Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.11.2010, Qupperneq 64

Fréttablaðið - 13.11.2010, Qupperneq 64
 13. nóvember 2010 LAUGARDAGUR10 Matvöruverslun-Bakarí Til sölu glæsileg matvöruverslun og bakarí/kaffihús á flottum stað í Reykjavík. Um er að ræða fyrirtæki sem rekið er í leiguhúsnæði. Fyrirtækið er vel tækjum og búnaði búið í alla staði og með fína viðskiptavild. Allar nánari upplýsingar gefur Kristinn í síma 8200762 krk@stratum.is LÖGFRÆÐINGUR Hjá iðnaðarráðuneytinu er laust til umsóknar starf lögfræðings. Ráðuneytið fer með forræði á málum er varða nýsköpun- og þróun, iðnaðarmál, byggðamál, orkumál og ferðamál. Leitað er að metnaðarfullum lögfræðingi með góða samskiptahæfni og getu til að takast á við krefjandi og áhugaverð verkefni. Um er að ræða fjölbreytt starf sem m.a. felur í sér erlent sam- starf og verkefni sem tengjast innleiðingu gerða er heyra undir EES samninginn. Menntunar- og hæfniskröfur: • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði. Starfið krefst: • Færni og lipurðar í mannlegum samskiptum. • Góðrar íslensku- og enskukunnáttu og færni í að tjá sig í ræðu og riti. • Frumkvæðis, sjálfstæðis í vinnubrögðum og skipulagshæfni. Um er að ræða fullt starf og eru launakjör sam- kvæmt kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins og fjármálaráðherra. Nauðsynlegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Karlar, jafnt sem konur, eru hvattir til að sækja um starfið. Nánari upplýsingar veitir Kristján Skarphéðins- son, ráðuneytisstjóri, í síma 545 8500. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu berast iðnaðarráðuneytinu, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, eða í tölvupósti á póstfangið postur@idn.stjr.is eigi síðar en 1. desember nk. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. STARF VIÐ VEF- OG UPPLÝSINGAMÁL Hjá iðnaðarráðuneytinu er laust til umsóknar tímabundið starf við vef- og upplýsingamál. Ráðuneytið fer með forræði á málum er varða nýsköpun- og þróun, iðnaðarmál, byggðamál, orkumál og ferðamál. Leitað er að metnaðarfullum starfsmanni með góða samskiptahæfni og getu til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni. Starfið felur í sér þátttöku við mótun og skipulagningu verkferla við ytri og innri upplýsingamiðlun ráðuneytisins, vinnslu og miðlun frétta og upplýsinga til birtingar á vef og í skýrslu- formi. Jafnframt felst starfið í þátttöku í einstökum átaks- og stefnumótunarverkefnum ráðuneytisins og stofnana þess. Hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. • Starfsreynsla af fjölmiðlum eða upplýsingar- og kynningarmálum. Starfið krefst: • Sjálfstæðis í vinnubrögðum og skipulagshæfni. • Ritfærni og góðrar tölvukunnáttu. • Færni í notkun samfélagsmiðla. • Lipurðar og færni í mannlegum samskiptum. • Góðrar íslensku- og enskukunnáttu. Um er að ræða fullt starf sem þó er tímabundið til 1. júlí 2011. Launakjör verða samkvæmt kjara- samningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnar ráðsins og fjármálaráðherra. Nauðsynlegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Karlar, jafnt sem konur, eru hvattir til að sækja um starfið. Nánari upplýsingar veitir Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri, í síma 545 8500. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu berast iðnaðarráðuneytinu, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, eða í tölvupósti á póstfangið postur@ idn.stjr.is eigi síðar en 25. nóvember nk. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Nr. 4965 Fullbúið skrifstofuhúsnæði óskast á leigu fyrir Vinnumálastofnun Ríkissjóður óskar eftir að taka á leigu skrifstofuhúsnæði fyrir Vinnumálastofnun. Miðað er við að húsnæðið verði tekið á leigu til 10 ára, fullbúið til notkunar, án lauss búnaðar. Gerð er krafa um góða staðsetningu miðsvæðis á höfuðbor- garsvæðinu, gott aðgengi og næg bílastæði. Æskilegur afhendingartími er 1. mars 2011. Húsrýmisþörf stofnunarinnar fyrstu fimm árin er áætluð um 1800 fermetrar , en að þeim tíma liðnum mun stofnunin áskilja sér rétt til að minnka stærð hins leigða um a.m.k. 300-500 m2. Húsnæðið skal vera hefðbundið skrifstofuhúsnæði, þó með óvenju stóru móttökusvæði. Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla verða aðgengilegar á heimasíðu Ríkiskaupa www. rikiskaup.is mánudaginn, 15. nóvember nk. Fyrirspurnir varðandi verkefni 14965 skulu sendar á net- fangið: www.utbod@rikiskaup.is og verða svör birt á vef Ríkiskaupa. Fyrirspurnarfrestur rennur út 25. nóvember 2010, en svar- frestur er til og með 29. nóvember 2010. Leigutilboðum þar sem fram kemur stærð, ástand og stað- setning húsnæðis, ásamt leiguverði, skal skila til Ríkiskaupa, Borgartúni 7, 105 Reykjavík, eigi síðar en miðvikudaginn 1. desember 2010. Útboð skila árangri! Útboð skila árangri! Útboð nr. 14953 Bifreiðakaup ríkisins 2011 Ríkiskaup standa fyrir þessu útboði fyrir hönd þeirra stofnana og ríkisfyrirtækja er þurfa að kaupa eða leigja bifreiðar á rekstrarleigukjörum árið 2011. Áætlun um bifreiðaþörf næsta árs liggur ekki fyrir en gera má ráð fyrir allt að 100 bifreiðum til kaups/leigu á tíma- bilinu þó sú tala sé ekki bindandi. Samningar eru gerðir um tiltekna bifreiðaflokka í eitt ár án þess að magntölur séu þekktar. Um er að ræða kaup/leigu á bifreiðum af ýmsum stærðum og gerðum í samræmi við lýsingar á einstökum flokkum bifreiða og er bjóðendum heimilt að bjóða í einstaka flokka útboðsins. Nánari upplýsingar er að finna í útboðsgögnum sem verða aðgengileg á heimasíðu Ríkiskaupa www.rikiskaup.is miðvikudaginn 17. nóvember nk. Tilboð verða opnuð 13. janúar 2011, kl. 14.00 hjá Ríkis- kaupum að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Ríkisjörðin Teigasel II á Jökuldal, Fljótsdalshéraði er laus til ábúðar. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið auglýsir til ábúðar ríkisjörðina Teigasel II á Jökuldal, Fljótsdalshéraði. Um er að ræða lífstíðarábúð. Á jörðinni hefur verið rekið lítið fjárbú og er framleiðslu- réttur jarðarinnar 58,5 ærgildi. Á jörðinni eru loðdýrahús, sem ekki hafa verið nýtt í nokkur ár. Aðrar byggingar eru íbúðarhús og fjárhús. Umsóknarfrestur er til 30. nóvember nk. Áformað er að nýr ábúandi taki við jörðinni sem fyrst, samkvæmt nánara samkomulagi við landeiganda og fráfarandi ábúanda. Frekari upplýsingar birtast á heimasíðu ráðuneytisins, http://www.sjavarutvegsraduneyti.is /jarðeignir/auglýsingar. Umsóknareyðublöð eru á heimasíðu ráðuneytisins og liggja frammi í afgreiðslu á 5. hæð Skúlagötu 4, Reykjavík. Fyrir- spurnir sendist á netfangið postur@slr.stjr.is, upplýsingar eru einnig veittar í síma 545 8300. Útboð á laxveiði í Krossá á Skarðströnd Veiðifélag Krossár á Skarðsströnd leitar hér með tilboða í lax- og silungsveiði á starfssvæði félagsins fyrir árin 2012, 2013 og 2014, samkvæmt fyrirliggjandi út- boðsskilmálum og upplýsingum. Krossá á Skarðsströnd í Dalabyggð er í fögru umhverfi og rúmlega 200 km fjarlægð frá Reykjavík. Veitt er á flugu og maðk og er veitt á tvær stangir frá 1. júlí til 25. september. Útboðsgögn má nálgast hjá Landssambandi veiðifélaga og á skrifstofu Bændasamtaka Íslands, Bændahöllinni v/Hagatorg, 107 Reykjavík, sími 563 0300. Einnig má nálgast útboðsgögn hjá formanni Veiðifélags Krossár, Trausta V. Bjarnasyni, sími 434 1420 eða 663 1420. Áskilið er að tilboðum sé skilað á tilboðsformi sem fylgir útboðsgögnum. Tilboðum skal skilað til formanns Veiðifélagsins, Trausta V. Bjarnasonar, Á, 371 Búðardal. Frestur til að skila tilboði rennur út þriðjudaginn 30. nóvember 2010. Tilboðin verða opnuð lagardaginn 4. desember 2010, kl. 13:00 í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska. Fh. Veiðifélags Krossár, Trausti V. Bjarnason Tilkynningar Útboð Til sölu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.