Fréttablaðið - 13.11.2010, Page 40
40 13. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
HVAÐ ERU GILDI EÐA VIÐMIÐ?
ÁRIÐ 2008
■ 1. framfarir 4
■ 2. umhverfisvitund 6
■ 3. trú/siðir 3
■ 4. pólitísk réttindi 3
■ 5. menntun 4
■ 6. náttúruvernd 6
■ 7. upplýsingaflæði 3
■ 8. sameiginleg gildi 5
■ 9. sátt 5
■ 10. réttlæti 4
BÚTAN
■ 1. málfrelsi 4
■ 2. skrifræði 3
■ 3. atvinnuleysi 1
■ 4. friður 7
■ 5. sóun 3
■ 6. umhverfisvitund 6
■ 7. virkt lýðræði 4
■ 8. ásakanir 2
■ 9. mannréttindi 7
■ 10. óörugg framtíð 1
SVÍÞJÓÐ
1
Afkoma
2
Tengsl
3
Sjálfsmynd
4
Umbreyting
5
Innra
samræmi
6
Ytra samræmi
7
Þjónusta
Persónuleg gildi / samfélagsáherslur
■ 1. fjölskylda 2
■ 2. heiðarleiki 5
■ 3. ábyrgð 4
■ 4. ábyrgðarkennd 4
■ 5. fjárhagsleg öryggi 1
■ 6. traust 5
■ 7. vinátta 2
■ 8. jákvætt viðhorf 5
■ 9. gleði 5
■ 10. aðlögunarhæfni 4
Æskileg gildi / samfélagsáherslur
■ 1. ábyrgðartilfinning 4
■ 2. fjölskylda 2
■ 3. atvinnutækifæri 1
■ 4. fjárhagslegt öryggi 1
■ 5. bjartsýni 5
■ 6. áreiðanleg opinber þjónusta 3
■ 7. heiðarleiki 5
■ 8. samfélagsleg ábyrgð 4
■ 9. mannréttindi 7
■ 10. minni fátækt 1
Ríkjandi gildi / samfélagsáherslur
■ 1. efnishyggja 1
■ 2. áhersla á skammtímamarkmið 1
■ 3. tækifæri til menntunar 3
■ 4. óörugg framtíð 1
■ 5. spilling 1
■ 6. yfirstétt 3
■ 7. efnislegar þarfir 1
■ 8. sóun auðlinda 3
■ 9. kynjamismunun 2
■ 10. gagnkvæmar ásakanir 2
Persónuleg gildi/ samfélagsáherslur
■ 1. fjölskylda 2
■ 2. heiðarleiki 5
■ 3. vinátta 2
■ 4. jákvætt viðhorf 5
■ 5. traust 5
■ 6. sanngirni 5
■ 7. heilbrigði 1
■ 8. ábyrgðarkennd 4
■ 9. fjárhagsleg öryggi 1
■ 10. ábyrgð 4
Æskileg gildi / samfélagsáherslur
■ 1. heiðarleiki 5
■ 2. fjárhagslegt öryggi 1
■ 3. atvinnutækifæri 1
■ 4. fjölskylda 2
■ 5. virðing 2
■ 6. áreiðanleg opinber þjónusta 3
■ 7. minni fátækt 1
■ 8. tækifæri til menntunar 3
■ 9. umhyggja 4
■ 10. lýðræði 4
14.
Ríkjandi gildi / samfélagsáherslur
■ 1. óörugg framtíð 1
■ 2. spilling 1
■ 3. atvinnuleysi 1
■ 4. ásakanir 2
■ 5. áhyggjur af komandi kynslóðum 3
■ 6. fátækt 1
■ 7. skammtímamarkmið 1
■ 8. yfirstétt 3
■ 9. árekstrar 2
■ 10. sóun auðlinda 3
ÁRIÐ 2010
Samfélagsleg gildi og áherslur Íslendinga
Ríkjandi gildi / samfélagsáherslur: Túlkun Bjarna Snæbjörns Jónssonar.
áhyggjur af komandi
kynslóðum
spilling, ásakanir,
yfirstétt
óörugg framtíð,
árekstrar
sóun auðlinda,
atvinnuleysi, fátækt
Við erum óttaslegin – hvað verður um okkur?
Við treystum ekki forystuöflum í þjóðfélaginu til þess að
taka ábyrgð eða að taka ákvarðanir byggðar á heilindum
Ótti og fjandskapur hefur áhrif á líf okkar og við áttum okkur
ekki á því hvert samfélagið stefnir.
Efnisleg gæði skipta enn miklu máli í lífi okkar. Samt göngum
við ekki nógu vel um auðlindir og okkur skortir atvinnutækifæri.
