Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.11.2010, Qupperneq 63

Fréttablaðið - 13.11.2010, Qupperneq 63
LAUGARDAGUR 13. nóvember 2010 9 Upplýsingar um starfið og umsóknareyðublöð eru á skrifstofu ÍSTAKS, Engjateigi 7, 105 Reykjavík og í síma 530 2700 milli 8:15 og 17:00. Einnig er hægt er að senda inn umsókn á heimasíðu okkar www.istak.is. TRÉSMIÐIR – DANMÖRK ÍSTAK óskar eftir að ráða trésmiði til starfa við endurbætur á Industriens Hus í miðborg Kaupmannahafnar. Um er að ræða tímabundið verkefni og þurfa umsækjendur að geta hafið störf fljótlega. Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af mótauppslætti. Framkvæmdagleði í fyrirrúmi Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins • Álfabakka 16 • 109 Reykjavík • www.heilsugaeslan.is Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar eftir sérfræðingum í heimilislækningum á eftirtaldar heilsugæslustöðvar: Heilsugæslan Árbæ Laus er til umsóknar 100% afleysingarstaða heilsugæslulæknis við Heilsugæsluna Árbæ frá 15. desember n.k. eða eftir nánara samkomulagi, til eins árs. Krafist er að umsækjendur hafi sérfræðimenntun í heimilislækningum. Nánari upplýsingar um stöðuna veitir Gunnar Ingi Gunnarsson yfirlæknir Heilsugæslunnar Árbæ í síma 585 7800 eða á netfangi: gunnar.i.gunnarsson@heilsugaeslan.is Heilsugæslan Efstaleiti Laus er til umsóknar 100% staða heilsugæslulæknis við Heilsugæsluna Efstaleiti. Auk hefðbundinna heimilis- lækninga fer fram á stöðinni kennsla í sérnámi í heimilislækningum auk kennslu kandidata og læknanema. Krafist er að umsækjandi hafi sérfræðimenntun í heimilislækningum auk reynslu af kennslu í heimilislækningum. Nánari upplýsingar um stöðuna veitir Gunnar Helgi Guðmundsson yfirlæknir Heilsugæslunnar Efstaleiti í síma 585 1800 eða á netfangi: gunnar.h.gudmundsson@heilsugaeslan.is Heilsugæslan Firði Laus er til umsóknar 100% staða heilsugæslulæknis við Heilsugæsluna Fjörð. Krafist er að umsækjendur hafi sérfræðimenntun í heimilislækningum. Nánari upplýsingar um stöðuna veitir Guðrún Gunnarsdóttir, yfirlæknir í síma 540 9400 eða á netfangi: gudrun.gunnarsdottir@heilsugaeslan.is. Heilsugæslan Grafarvogi Laus er til umsóknar 100% afleysingarstaða heilsugæslulæknis við Heilsugæsluna Grafarvogi frá 1. júní 2011 n.k. eða eftir nánara samkomulagi, til eins árs. Krafist er að umsækjendur hafi sérfræðimenntun í heimilislækningum. Nánari upplýsingar um stöðuna veitir Atli Árnason yfirlæknir Heilsugæslunnar Grafarvogi í síma 585 7600 eða á netfangi: atli.arnason@heilsugaeslan.is. Heilsugæslan Hlíðum Laus er til umsóknar 100% heilsugæslulæknis við Heilsugæsluna Hlíðum. Krafist er að umsækjendur hafi sérfræðimenntun í heimilislækningum. Nánari upplýsingar um stöðuna veitir Stefán Finnsson yfirlæknir Heilsugæslunni Hlíðum í síma 585 2300 eða á netfangi: stefan.finnsson@heilsugaeslan.is Heilsugæslan Mjódd Laus er til umsóknar 100% staða heilsugæslulæknis við Heilsugæsluna Mjódd. Krafist er að umsækjendur hafi sérfræðimenntun í heimilislækningum. Nánari upplýsingar um stöðuna veitir Samúel J. Samúelsson, yfirlæknir Heilsugæslunni Mjódd í síma 513 1500 eða á netfangi: samuel.j.samuelsson@heilsugaeslan.is Heilsugæslan í Mosfellsumdæmi Laus er til umsóknar 100% staða heilsugæslulæknis við Heilsugæsluna í Mosfellsumdæmi. Krafist er að umsækjendur hafi sérfræðimenntun í heimilislækningum. Nánari upplýsingar um stöðuna veitir Þengill Oddsson, yfirlæknir Heilsugæslunnar í Mosfellsumdæmi í síma 510 0700 eða á netfangi: thengill.oddsson@heilsugaeslan.is Umsóknir ásamt staðfestum upplýsingum um læknismenntun, læknisstörf og vísinda- og rannsóknarstörf sendist til starfsmannasviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins Álfabakka 16, 109 Reykjavík, fyrir 29. nóvember n.k. Reykjavík, 13. nóvember 2010 Hefur þú áhuga á að starfa í Noregi? Radioservise Båtsfjord AS leitar að tæknimanni s.s. rafeindavirkja/rafvirkja með þekkingu á si- glingatækjum, fjarskiptatækjum og öðrum rafein- datækjum sem notuð eru um