Fréttablaðið - 13.11.2010, Side 58
13. nóvember 2010 LAUGARDAGUR4
Seðlabanki Íslands auglýsir eftir vel menntuðum einstaklingum með þekkingu, frumkvæði og áhuga á viðfangs-
efnum er varða fjármálastöðugleika og greiðslumiðlun til starfa á fjármálasviði bankans.
Viðfangsefni fjármálasviðs Seðlabanka Íslands lúta að fjármálastöðugleika. Fjórar starfseiningar tilheyra fjármálasviði og þær eru fjármálakerfi ,
greiðslukerfi , rannsóknir og viðbúnaður og fjárhirslur bankans.
Fjármálakerfi
Sérfræðingurinn mun í samvinnu við aðra sinna verkefnum er varða:
• Eftirlit með gjaldeyrisjöfnuði og lausafjárstöðu fjármálafyrirtækja skv. reglum Seðlabankans
• Greining á stöðu fjármálakerfi sins og skrif í rit bankans
• Þátttaka í gerð álagsprófa
• Samskipti við innlenda og erlenda aðila
• Ýmis tilfallandi verkefni tengd fjármálakerfi nu
Sérfræðingurinn þarf að hafa meistarapróf í viðskipta- eða hagfræði – eða sambærileg próf. Þekking á ýmsum tegundum fjármálaafurða, umhverfi
og starfsemi fjármálafyrirtækja og fjármálamarkaða er afar mikilvæg. Sérstök áhersla er lögð á að umsækjandinn geti komið frá sér rituðu efni á
framúrskarandi máta, bæði á íslensku og ensku. Krafa er gerð um frumkvæði, nákvæmni, ögun og sjálfstæði í vinnubrögðum, auk góðra samskipta-
hæfi leika og hæfni til að vinna í hópi.
Greiðslukerfi
Sérfræðingurinn mun í samvinnu við aðra sinna verkefnum er varða:
• Yfi rsýn með kerfi slega þýðingarmiklum greiðslukerfum
• Mótun stefnu varðandi þróun kerfa, innleiðingu og rekstur þeirra
• Setningu reglna fyrir uppgjörskerfi og uppgjörsfyrirkomulag
• Tengsl innlendrar greiðslumiðlunarkerfa við erlend greiðslu- og uppgjörskerfi
• Skipulag viðbúnaðarmála á vettvangi greiðslumiðlunar
• Mat á nýjungum á sviði greiðslumiðlunar með tilliti til öryggis, skilvirkni og hagkvæmni
• Samskipti við erlendar og innlendar fjármálastofnanir auk alþjóðlegra stofnana sem hafa með höndum setningu reglna og tilmæla á sviði
greiðslumiðlunar
Leitað er eftir einstaklingi með víðtæka þekkingu og reynslu á vettvangi greiðslumiðlunar. Auk framangeindrar þekkingar og reynslu er menntun á
sviði lögfræði mjög æskileg. Sérfræðingurinn þarf að geta sett niðurstöðu vinnu sinnar fram á vönduðu máli jafnt á íslensku og ensku í ræðu og riti á
vegum bankans. Gott vald á ensku er skilyrði og kunnátta í dönsku, sænsku eða norsku er æskileg. Krafa er gerð um frumkvæði, nákvæmni og ögun
í vinnubrögðum auk góða samskiptahæfi leika og hæfni til að vinna í hóp. Kostur er að geta hafi ð störf sem allra fyrst.
Nánari upplýsingar um störfi n veitir Tryggvi Pálsson framkvæmdastjóri í síma 569 9600. Umsóknum skal skilað fyrir 26. nóvember 2010 til
rekstrarsviðs Seðlabanka Íslands eða á tölvupóstfangið: Umsoknir@sedlabanki.is
Störf á fjármálasviði
Seðlabanka Íslands
HAFRANNSÓKNASTOFNUNIN
Sérfræðingur
Hafrannsóknastofnunin óskar eftir því að ráða sérfræðing til starfa
við hvalarannsóknir á Nytjastofnasviði stofnunarinnar. Um er að
ræða tímabundna ráðningu til eins árs og felst starfi ð að mestu
leyti í tölulegri úrvinnslu gagna og greinaskrifum.
Æskilegt er að umsækjandi haf lokið meistara- eða doktorsprófi í
líffræði, tölfræði eða öðrum greinum raunvísinda sem nýtast í starfi .
Lögð er áhersla á færni við gagnagreiningu, tölfræðilega úrvinnslu
og greinaskrif. Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu á gagna-
grunnum, t.d. Oracle og tölfræðiforritum, t.d. R/Splus.
Leitað er eftir einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt, hefur góða
samskipta- og skipulagshæfi leika og áhuga á auðlindum og vistkerfi
sjávar.
Laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi
stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfi ð veita Gísli A. Víkingsson
(gisli@hafro.is) og Ólafur S. Ástþórsson (osa@hafro.is).