FRAMHALD AF SÍÐU 38
F yrstu þrepin þrjú hér að ofan einkenna þarfir sem vekja óöryggi og vanlíðan
séu þær ekki uppfylltar. „Þetta
eru hlutir eins og þegar einstakl-
ingur hefur ekki peninga fyrir
mat, þar sem maður er hræddur
um að vera einmana, útskúfaður
eða njóta ekki viðurkenningar og
telja sig minni máttar. Þegar ofar
dregur í vitundar stiganum er
þetta ekki til staðar, enda byggist
það á því að ekki séu fyrir hendi
óuppfylltar grunn þarfir,“ útskýrir
Bjarni. „Í neðstu þrepunum eru
jákvæðar áherslur á uppbyggi-
lega hluti eins og velmegun, góða
heilsu og öryggisnet samfélagsins
en hin hliðin sýnir áherslur sem
spretta af ótta og tortryggni, eins
og spilling, græðgi og ofbeldi sem
einkennir ástand þar sem hver og
einn hugsar meira um að bjarga sér
og fá, frekar en að gefa af sér. Hin
neikvæðu eða takmarkandi gildi
eða áherslur spila stórt hlutverk á
neðstu þrepunum ef fólk upplifir
ótryggt ástand og óttast um hvern-
ig því muni farnast í því ástandi.
Þess vegna er bæði jákvæðar og
neikvæðar áherslur að finna á
þessum vitundarstigum.“
Bjarni segir að hugarfar sem hafi
þroskast upp fyrir fyrstu þrepin
þrjú sé laust við takmarkandi krafta
og geti farið að bæta við sig. Með
því er byggt undir hæfileikann til
þess að vera þátttakandi í víðtæk-
ari tilveru sem takmarkast ekki
einungis við mann sjálfan eða eigin
þarfir. Þeir sem hafa góða fótfestu
á fyrstu þrepunum geta náð lengra
í þroskanum, breyst til batnaðar og
tileinkað sér nýja hugsun. Það á við
um einstakling, fyrirtæki eða sam-
félagið allt.
Á botninum
Bjarni segir að ef einstaklingur inn
sé fastur á neðstu þrepunum geti
hann ekki tileinkað sér hugsunar-
hátt efri þrepanna. Áherslan sé á að
uppfylla eigin þarfir, sem séu eðli-
leg viðbrögð. „Eftir þessu má greina
umræðuna í íslensku sam félagi, sem
einkennist af því vitundar stigi sem
við erum á. Við verðum að skilja að
það sem við erum að hugsa um er
hvort við séum að missa eitthvað
eða fá eitthvað tiltekið. Áherslan er
á: Hvað fáum við, helst án þess að
skuldbinda okkur á móti.“
Umræðan um aðild að Evrópu-
sambandinu einkennist til dæmis
af þessu, segir Bjarni. Við hræð-
umst það að auðlindir verði teknar
af okkur og við verðum ekki sjálfs
okkar ráðandi. „Að verða hluti að
ríkjasambandi er gríðarlegt stökk
fyrir þjóð sem hugsar eins og við
gerum. Það hefur ekkert með lög
og reglur að gera heldur einfald-
lega þjóðarvitundina sjálfa.“
Íslendingar virka ekki
„Ég dreg þá ályktun af þessum
rannsóknum, að við virkum ekki
eins og þjóð í eiginlegum skiln-
ingi, heldur frekar eins og stór
ættbálkur,“ segir Bjarni. „Við erum
vissulega mjög vel menntuð, hæfi-
leikarík, dugleg og útsjónarsöm.
Við höfum lög og reglur sem benda
til að við séum eins og hvert annað
vestrænt ríki. En við sem samfélag
erum ekki að sýna það í verki því
hugarfarið er eilítið öðruvísi.“
Bjarni segir að þegar horft er til
persónulegra gilda, eða þess sem
hver og einn einstaklingur álítur
sig standa fyrir, líti myndin mjög
vel út. Gildin einkenna það sem allir
vilja í raun; það sam mannlega. En
af hverju erum við sem sam félag
allt annars staðar en við viljum
vera?
