Fréttablaðið - 13.11.2010, Blaðsíða 98
66 13. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 13. nóvember 2010
➜ Tónleikar
16.00 Sólstafir og XIII halda fjöl-
skyldu- og unglingatónleika í dag á
Sódómu Reykjavík frá 16-18. Aðgangs-
eyrir er 500 krónur.
➜ Opnanir
12.00 Í Listasal Mosfellsbæjar opnar í
dag sýning Dóru Árna „Mitt land“. Sýn-
ingin stendur til 4. desember, en safnið
er opið frá 12-19 virka daga, 12-15 laug-
ardaga. Aðgangur er ókeypis.
➜ Opið hús
13.00 Í dag verður sameiginleg opnun
16 skjalasafna vítt og breitt um Ísland.
Borgarskjalasafn, Tryggvagötu 15, verð-
ur opið frá 13-17. Dagskráin er hluti af
norrænum skjaladegi.
➜ Málþing
13.00 Í Gerðubergi verður haldið rit-
þing um líf og feril Péturs Gunnarsson-
ar. Ritþingið hefst kl. 13 og stendur til
16. Stjórnandi er Torfi H. Tulinius.
➜ Leiðsögn
14.00 Í dag verður boðið upp á
leiðsögn á pólsku um grunnsýningu
Þjóðminjasafns Íslands „Þjóð verður
til- saga og menning í 1200 ár“. Leið-
sögn hefst kl. 14.00 og er öllum að
kostnaðarlausu.
➜ Útivist
10.15 Hjólaferð frá Hlemmi á vegum
LHM.is. Lagt er af stað kl. 10.15 og hjól-
að í 1-2 tíma um borgina. Allir velkomn-
ir og þátttaka ókeypis.
Sunnudagur 14. nóvember 2010
➜ Tónleikar
15.15 Caput-hópurinn heldur tónleika
í 15.15 tónleikasyrpunni í Norræna hús-
inu í dag kl. 15.15. Miðaverð er 1.500
krónur en 750 krónur fyrir eldri borgara,
öryrkja og nemendur.
17.00 Hljómsveitin Pollapönk verður
með útgáfutónleika í Salnum í Kópa-
vogi í dag. Tónleikarnir hefjast kl. 17.
Miðaverð er 2.000 krónur.
➜ Opnanir
14.00 Sýning Ísaks Óla Sævarssonar,
„… og svo verð ég í Norræna húsinu“
opnar í anddyri Norræna hússins í dag
kl. 14. Sýningin stendur til 2. janúar.
➜ Síðustu forvöð
14.00 Sýning Geirþrúðar Finnbogadótt-
ur Hjörvar „Heimsendingarþjónusta“ í
Suðsuðvestur lýkur í dag. Suðsuðvestur,
Hafnargötu 22 í Reykjanesbæ, er opið
frá 14-17.
➜ Dansleikir
20.00 Dansleikur Félags eldri borg-
ara í Reykjavík og nágrenni verður að
Stangarhyl 4, sunnudagskvöld kl. 20-23.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er
hægt að skrá þá inni á visir.is.
Sálin og Stórsveit Reykja-
víkur spila í Laugardalshöll
í kvöld. Aðeins verður um
þessa einu tónleika að ræða.
Hljómsveitin Sálin hans Jóns míns
heldur tónleika í Laugardalshöll í
kvöld í tilefni af útgáfu sinnar nýj-
ustu plötu, Upp og niður stigann.
Hún er fyrsta hljóðsversplata þess-
arar ástsælu sveitar í fimm ár.
Stórsveit Reykjavíkur með Sam-
úel J. Samúelsson fremstan í flokki
spilar á plötunni og hún verður Sál-
inni að sjálfsögðu til fulltingis á
tónleikunum. Samúel útsetti lúðra-
blásturinn á plötunni og segist hafa
skemmt sér vel við verkefnið. „Það
er alltaf gaman að fá að krukka í
annarra manna músík. Ég hef unnið
töluvert með þeim í gegnum tíðina,
gert strengjaútsetningar og brass-
dót en þetta var dálítið meira núna,
sem var bara mjög gaman.“
Samúel fékk fyrst að heyra prufu-
upptökur með nýjum lögum Sálar-
innar þegar hann dvaldi í Brasilíu
í byrjun ársins. „Ég var hlustandi á
demó af nýrri Sálarplötu liggjandi
á ströndinni í Ríó. Það var mjög
súrrealískt,“ segir hann.
Sálin vildi víkka út hljóm sinn á
plötunni með því að fá Stórsveitina
til liðs við sig. „Ég held að það hafi
alveg tekist. Það er stórt brasssánd
komið á þetta en þetta er samt Sál-
arplata. Þeir eru trúir sjálfum sér,“
útskýrir Samúel.
Hann býst við skemmtilegum
tónleikum í kvöld. Rennt verður
í gegnum nýju plötuna og einnig
verða um tíu lög til viðbótar á efn-
isskránni, þar á meðal eldri slagar-
ar á borð við Krókurinn og Ábyggi-
lega. „Fyrir aðdáendur Sálarinnar
verða þetta mjög skemmtilegir tón-
leikar. Það á líka bara að gera þetta
einu sinni, þannig að fólk má ekki
missa af þessu.“ freyr@frettabladid.is
Sálin er trú sjálfri sér
LEIÐA SAMAN HESTA SÍNA Stefán Hilmarsson, söngvari Sálarinnar, og Samúel J.
