Fréttablaðið - 13.11.2010, Page 30

Fréttablaðið - 13.11.2010, Page 30
30 13. nóvember 2010 LAUGARDAGUR skilið fræðimenn sem finnst erfitt að verða umsvifalaust við beiðni fréttamanna um örstutt komment um mikilvægt málefni. Það verður að finna milliveginn.“ Velþóknun umfjöllunarefnisins á ekki að ráða för Guðni skrifaði bókina um Gunnar Thoroddsen sem fyrr segir að beiðni og í sátt við fjölskyldu hans. Því var aftur á móti ekki að heilsa þegar hann skrifaði sína fyrstu bók 1999, Kári í jötunmóð; sögu Kára Stefáns- sonar og Íslenskrar erfðagreining- ar, sem var skrifuð í óþökk Kára og varð umdeild fyrir vikið. „Það var í sjálfu sér synd að Kári var á móti gerð hennar því það hefði verið gaman að vinna hana, ja ekki undir handarjaðri hans en á svona hlutlausu einskismannslandi. Saga Kára og ÍE var auðvitað lyginni lík- ust á þeim tíma og er að vissu leyti enn. Í Bretlandi, þar sem ég lærði, er miklu sterkari hefð en hér heima fyrir því að menn skrifi „unauthor- ized“ bækur eða ævisögur í óþökk. Mér fannst bara svo sjálfsagt að við gerðum þetta hér heima. Ég held að sá hasar sem varð út af þessu fyrir rúmum áratug myndi ekki verða eins mikill núna. Þá var það fyrsta frétt í sjónvarpinu að til stæði að skrifa bók um ÍE og Kára Stefánsson í óþökk Kára. Ætli það yrði fyrsta frétt núna að til stæði að skrifa sögu Kaupþings og Sigurðar Einarsson í óþökk hans? Ætti þá ekki jafnframt að taka fram í fjölmiðlum: þessi frétt um Bjarna Ármannsson er skrifuð í óþökk hans? Ef við höfum bara bækur sem eru skrifaðar með velþóknun, samþykki og fyrir pen- inga viðkomandi fyrirtækis eða ein- staklings, þá fáum við bara ímynd- ina, auglýsingabæklinginn.“ Guðni bendir á að það sé lítil hefð hér á landi fyrir blaðamennskubók- um, sem Kári í jötunmóð var, og finnst að blaðamenn sem búa yfir ákveðinni sérþekkingu ættu að vera duglegri að koma henni á framfæri í bókaskrifum. „Í hinum fullkomna heimi þyrftu blaðamenn að vera bæði sérhæfð- ari og ættu beinlínis að fá tilmæli frá yfirmönn- um, um að taka hálfs árs frí til að skrifa bók um þetta magnaða efni sem væri á þeirra sér- sviði. Um leið og ég segi þetta kemur upp í hug- ann bókin sem Þórhall- ur Jósepsson er að skrifa um Árna Mathiesen, en þar er staðan flóknari en það sem ég er að lýsa. Hið almenna sjónarmið á að vera að blaðamenn og fréttamenn með sérþekk- ingu eiga að geta kom- ist út fyrir hinn þrönga ramma tveggja mínútna og eins dálks fréttanna og kafað dýpra. Þetta er það sem er gert svo mikið í Bretlandi, Bandaríkjun- um og á Norðurlöndunum – þeir sem eru að skrifa um samtímasögu eru oftar en ekki blaðamenn. Þessa vídd vantar hér.“ Áhersla á ímynd frekar en gæði Auk þess að skrifa bækur kenndi Guðni við Háskól- ann í Reykjavík um þriggja ára skeið, þótt engin sagnfræðideild sé við skólann. „Ég hóf störf í HR 2007, sem er kannski kaldhæðnislegt því ártalið er orðið nokkurs konar samnefnari fyrir ofurbjartsýnina og bruðlið sem var í gangi. En þetta var að mér fannst ágætt og djarft skref hjá HR. Hug- myndin var sú að í fögum eins og viðskiptafræði og lögfræði væri fengur að þessari gerð af hugvís- indamanni; að laganemar og við- skiptafræðinemar hefðu gott af því að kynnast fagi eins og sagn- fræði og hún gæti komið þeim að gagni.