borð í skipum. Við bjóðum: • Fjölbreytilega vinnu við stærri sem minni skip/báta • Góð laun og starfsaðstöðu • Gott og á tíðum krefjandi starfsumhverfi Við leitum að starfsmanni sem hefur: • Þekkingu og menntun sem nýtist í starfi • Er sveigjanlegur og getur unnið sjálfstætt • Hefur góða enskukunnáttu Radioservice Båtsfjord AS er staðsett í Båtsfjord, á Varangernesi í Finnmark. Í Båtsfjord búa um 2.100 manns og er sjávarútvegur helsta atvinnugreinin. Frekari upplýsingar veitir (á norsku/ensku) Andor, í síma: +47 94820000 eða tölvupósti: andor.kristiansen@mobildata.no Útboð á laxveiði í Krossá á Skarðströnd Veiðifélag Krossár á Skarðsströnd leitar hér með tilboða í lax- og silungsveiði á starfssvæði félagsins fyrir árin 2012, 2013 og 2014, samkvæmt fyrirliggjandi út- boðsskilmálum og upplýsingum. Krossá á Skarðsströnd í Dalabyggð er í fögru umhverfi og rúmlega 200 km fjarlægð frá Reykjavík. Veitt er á flugu og maðk og er veitt á tvær stangir frá 1. júlí til 25. september. Útboðsgögn má nálgast hjá Landssambandi veiðifélaga og á skrifstofu Bændasamtaka Íslands, Bændahöllinni v/Hagatorg, 107 Reykjavík, sími 563 0300. Einnig má nálgast útboðsgögn hjá formanni Veiðifélags Krossár, Trausta V. Bjarnasyni, sími 434 1420 eða 663 1420. Áskilið er að tilboðum sé skilað á tilboðsformi sem fylgir útboðsgögnum. Tilboðum skal skilað til formanns Veiðifélagsins, Trausta V. Bjarnasonar, Á, 371 Búðardal. Frestur til að skila tilboði rennur út þriðjudaginn 30. nóvember 2010. Tilboðin verða opnuð lagardaginn 4. desember 2010, kl. 13:00 í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska. Fh. Veiðifélags Krossár, Trausti V. Bjarnason Útboð ALLT KLÁRT FYRIR ÞÍNA HEIMSÓKN V I N A L E G R I U M A L LT L A N D Um er að ræða góðan heimilismat, bakstur og almenn störf í eldhúsi. Sjálfstæð vinnubrögð, heiðarleiki og áhugi á matreiðslu er skilyrði. Unnið er á vöktum og er um ca. 70% starf að ræða en möguleiki á aukningu þegar líða tekur að sumri. Allar nánari upplýsingar veitir Gunnar í síma 562-3350 og á tölvupósti gunnar@fosshotel.is. Matráður óskastFosshótel, vinalegri um allt land Góður starfskraftur óskast til starfa í eldhúsi. HAFRANNSÓKNASTOFNUNIN Sérfræðingur Hafrannsóknastofnunin óskar eftir því að ráða sérfræðing til starfa við hvalarannsóknir á Nytjastofnasviði stofnunarinnar. Um er að ræða tímabundna ráðningu til eins árs og felst starfi ð að mestu leyti í tölulegri úrvinnslu gagna og greinaskrifum. Æskilegt er að umsækjandi haf lokið meistara- eða doktorsprófi í líffræði, tölfræði eða öðrum greinum raunvísinda sem nýtast í starfi . Lögð er áhersla á færni við gagnagreiningu, tölfræðilega úrvinnslu og greinaskrif. Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu á gagna- grunnum, t.d. Oracle og tölfræðiforritum, t.d. R/Splus. Leitað er eftir einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt, hefur góða samskipta- og skipulagshæfi leika og áhuga á auðlindum og vistkerfi sjávar. Laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar um starfi ð veita Gísli A. Víkingsson (gisli@hafro.is) og Ólafur S. Ástþórsson (osa@hafro.is). Skrifl egum umsóknum með upplýsingum um menntun, fyrri störf og nöfnum tveggja meðmælenda skal skila til Hafrannsóknastofn- unarinnar, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, eða í tölvupósti (hafro@hafro.is), eigi síðar 3. desember 2010. Æskilegt er að umsækjendur geti hafi ð störf sem fyrst. Hafrannsóknastofnunin er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði haf-og fi skirannsókna og gegnir auk þess ráðgjafarhlutverki varðandi skynsamlega nýtingu og verndun auðlinda hafsins. Mikill hluti starfseminnar tengist alþjóðlegu samstarfi við erlendar haf- rannsóknastofnanir og háskóla. Stofnunin rekur 5 útibú, tilrauna- eldisstöð í eldi sjávarlífvera, tvö rannsóknaskip og hefur um 150 starfsmenn í þjónustu sinni. Hafrannsóknastofnunin, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, s: 575 2000
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.