Samúelsson verða í góðum gír í Höllinni í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
„Ég er maður orðsins og málsins,
hef haft áhuga á því frá því að ég
var ungur maður,“ segir Hann-
es Hólmsteinn Gissurarson um
nýkomna bók, Kjarna málsins,
þar sem hann hefur tekið saman
fleyg orð á íslensku, sem og það-
sem mestu andar Vesturlanda
hafa sagt.
„Ég hef ekki bara áhuga á því
sem er fyndið og smellið, heldur
líka því sem er viturlega sagt.“
Hannes hefur verið að vinna að
bókinni undanfarin fimmtán ár og
segist hafa haft það fyrir reglu að
fara ekki í manngreinarálit við val
á tilvitnunum, heldur þjóna les-
andanum, sem „nennir ekkert að
lesa einhverja sérvisku í mér“.
Orðsnilld dreifist tiltölulega
jafnt á stjórnmálaflokka, að mati
Hannesar, nema hvað sennilega sé
hún meiri hjá vinstri mönnum.
„Ég held að það sé vegna þess
að vinstri menn lifa í heimi orðs-
ins og njóta þess að lesa ljóð og
Íslendingasögur. Einu bækurnar
sem hægri menn lesa eru banka-
bækur; þeir vilja græða á daginn
og grilla á kvöldin, eins og ég hef
áður sagt, þótt þau fleygu orð hafi
ekki ratað í bókina. Hægri menn
mættu taka vinstri mennina sér
til fyrirmyndar að þessu leyti og
huga betur að því hvernig á að
koma fyrir sig orði. Ég held því
að þetta sé bók sem hægri menn
þurfa að lesa, en vinstri menn
njóta að lesa.“
Hannes segist einnig hafa
greint mun á því hvernig kynin
orða hugsanir sínar. „Auðvitað
á maður ekki að alhæfa, en mér
finnst eins og konum láti betur
að orða sorg sína en körlum; það
má oft greina meiri þjáningu í til
dæmis ljóðum kvenna en karla.“
- bs
Vinstri menn eru orðsnjallari en hægri menn
HANNES HÓLMSTEINN Telur að konum
láti betur að túlka sorg sína en körlum
og oft megi greina meiri þjáningu í
ljóðum þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Listaháskóli Íslands heldur opinn
dag í dag frá klukkan ellefu til
16. Þar gefst áhugasömum tæki-
færi til koma í skólann og kynn-
ast starfsemi hans.
Allar deildir skólans verða
kynntar á einum stað, í húsnæði
skólans í Laugarnesi, Laugar-
nesvegi 91. Nemendur, kennar-
ar, námsráðgjafi og fleiri verða
til viðtals og upplýsingagjafar.
Fjölbreytt dagskrá og kynning
verður á deildum skólans og má
þar nefna uppákomur, sýnishorn
af inntöku, tónleika, sýningar á
verkefnum nemenda og fleira.
Opið hús í LHÍ
ÞÖKKUM FRÁBÆRAR VIÐTÖKUR!
Viðbrögð áhorfenda á Facebook:
„Stórkostlegur Rigoletto! Þetta kvöld verður lengi í minnum haft“
- Eyþór Eðvarðsson
„Fórum á fimmtudaginn var og þessi sýning er stórkostleg :) takk kærlega fyrir
frábæra Óperu“ - Svandís Gudmundsdóttir
„Takk fyrir magnaða kvöldstund“- Bryndís Blöndal
„Sá sýninguna 14. október og einfaldlega BRAVÓ!! Takk kærlega fyrir mig :)“
- Vilborg Sigurðardóttir
„Algjörlega stórkostlegur Rigoletto“ - Guðbjörg Tryggvadóttir
„Þetta var ekkert minna en Rigoletto í heimsklassa! Þvílíkur leikur, söngur og
umgerðin öll. Hrífandi tilfinningarússibani allt kvöldið“ - Ragna Erwin
„Algerlega frábært“ - Berglind Guðmundsdóttir
„Þessu kvöldi mun ég aldrei gleyma…ég var gjörsamlega stjarfur allan tímann“
- Kristján Þorgils Guðjónsson
„Glæsileg sýning. Gangi ykkur sem best og haldið áfram að slá í gegn.“
- Ómar Þór Guðmundsson
„Er alveg í skýjunum eftir sýningu kvöldsins. Mögnuð uppfærsla.
Takk fyrir mig.“ – Sigurveig Hjaltested
„B R A V Ó !!!!!!“ - Sigurður Sumarliðason
WWW.OPERA.IS SÍMI MIÐASÖLU 511 4200
Í kvöld – UPPSELT
Sunnudagskvöld – UPPSELT.
Síðustu aukasýningar
19. og 21. nóvember.
Nokkur sæti laus.
RIGOLETTO
ÓLAFUR KJARTAN SIGURÐARSON · ÞÓRA EINARSDÓTTIR
JÓHANN FRIÐGEIR VALDIMARSSON · JÓHANN SMÁRI SÆVARSSON
SESSELJA KRISTJÁNSDÓTTIR · BERGÞÓR PÁLSSON