Fréttablaðið - 13.11.2010, Page 86
54 13. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
Þ
að má taka svo til
orða að þessar ungu
dömur sé fæddar til
frægðar. Þær eiga
ekki bara það sam-
eiginlegt að eiga
rokkarafeður heldur eru þær mikil
tískuljón. Það er kannski ekki við
öðru að búast þegar feðurnir eru
Mick Jagger, Lenny Kravitz, Sting,
Bob Geldof og Gavin Rossdale. Við
eigum eflaust eftir að sjá og heyra
meira frá þessum fögru fljóðum í
framtíðinni og því um að gera að
leggja nöfn þeirra á minnið.
Töffarar með tískuvit
Það eiga sér stað kynslóðaskipti í tískuheiminum og ný andlit hafa tekið við
kyndli fyrirmynda í klæðaburði. Álfrún Pálsdóttir bendir hér á ungar og upp-
rennandi stjörnur sem eiga meira sameiginlegt en að stíga í tískuvitið.
Lágmúli 4 – 108 Reykjavík – s.585 4000 – www.urvalutsyn.is
HÚLLUMHÆ Í LÁGMÚLANUM!
14. nóvember kl. 14:00 – 17:00
Kær kveðja,
Starfsfólk Úrvals Útsýnar.
Úrvalsfólk! Það verður húllumhæ hjá okkur í
Lágmúla 4 á morgun frá klukkan 14:00. Þar gefst
einnig tækifæri á að bóka utanlandsferð á glæsilegu
tilboðsverði. Skemmtu þér í frábærum félagsskap og
gæddu þér á rjúkandi kaffi, nýbökuðum pönnukökum
og kleinum.
Við tökum vel á móti
ykkur og allir velkomnir!
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
STÝRÐU UMRÆÐUNNI Í ÁTT TIL ÞÍN
Meiri Vísir.
ROKKARINN Með sína rámu rödd og
látlausa yfirbragð hefur Coco Summers
skotist upp á stjörnuhimininn. Hún heitir
í raun Eliot Paulina Summer og er 20 ára.
Lagið I Blame Coco, þar sem hún fær lið-
styrk frá hinni sænsku Robyn, klifraði upp
vinsældalistana í sumar. Foreldrar hennar
eru engin önnur en Sting og Trudie Styler.
FREKJUSKARÐ Georgia May Jagger, dóttir
Micks Jagger og Jerry Hall er rísandi stjarna í
tískuheiminum þrátt fyrir að vera aðeins 18
ára. Hún starfar sem fyrirsæta og er frekju-
skarðið hennar aðalsmerki. Þess má geta að
Georgia Jagger er þriðja dóttir rokksöngvar-
ans til að leiðast út í fyrirsætubransann.
Feður stúlknanna hafa einnig verið
þekktir fyrir að vera tískutappar síns
tíma.
Mick Jagger gerði níðþröngar leð-
urbuxurnar og flegna boli ódauð-
lega þegar hann sveiflaðist um
sviðið með Rolling Stones. Lenny
Kravitz tók pelsvesta tískuna á
annað stig þegar hann mætti ítrek-
að ber að ofan klæddur pelsvesti
á rauða dregilinn eða tónleika, og
við skulum ekki
gleyma jakkafata-
jökkunum með
upprúlluðum
ermum hjá
Sting.
Það er því
ekki loku fyrir
það skotið að
tískugenin
séu arfgeng.
Sjaldan fellur eplið...
FYRIRSÆTAN Daisy Lowe er 21 árs og
hefur þegar unnið sem fyrirsæta í mörg
ár. Hún er dóttir söngvarans Gavins
Rossdale og fatahönnuðarins Pearl
Lowe. Hún hefur meðal annars verið
andlit Agent Provocateur, Burberry,
Converse og Ben Frost. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
TÖFFARINN Pixie Geldof er nýorðin 20
ára en hefur samt sem áður setið fyrir
hjá helstu fatahönnuðum heims og er
tíður gestur á fremsta bekk á tískuvikun-
um. Hún er dóttir Bob Geldof og Paulu
Yates. Ásamt systur sinni Peaches og
töffaranum Alexu Chung myndar hún
eitt tískulegasta teymi Bretlands.
KRAVITZ Zoe Kravits, 22 ára og er dóttir
rokkarans Lenny Kravitz og leikkonunn-
ar Lisu Bonet. Það kemur því engum
á óvart að hún starfar sem söng- og
leikkona í dag. Hefur meðal annars
leikið í myndunum The Brave One og
No Reservations. Fatnaður hennar á
rauða dreglinum hefur vekið eftirtekt
fyrir töffaralegt yfirbragð.