“ Eftir hrun þurfti skól- að draga saman seglin og Guðni var einn þeirra sem var sagt upp í sparn- aðaraðgerðum. Hann skil- ur þörfina á hagræðingu en gagnrýnir forgangs- röðunina. „Það var auðvitað fúlt að missa vinnuna. En mér finnst líka sárt að viðbrögðin hjá HR, og líklega víðar, við hrun- inu voru að skríða inn í ákveðna skel. Hjá HR er þetta núna bara kennsla og aftur kennsla og rann- sóknirnar líða fyrir. Ég skil vissulega að stofn- anir þurfi að hagræða og að það verði að velja og hafna. Og í Háskólanum í Reykjavík eru flottustu gluggatjöld í háskóla í Evrópu og þótt víðar væri leitað.“ Spurður hvað hann eigi við, segir Guðni að í HR sé of mikil áhersla lögð á ímyndina. „Það má alls ekki ger- ast eins og gerðist á árun- um fyrir hrun, að falla í þá freistni að telja að ef ímyndin sé góð hljóti innihaldið að vera það líka. Ef við lærðum eitt- hvað á hruninu, þá er það þetta. Og sem fyrrver- andi starfsmanni Háskól- ans í Reykjavík, með það frelsi sem því fylgir, finnst mér oft fullmikið úr því gert þar á bæ að búa til góða ímynd frekar en að tala um hlutina eins og þeir eru í raun og veru.“ Langar að skrifa um Einar Odd Guðni kveðst óviss um hvað taki nú við. Hann starfar sem sjálfstæður sagnfræðingur hjá Reykjavíkur- Akademíunni og er upp á sjálfan sig kominn með leit að næsta verkefni. „Það eru ýmis verk sem mig lang- ar til að vinna. Vandinn sem blas- ir við er hvort maður getur fengið nógu mikið borgað fyrir þau. Rann- sóknir á nýliðinni tíð hafa sjald- an verið jafn mikilvægar og nú en það er bara fjandanum erfiðara, því peninga vantar. En það má auðvitað ekki leggjast í einhvern barlóm.“ Eitt af þeim verkefnum sem Guðni vonast til að komast í áður en langt um líður er að skrifa ævisögu Einars Odds Kristjánssonar. „Það yrði öðruvísi verk en saga Gunnars. Einar Oddur var allt öðruvísi karakter og afskaplega jarðbundinn og heill, þótt hann hefði auðvitað sína galla. Það væri gaman að geta dregið upp mynd af honum. Ég held að það myndi leiða í ljós að það er fólk eins og Einar Oddur sem við Íslendingar viljum; maður sem þoldi ekki falsímynd- ir og vildi bara segja frá hlutunum eins og þeir voru. Fyrir vikið rakst hann stundum illa í flokki og það er kannski svoleiðis fólk sem við þurf- um núna. Það væri sannarlega verk- efni sem væri gaman að kljást við og hver veit nema það verði fyrr en seinna.“ FRAMHALD AF SÍÐU 28 Deildarás 11 110 Reykjavík Fjölskylduhús á vinsælum stað Stærð: 269,8 fm Fjöldi herbergja: 7 Byggingarár: 1981 Fasteignamat: 50.850.000 Verð: 59.600.000 RE/MAX SENTER KYNNIR: Glæsilegt einbýlishús 269,8fm við Deildarás í Árbæjarhverfi. Húsið er á tveimur hæðum og skiptist svo: Á neðri hæð er innbyggður flísalagður bílskúr og er innangengt í hann frá forstofu. Forstofan er flísalögð, stórt parketlagt forstofuherbergi, rúmgott fjöslkyldurými (sjónvarpssalur) og geymsla þar innaf. Rúmgott þvottahús og sturtuklefi, salerni og handlaug í eru þvottahúsinu. Efri hæð: Parketlagður stigi upp á efri hæðina. Á hæðinni er rúmgóð, parketlögð stofa og borðstofa. Útfrá stofu er útgengt á flísalagðar svalir, mikið útsýni til suð- vesturs frá svölum. Eldhús með góðum borðkrók, 4 parketlögð svefnherbergi, skápar í öllum herbergjum. Frá hjónaherbergi er útgengt á hellulagða, afgirta verönd og garðinn. Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir, baðkar og sturtuklefi. Innrétting er undir vaski. Allar innréttingar og klæðning í loftum eru frá JP- innréttingum úr mahoní. Húsið er allt ný málað að utan og garður afar snyrtilegur. Hellululögð upphituð aðkeyrsla að bílskúr. Vel um gengið hús sem hefur fengið góða umhirðu gegnum árin. Senter Ástþór Reynir Lögg. fasteignasali arg@remax.is Gunnar Sverrir Sölufulltrúi gunnar@remax.is Opið Hús Opið hús á sunnudaginn kl 16.30 - 17.00 899 6753 8622001 Skipasund 85 104 Reykjavík Snyrtileg íbúð " aðveld kaup" Stærð: 78,8 fm Fjöldi herbergja: 3 Byggingarár: 1958 Fasteignamat: 18.900.000 Verð: 20.900.000 RE/MAX SENTER KYNNIR: Fallega 3ja herbergja íbúð við Skipasund í Reykjavík. Íbúðin er með sérinngangi og skiptist í hol, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi og stofu. Íbúðin er undir súð svo grunnflötur íbúðarinnar er stærri en skráð er hjá Fasteignamati ríkisins. Úr stofu er gengið út á svalir. Nánari lýsing: Sérinngangur er fyrir þessa íbúð aftan við húsið, lítið hol er við inngang. Úr holi er gengið upp tepplagðan stiga inn í íbúðina. Holið er parketlagt. Herbergin eru parketlögð. Stofan er parketlögð og með útgangi út á svalir. Eldhúsið er dúklagt með eldri hvítri innréttingu og viðarborði. Baðherbergið er flísalagt og með sturtu. Húsið hefur verið mikið lagfært í sumar það var skipt um járn á þakinu, gert við sprungur og málað, einnig er búið að skipta um rafmagn. Þetta er eign sem vert er að skoða. Fallegt hús og góður garður. Björt og falleg íbúð á frábærum stað. Eignin er skráð 78,8 fm hjá Fasteignamati ríkisins. Á eigninni hvílir lán frá Arion ca. 20m. Allar upplýsingar um eignina gefur Gunnar Sverrir í síma 8622001 eða á gunnar@remax.is og Ástþór Reynir í síma 8996753 eða á Senter Ástþór Reynir Lögg. fasteignasali arg@remax.is Gunnar Sverrir Sölufulltrúi gunnar@remax.is Opið Hús Opið hús á sunnudaginn kl 15.00 - 15.30 899 6753 8622001 Gunnar Sverrir 862 2001 Ástþór Reynir 899 6753 Skráðu fasteignina þína hjá okkur og við seljum hana! Guðni Th. Jóhannesson sagn-fræðingur er fæddur í Reykjavík 1968. Hann er dokt- or í sagnfræði frá Queen Mary, University of London og stund- ar ritstörf og rannsóknir við ReykjavíkurAkademíuna. Guðni hefur skrifað fjölda greina og bóka um sögu og sagnfræði. Guðni er kvæntur Eliza Reid. Þau eiga tvo syni en Guðni á dótt- ur frá fyrra hjónabandi. ■ GUÐNI Í HNOTSKURN Fyrri bækur Guðna: ➜ Kári í jötunmóð. Saga Kára Stef- ánssonar og ævintýrið um Íslenska erfðagreiningu. (1999) ➜ Völundarhús valdsins. Stjórnarmynd- anir, stjórnarslit og staða forseta Íslands í embættistíð Kristjáns Eldjárns, 1968- 1980 (2005) ➜ Óvinir ríkisins. Ógnir og innra öryggi í Kalda stríðinu á Íslandi. (2006, tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.) ➜ Þorskastríðin þrjú – saga landhelgis- málsins 1948-1976. (2006) ➜ Hrunið: Ísland á barmi gjaldþrots og upplausnar. (2009) Ég skil vissulega að stofnan- ir þurfi að hagræða og að það verði að velja og hafna. Og í Háskólanum í Reykjavík eru flottustu gluggatjöld í háskóla í Evrópu og þótt víðar væri leitað
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.