„Það er auðvitað stóra spurning-
in og hefur með þessa sameiginlegu
hugsun að gera. Hugarfar okkar og
gildismat einkennast af því sem er
neikvætt og takmarkandi og neðstu
þrepin þrjú lýsa svo vel. Stóri vand-
inn er sá, að við áttum okkur ekki
nógu vel á þessu og því finnst okkur
það sem aflaga fer í veruleikanum
vera einhverjum öðrum en okkur
að kenna eða af ástæðum sem við
erum ekki hluti af. Við förum í eins
konar afneitun og teljum okkur trú
um að ef eitthvað eða einhverjir
þurfi að breytast, þá séu það aðrir
en við.“
Sjálfsblekking
Bjarni vitnar til samfélagsumræð-
unnar þar sem mikið er talað um
hagvöxt og þess bata sem hann á að
skila. Á sama tíma og hagvöxtur og
efnahagsleg velferð er nauðsyn leg
til þess að koma til móts við grunn-
þarfirnar og eyða óttanum, þarf
hins vegar meira til, einkum ef við
erum ekki að byggja á hugarfars-
lega sterkum grunni. „Það átti við
fyrir hrun og á við núna. Saman-
burður á milli áranna 2008 og 2010
sýnir það,“ segir Bjarni. „Við erum
ungt samfélag og ég held því fram
að við eigum eftir að taka út mik-
inn þroska sem slík. Í sjálfstæðis-
baráttunni, byggðist þjóðarvit-
undinn á sameiginlegum arfi úr
fortíðinni. Á 20. öldinni höfum við
hins vegar verið að feta okkur áfram
með hluti þar sem nágrannaþjóðir
okkar hafa nokkur hundruð ára
forskot á okkur. Þessi menning var
framandi sem við reyndum að til-
einka okkur á stuttum tíma. Saman-
burður á niður stöðum mælinga í
nágrannalöndunum, til dæmis Sví-
þjóð og Danmörku, sýnir svo ekki
verður um villst að þjóðarvitund
okkar er ekki á sama stigi. Þessar
þjóðir voru búnar að fara í gegn-
um þróunarstig sem við áttum og
eigum eftir að feta okkur í gegn-
um. Með markvissum breytingum
getum við hraðað þessari þróun,“
segir Bjarni að lokum.
„Gildismatið ræður ferðinni“
Ríkjandi gildi 2008
Ríkjandi gildi 2010
Kanada Bretland Svíþjóð Bandaríkin Lettland Belgía Ísland Danmörk Brasilía Ástralía Bútan
PERSÓNULEG GILDI OG SAMFÉLAGSÁHERSLUR 11 ÞJÓÐA
fjölskylda
heiðarleiki
gleði
ábyrgð
jákvætt hugarfar
vinátta
samkennd
sanngirni
vinátta
fjölskylda
heiðarleiki
virðing
auðmýkt
gleði
heilsa
sanngirni
að skipta máli
fjölskylda
gleði
velferð
heillindi
heiðarleiki
samúð
sköpunarkraftur
vinátta
þroski
kærleikur
varfærni
heiðarleiki
réttlæti
sjálfsagi
bjartsýni
heiðarleiki
fjölskylda
samkennd
gleði
virðing
vinátta
ábyrgð
jákvætt hugarfar
samkennd
fjölskylda
gleði
heiðarleiki
vinátta
virðing
sanngirni
traust
heiðarleiki
gleði
fjölskylda
ábyrgð
áreiðanleiki
samkennd
jákvæðni
vinátta
heiðarleiki
fjölskylda
væntumþykja
skemmtun
ábyrgð
áreiðanleiki
sjálfstæði
vinátta
fjölskylda
börn
heiðarleiki
gleði
samkennd
sveigjanleiki
vinátta
ábyrgð
heiðarleiki
virðing
vinátta
fjölskylda
samkennd
að hlusta
heilsa
ábyrgð
Fjölskylda
heiðarleiki
ábyrgð
ábyrgðarkennd
fjárhagsleg öryggi
traust
vinátta
jákvætt viðhorf
■ Sérhver menning, sérhvert samfélag, sérhver ein-
staklingur hefur í heiðri ólík gildi, þó að mörg hver
séu algild. Það sem einstaklingur telur vera eftir-
sóknarvert í fari einhvers byggist til dæmis á þeim
gildum eða viðmiðum sem hann telur mikilvæg.
■ Hvort sem gildin eru okkur ljós eða ekki
hafa þau mikil áhrif á hegðun okkar og
ákvarðanir og nauðsynlegt er að átta sig á
þeim ástæðum sem liggja til grundvallar.
Ástæðurnar eru nátengdar þeim gildum
sem viðkomandi aðhyllist. Einstaklingar
hafa ólík gildi, því viðmið þeirra eru
ólík.
Hvaða orð/hugtök lýsa best þeim gildum/viðhorfum sem þú stendur fyrir persónulega?
Hvaða orð/hugtök lýsa best þeim gildum/áherslum sem þú telur mikilvægastar í samfélaginu í dag?
Hvaða orð/hugtök lýsa best þeim gildum/áherslum sem þú upplifir í samfélaginu í dag?
Tölfræðilegt úrtak 1.461 einstaklingur. | Svarhlutfall: 68,9 prósent. | Valið af orðalista sem birtist
svarendum í tilviljanakenndri röð.