Skrifl egum umsóknum með upplýsingum um menntun, fyrri störf
og nöfnum tveggja meðmælenda skal skila til Hafrannsóknastofn-
unarinnar, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, eða í tölvupósti
(hafro@hafro.is), eigi síðar 3. desember 2010. Æskilegt er að
umsækjendur geti hafi ð störf sem fyrst.
Hafrannsóknastofnunin er stærsta rannsóknastofnun landsins á
sviði haf-og fi skirannsókna og gegnir auk þess ráðgjafarhlutverki
varðandi skynsamlega nýtingu og verndun auðlinda hafsins. Mikill
hluti starfseminnar tengist alþjóðlegu samstarfi við erlendar haf-
rannsóknastofnanir og háskóla. Stofnunin rekur 5 útibú, tilrauna-
eldisstöð í eldi sjávarlífvera, tvö rannsóknaskip og hefur um 150
starfsmenn í þjónustu sinni.
Hafrannsóknastofnunin,
Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, s: 575 2000
Sölufulltrúi
Útgáfufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu
óskar eftir sölufulltrúa í fullt starf
Um er að ræða sölu- og kynningastarf
Fyrirtækið gefur út fjöldann allan af ýmis konar ritum
tengdum ferðaþjónustu, sjá heimasíðuna www.sagaz.is
Krefjandi starf í skemmtilegu umhverfi.
Reynsla af sölu og kynningarmálum æskileg
en ekki skilyrði. Árangurstengd laun.
Umsóknir skulu sendar á netfangið umsokn@sagaz.is
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Aðstoðarmaður
gæðastjóra
Um er að ræða 50% starf sem felst aðallega
í þrifum, bæði á lager og utandyra.
Hæfniskröfur:
• Vandvirkni og nákvæmni
• Áreiðanleiki, snyrtimennska og stundvísi
• Samstarfshæfileikar og jákvæðni
Upplýsingar veitir:
Rannveig Haraldsdóttir
rannveig@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með
21. nóvember nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is
www.bur.is
Upplýsingar um starfið veitir Jóhann M. Lenharðsson eða Haraldur Sigurjónsson sími 520 2100
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna.
Umsóknir um starfið óskast sendar, ásamt upplýsingum um fyrri störf og meðmælum, til Lyfjastofnunar merkt:
Starfsumsóknir. Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Umsóknareyðublað ásamt nánari upplýsingum um Lyfjastofnun má finna á vefsíðu stofnunarinnar www.lyfjastofnun.is
Laust starf hjá Lyfjastofnun
Staða eftirlitsmanns
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf (M.Sc.) í lyfjafræði eða
sambærileg menntun
• Þekking á lyfjafræði náttúruefna æskileg
• Þekking eða reynsla í gæðamálum æskileg
• Frumkvæði og metnaður í starfi
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Góð tölvufærni
• Góð íslensku- og enskukunnátta nauðsynleg
• Góð kunnátta í norðurlandamáli æskileg
Helstu verkefni eftirlitsteymis eru m.a.:
• Mat á því hvort vara telst lyf (flokkun vöru)
• Eftirlit með starfsemi lyfjafyrirtækja
• Eftirlit hjá heilbrigðisstofnunum
• Lyfjagát (aukaverkanatilkynningar lyfja)
• Þátttaka í erlendu samstarfi
• Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmann
Framkvæmdastjóri
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra auglýsir stöðu
framkvæmdastjóra við starfsstöð sína á Akureyri. Starfið
er jafnframt starf heilbrigðisfulltrúa sem sinnir daglegu
eftirliti.
Krafist er háskólamenntunar á sviði heilbrigðisvísinda,
raunvísinda, verkfræði eða sambærilegrar menntunar, í
samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 571/2002, um mennt-
un og skyldur heilbrigðisfulltrúa. Hafi viðkomandi ekki rétt-
indi heilbrigðisfulltrúa verður hann að vera reiðubúinn að
afla sér þeirra.
Farið er fram á munnlega og skriflega færni í íslensku,
grunnkunnáttu í tölvunotkun, hæfni til að vinna sjálf-
stætt og samstarfshæfileika í þverfaglegu umhverfi.
Í boði er krefjandi starf sem byggir á markvissum vinnu-
brögðum og miklum mannlegum samskiptum.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar
sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir Starfsmannaþjón-
usta Akureyrarbæjar í síma 460-1060.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Valdimar Brynjólfsson,
framkvæmdastjóri í síma 462 4431, netfang valdimar@
hne.is eða á skrifstofu að Furuvöllum 1, Akureyri.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á
heima síðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is
Aðgengi að tölvu og aðstoð við innskráningu um sókna
stendur til boða á Amtsbókasafninu og í þjónustu-
anddyri Ráðhússins.
Umsóknarfrestur er til 27. nóvember 2010