskiptadeild HR, fjallar um hvernig koma má auga á tækifæri, hvernig tækifæri er flutt af hugmyndastigi á
þróunarstig, stjórnun nýrrar þróunar, og loks hvernig nýrri þróun er komið á framfæri í formi nýs vöru- eða þjónustuframboðs. Sérstök áhersla verður
lögð á þau tækifæri sem felast í aukinni áherslu á sjálfbærni og hvernig unnið er að slíkri nýsköpun á árangursríkan hátt.
FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER
NÝSKÖPUN Í ORKUGEIRANUM | Stund: Kl. 12:00–13:00. Staður: Háskólinn í Reykjavík, Fönix 1.
Háskólinn í Reykjavík, Innovit og Landsvirkjun bjóða til hádegisfundarins.
Áhrif loftslagsbreytinga á rennsli og nýtingu virkjana. Óli Grétar Blöndal Sveinsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Landsvirkjunar.
Vindorka: Möguleikar á Íslandi. Úlfar Linnet, sérfræðingur í orkuathugunum hjá Landsvirkjun.
Sæstrengur til Evrópu. Edvard G. Guðnason, deildarstjóri sölu- og markaðsdeildar Landsvirkjunar.
Háspennulínumöstur – ný form – ný efni. Eyþór Rafn Þórhallsson, dósent við HR.
Fundarstjóri: Gunnar Guðni Tómasson, forseti tækni- og verkfræðideildar HR.
FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER
AFBURÐANEMENDUR – SKAPANDI EINSTAKLINGAR | Stund: Kl. 15:00–16:00. Staður: Háskólinn í Reykjavík, Fönix 1.
Áhrif kennara, kennsluaðferða og umgjarðar náms á nemendur.
Háskóli, staður vaxtar og tækifæra. Ari K. Jónsson, rektor HR.
Afburðaárangur í námi – hvað þarf til? Niðurstöður nýlegrar rannsóknar. Lóa Hrönn Harðardóttir, náms- og starfsráðgjafi hjá HR.
Aperio – sérsniðið nám fyrir einstaklinga sem skara fram úr. Kristinn R. Þórisson, dósent við HR og umsjónarmaður Aperio.
Að skapa... að þora... Gunnar Steinn Valgarðsson, Aperio-nemi.
Fundarstjóri: Steinn Jóhannsson, forstöðumaður kennslusviðs HR.
VIÐSKIPTASMIÐJA KLAKSINS – OPIÐ HÚS | Stund: Kl. 12:00 –16:00. Staður: Klak nýsköpunarmiðstöð, Ofanleiti 2, 4. hæð.
Sjá nánar á:
www.athafnavika.is
www.hr.is/athafnavika
HR Í ALÞJÓÐLEGRI
ATHAFNAVIKU