Fréttablaðið - 13.11.2010, Síða 42
42 13. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
Gangi Ísland í ESB opn-
ast ýmis sóknarfæri fyrir
iðnaðinn, en mest munar
um það ef evra verður tekin
upp með fylgjandi stöðug-
leika. Hagsmuna sjávarút-
vegs þarf að gæta. Forstjóri
Nýsköpunarmiðstöðvar
lítur á ESB sem „taplið“ en
veit engan skárri kost. Þing-
maður Sjálfstæðisflokks
í iðnaðarnefnd sér engin
jákvæð áhrif af ESB-aðild.
Á dögunum greindi Norræna ráð-
herranefndin frá því að nýsköpun
á Íslandi mældist neðarlega miðað
við önnur norræn ríki. ESB-ríkin
þrjú, Danmörk, Finnland og Sví-
þjóð, voru í efstu sætunum en
EES-ríkið Noregur var fyrir neðan
Ísland.
Samtök iðnaðarins hafa um ára-
bil mælt með aðildarviðræðum
um inngöngu í Evrópusamband-
ið. Hátækni- og hugbúnaðarfyrir-
tæki eru hlynnt inngöngu. Meiri-
hluti fyrirtækja innan Samtaka
ferðaþjónustunnar er það einnig.
Að mati þessara fyrirtækja munar
mest um evruna, meiri stöðugleika
og auðveldari fjármögnun, sem
fólk sér sem afleiðingu aðildar.
Ekki eru þó öll fyrirtæki jafn
sannfærð. Innan samtaka iðnaðar-
ins eru mörg fyrirtæki, sem þjón-
usta sjávarútveginn á ýmsan hátt,
sem hafa áhyggjur af því að hags-
munir sjávarútvegsins verði fyrir
borð bornir í aðildarviðræðum.
Iðnfyrirtæki í landbúnaði, kjöt-
og mjólkuriðnaði, eru heldur ekki
hrifin af aðild.
Sparnaður við rammaáætlanir
„ESB aðild þýðir að gjald Íslend-
inga fyrir aðgang að ramma-
áætlunum ESB um rannsókn-
ir og þróun og samkeppnishæfni
og nýsköpun fellur að miklu leyti
niður, og verður fært með öðrum
kostnaði af aðildinni,“ samkvæmt
upplýsingum úr stjórnarráðinu.
Þessi aðgangur kostar núna rúman
milljarð á ári hverju.
„Þá verður Ísland fullgildur aðili
að atvinnu- og svæðaþróunarstarfi
ESB en undir merkjum þess eru
bæði öflugir sjóðir og stuðningur
við samþættingu áætlana,“ segja
upplýsingar úr iðnaðarráðuneyti.
Ráðuneytið kveður upptöku evru
miklu skipta fyrir atvinnuþróun og
nýsköpun á Íslandi.
Engin jákvæð áhrif af aðild
Jón Gunnarsson er fulltrúi Sjálf-
stæðisflokks í iðnaðarnefnd
Alþingis. Hann er andsnúinn aðild
að ESB, helst vegna þess að hann
óttast að forræði Íslendinga yfir
auðlindum geti skerst, að ESB
breyti reglum um auðlindastýr-
ingu þannig að erlendir aðilar geti
keypt af Íslendingum aðgang að
auðlindum: „Ég get ekki séð að
aðild muni færa okkur nein jákvæð
áhrif umfram það sem við höfum
í dag. Við erum aðilar að þessum
EES-samningi og ég held að [inn-
ganga í ESB] sé ekki atriði sem
muni laga samkeppnisstöðu okkar
iðnaðar,“ segir hann.
Jón vill ekki blanda umræðu um
ESB við gjaldmiðilsskipti og stöð-
ugleika efnahagslífsins. Aðild að
myntbandalagi Evrópu taki enda
mörg ár. Þangað til gæti krónan
bætt samkeppnishæfni landsins.
Í umsögn um þingsályktun um
aðildarviðræðurnar segir Sam-
orka, samtök orku og veitufyrir-
tækja, hins vegar að eignarhald
náttúru-auðlinda innan ESB sé
alfarið á hendi aðildarríkjanna
sjálfra, ekki ESB. Iðnaðarráðu-
neytið segir að reglum um slíkt
grundvallaratriði yrði ekki breytt
í framtíðinni án samþykkis aðild-
arríkja.
Ferðaþjónusta einhuga um evru
Erna Hauksdóttir, framkvæmda-
stjóri Samtaka ferðaþjónustunn-
ar, segir að nú þegar hafi mest allt
regluverk ESB sem snýr að ferða-
þjónustu og flugi verið fært í lög
og aðild breytti ekki miklu um
það. Könnun innan samtakanna,
skömmu eftir hrun, hafi leitt í ljós
að 70 prósent félagsmanna telji að
aðild yrði mjög hagstæð ferðaþjón-
ustunni og að 83 prósent þeirra
vilji nota evru í stað krónu.
