Fréttablaðið - 13.11.2010, Side 94
62 13. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
LÁRÉTT
2. hreinsiefni, 6. tímabil, 8. gogg, 9.
prjónavarningur, 11. í röð, 12. smáu,
14. rófa, 16. verslun, 17. af, 18. for,
20. persónufornafn, 21. slabb.
LÓÐRÉTT
1. sleipur, 3. utan, 4. ávaxtatré, 5.
þakbrún, 7. yfirmannslegur, 10. stykki,
13. mærð, 15. rótartauga, 16. hryggur,
19. guð.
LAUSN
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Finndu þann
sem á að keyra
heim í kvöld
Jájáá... láttu mig hafa byssuna Harry...
Þessir stóru lífvarða-
hattar eru flottir.
Kannski ætti ég
að fá mér svona
til að klæðast við
sundlaugina.
Lít ég út eins
og sundlaugar-
vörður?
Frekar eins
og útihitari.
Fyrstu orð barna eru
oftast „mama“ eða
„paba“ eða „kisa“ eða
eitthvað slíkt.
Já.Klap
p
Klapp
Klapp
Klapp
Klap
p
Klapp
Klapp
Klapp
Mér finnst að
fyrsta orðið
ætti að vera
afsakið.
LÁRÉTT: 2. sápu, 6. ár, 8. nef, 9. les,
11. rs, 12. litlu, 14. skott, 16. bt, 17.
frá, 18. aur, 20. ég, 21. krap.
LÓÐRÉTT: 1. háll, 3. án, 4. perutré, 5.
ufs, 7. reistur, 10. stk, 13. lof, 15. tága,
16. bak, 19. ra.
Umburðarlyndi er kjaftæði. Bókstaf-lega lýsir orðið eitt og sér ekki öðru en
því lyndi að umbera. En enginn vill vera
umborinn. Fólk vill vera samþykkt og við-
urkennt, ekki umborið. Ef einhver ætlar
að slá sjálfan sig til riddara fyrir þá góð-
mennsku sína að umbera mig getur sá hinn
sami tekið sitt umburðarlyndi og troð-
ið því þangað sem sólin ekki skín. Þannig
umburðarlyndi er ekkert annað en hroki og
yfirlæti undir þunnu lagi af bleikri máln-
ingu.
UMBURÐARLYNDI er svo mikið í tísku
um þessar mundir að því er jafnvel stillt
upp sem andstöðu forræðishyggju, rit-
skoðunar og alls annars sem setur frelsi
einstaklingsins til að gera það sem
honum sýnist, sjálfum sér til sálartjóns
og öðrum til ama, einhverjar skorður.
Fyrir vikið verður kynþáttahatur að skoð-
un sem verður að umbera, því fólk á
að hafa frelsi til að vera eins miklir
kynþáttahatarar og það kýs.
EN sumt á einfaldlega aldrei
að umbera. Mannréttinda-
brot á ekki undir neinum
kringumstæðum að umbera.
Heimsku, ofbeldi, grimmd
og fáfræði á ekki að umb-
era. Mannhatur á ekki að
umbera, hvort sem það bein-
ist að konum, útlendingum, hommum, guð-
leysingjum, múslimum eða rauðhausum.
Skoðanir sem byggja á heimsku og hatri
á ekki að umbera. Skoðanir sem vega að
mannréttindum, t.d. trúfrelsi og tjáningar-
frelsi, á ekki að umbera.
ÞAÐ á að samþykkja fólk án þess því fylgi
að grimmd þess, fáfræði og heimska sé
umborin. Skoðanir byggðar á þessu eru
hættulegar og dæmin sýna að þeim vex
fiskur um hrygg ef þær er umbornar. Þar
sem slíkar skoðanir ná lýðhylli eru þær
undantekningarlaust landinu og þjóðinni
til mikils skaðræðis. Mér ber engin skylda
til að umbera nýnasisma, útlendingahatur,
trúar- eða vantrúarofstæki eða neitt annað
sem vegur að grundvallarmannréttindum.
Ég áskil mér rétt, reyndar er mér tryggður
hann í Mannréttindayfirlýsingu Samein-
uðu þjóðanna, til að berjast gegn þessu öllu
með kjafti og klóm – að því tilskyldu að sú
barátta brjóti ekki réttindi annarra. Höfum
hugfast að réttindum, s.s. ferðafrelsi, er
hægt að fyrirgera með að misbeita þeim.
EF við umberum samtök gegn grundvall-
armannréttindum á borð við trúfrelsi, t. d.
því að moska rísi í Reykjavík, verðum við
á nákvæmlega sömu forsendum að umbera
Ku Klux Klan og samtök helfararafneitara,
svo fátt eitt af sama sauðahúsi sé nefnt. Það
er umburðarlyndi andskotans.
Umburðarlyndi andskotans
Heimsfrumsýnd 22. október