„Og ég á ekki von á að þetta hafi
breyst mikið síðan,” segir Erna:
„Fólk er orðið óskaplega þreytt á
þessum sveiflum í gengi krónu.
Það er ekkert grín að verðleggja til
dæmis ráðstefnu eftir tvö til þrjú
ár. Þú veist ekkert hvað þú færð
fyrir krónuna eftir þann tíma,”
segir hún. Samtökin hafi kallað til
ýmsa sérfræðinga og niðurstaðan
sé sú að evran henti best og að hún
verði ekki tekin upp með góðu móti
án aðildar. Erna bendir á reynslu
Finna.
„Finnsk ferðaþjónusta telur
að það hafi fyrst og fremst verið
evran sem gerði þeim kleift að
gera skynsamlegar áætlanir fram
í tímann og búa við stöðugleika,“
segir hún.
Þess skal getið að ekki eru allir
sammála um árangur Finna eftir
kreppu, svo sem í velferðarmál-
um. Almennt hefur finnskum iðn-
aði þó gengið vel og stöðugleiki
náðst í efnahagslífi. Mikil skuld-
setning og hátt gengi gjaldmið-
ils til að berjast við verðbólgu er
meðal þess sem angraði Finna
áður.
ESB er taplið
Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri
Nýsköpunarmiðstöðvar, segir að
mjög örvandi samskipti við ESB
hafi opnast með EES-samningn-
um og hjá sambandinu sé æ meir
litið til nýsköpunar. Eftir hrun hafi
bankar verið tregir til að lána í
þennan málaflokk.
„Þessi skilyrði til fjármögnunar
myndu batna mikið með inngöngu
í ESB og málaflokkurinn fengi
meiri athygli,“ segir hann. Þó sé
brýnt að gleyma ekki öðrum þjóð-
um og halda í samninga við þær
einnig.
Þorsteinn segir umhugsunar-
vert að ESB skilgreini sig ekki
sem „vinningsliðið“ heldur finnist
sem það sé alltaf undir í keppninni
við Bandaríkin og Japan. „Viðmið
okkar ætti því að vera heimurinn
allur, frekar en einungis Evrópa.
Við erum ekki endilega bættari af
því að vera í tapliði.“
Hann sér þó engra betri lausn í
hendi: „Við getum ekki staðið ein
á báti gagnvart nýsköpunarfjár-
mögnuninni.“
Samkvæmt iðnaðarráðuneyti
hefði aðild að ESB ekki áhrif á
viljayfirlýsingar eða tvíhliða
samninga um rannsóknarsamstarf
við ríki utan ESB.
Forsenda nýsköpunar
Þrjú iðnfyrirtæki hafa, að öðrum
ólöstuðum, slegið í gegn á erlend-
um mörkuðum síðustu ár. CCP,
Marel og Össur. Í svörum við fyr-
irspurn nefndar um þróun Evrópu-
mála á vegum forsætisráðuneyt-
is segir Össur líklegt að erlendir
fjármögnunaraðilar geri kröfu um
að fyrirtækið verði flutt í stöðugt
umhverfi. CCP og Marel segjast
styðja aðild „eindregið“. Marel
gengur raunar lengra og segir
aðild „eina af meginforsendum
fyrir áframhaldandi stækkun fyr-
irtækisins á Íslandi“.
Hvað var sagt í aðdraganda EES-samningsins?
FRÉTTASKÝRING: Hvaða áhrif hefði ESB-aðild á iðnað, ferðaþjónustu og nýsköpun?
Klemens Ólafur
Þrastarson
klemens@frettabladid.is
Fólk er orðið þreytt á sveiflunum
Í áfangaskýrslu Samtaka iðnaðarins (2010) um aðild að ESB segir að
fimmtungur landsmanna hafi atvinnu af iðnaði og þaðan komi þriðjungur
af gjaldeyristekjum. Að umræða um ESB hverfist um of kringum hagsmuni
sjávarútvegs og landbúnaðar. Ákall um stöðugleika sé hávært meðal félags-
manna og flestir þeirra eigi erfitt að sjá iðnað vaxa og dafna með íslensku
krónunni. Tekið er fram að mikilvægt sé að samningur um sjávarútveg verði
hagstæður, enda snerti hann mörg iðnfyrirtæki. Mjólkur- og kjötiðnaður
verði líklega fyrir miklum neikvæðum áhrifum. Það sjónarmið heyrist meðal
félagsmanna að „nauðsynlegt sé að ganga í Evrópusambandið til að losna
við spillingu og kunningjatengsl“.
Vont fyrir mjólkur- og kjötiðnað
„Það sem ég óttast kannski öðru fremur er aukin samkeppni erlendra
fyrirtækja við íslensk fyrirtæki og aukin og ómæld fjárfesting erlendra
aðila hér á landi. Við vitum auðvitað ekki hversu mikil
hún verður, við vitum ekki hversu mikið menn
munu leita eftir því að fjárfesta hér á landi. En
staðreyndin er sú að við búum ekki í stóru
iðnríki. [...] Ef við lítum á íslensk fyrirtæki þá
eru öll íslensk fyrirtæki smáfyrirtæki. Þau eru
meira að segja pínulítil fyrirtæki og við vitum að
í hinum svokallaða innri markaði, sem á að taka
gildi innan Evrópubandalagsins, er einn þáttur og
mjög ríkur sá að stórfyrirtæki fá að njóta sín, að
hagkvæmni stórfyrirtækja fái að njóta sín.“
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þingkona
Kvennalista, í þingræðu um EES-
samninginn, 5. nóvember 1991.
Óttaðist ómælda fjárfestingu Engin miskunn í ESB - allir jafnir
„Það er engrar miskunnar þaðan [frá Evrópu] að vænta gagn-
vart tilburðum einstakra samningsaðila, til dæmis til að halda
utan um sinn vinnumarkað, vera hliðhollur sinni framleiðslu,
sínum vörum og svo framvegis. Ó, ekkí. Nei,
aldeilis. Þvert á móti liggur hið gagnstæða fyrir
að þar er engin miskunn hjá Magnúsi. Þar skulu
sko allir vera jafnir hvort sem þar er mikið eða
lítið atvinnuleysi [...] Því að það er nú einu
sinni lögmál markaðarins og lögmál frelsisins,
sem eru bara að birtast mönnum í slíku, að Írar
fara halloka, að þeirra iðnaður stendur veikt
og stórfyrirtækin á meginlandinu valta
yfir þá.“ Steingrímur J. Sigfússon
þingmaður Alþýðubandalags, í
þingræðu um EES-samninginn, 9.
janúar 1993.
„Nei, við höfum staðið okkur illa í því, það verður að viður-
kennast, að skapa íslenskum iðnaði viðunandi skilyrði. Við
höfum haldið hér ýmsum sköttum og álögum
sem ekki þekkjast annars staðar [...] Vitanlega
áttum við að hafa manndóm til að lagfæra
slíka hluti áður. Ég tek það fram að ég er
alveg eins í sök að þessu leyti eins og
aðrir sem að stjórnmálum hafa komið
þennan tíma. Staðreyndin er vitanlega sú
að við getum án nokkurs samnings skapað
þessi skilyrði öll fyrir iðnaðinn hér.“
Steingrímur Hermannsson,
þingmaður Framsóknar, í
þingræðu um EES,
24. ágúst 1992.
Áttum að hafa manndóm
ERNA
HAUKSDÓTTIR
ÞORSTEINN I.
SIGFÚSSON
JÓN GUNN-
ARSSON
UNNIÐ AÐ ÚTFLUTNINGI Helstu nýsköpunarfyrirtæki eru fylgjandi aðild að ESB og segja hana jafnvel forsendu frekari starfsemi á
Íslandi. Hefðbundnari framleiðsla, svo sem mjólkur- og kjötiðnaður, telur að aðild hefði neikvæð áhrif á starfsemi sína. MYND/ÖSSUR
Að bæta umhverfi lítilla fyrirtækja
„Iðnstefna ESB miðar að því að styðja við aðgerðir sem
bæta samkeppnishæfni iðnaðar í aðildarríkjunum með
því að hraða aðlögun að breyttum aðstæðum, stuðla
að umhverfi sem hvetur til nýsköpunar og hagvaxtar
alls staðar á innri markaðnum, og stuðli aukinheldur
að innlendri jafnt sem erlendri fjárfestingu. Stefnan
miðar enn fremur sérstaklega að því að bæta rekstr-
arumhverfi lítilla og meðalstórra fyrirtækja. [...] Aðild
að [frumkvöðla- og iðnaðarstefnu ESB] myndi opna
Íslandi leið til fullrar þátttöku í Lissabon-ferlinu svo-
nefnda, sem miðar að því að gera Evrópusambandið
að samkeppnishæfasta efnahagssvæði heims.“
Úr bókinni Inni eða úti - Aðildarviðræður við Evr-
ópusambandið eftir Auðunn Arnórsson (2009).