Fréttablaðið - 13.11.2010, Page 100
folk@frettabladid.is
68 13. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
Bíó ★★★★
Gnarr
Leikstjóri Gaukur Úlfarsson.
Jón Gnarr var einu sinni nörd.
Nú er hann borgarstjóri í Reykja-
vík. Kosningaslagur hans í vor er
ógleymanlegur en aðferðir Jóns
og Besta flokksins í baráttunni
um borgina þóttu nýstárlegar og
flestir töldu að um grínframboð
væri að ræða. En Jón og félag-
ar voru ótvíræðir sigur-
vegarar kosninganna og
ráða nú ríkjum í Reykja-
vík, sumum til gleði en
öðrum til armæðu.
Í heimildarmynd-
inni Gnarr fylgjumst
við með Jóni frá því
hann tilkynnir um
framboð flokksins
og alveg fram á sjálfan
kjördaginn. Jón er afskap-
lega sjarmerandi maður
og útgeislun hans virðist
aukast með aldrinum. Hann á erf-
itt með að venjast lífi stjórnmála-
mannsins en virðist þó skemmta
sér í félagsskap flokkssystkina
sinna. Mest áberandi er Heiða
Kristín, kosningastjóri flokksins
og fyrrverandi aðstoðarmaður
borgarstjóra. Heiða skartar einu
fegursta brosi höfuðborgarsvæð-
isins, og við sjáum nóg af
því í myndinni enda er Jón
ávallt á útopnu í brandara-
deildinni.
Þar liggur helsti styrkur
myndarinnar. Jón er svo
hrikalega fyndinn.
Honum leiðist oft
innan um mótfram-
bjóðendur sína og
virðist hafa afar
lítið þol fyrir pólitísku karpi.
Hann reynir að beina umræðunni
í skemmtilegri áttir og tekst það að
vissu leyti. Keppinautarnir virðast
stundum fá sig fullsadda af fífla-
látum Jóns, en þegar líða tekur á
myndina er eins og lund þeirra
léttist. Húmor og gleði Jóns er
nefnilega svo bráðsmitandi.
Það er óhætt að mæla með
Gnarr fyrir stuðningsmenn Jóns
en jafnvel enn frekar fyrir þá
sem hafa engan húmor fyrir setu
hans í borgarstjórastólnum. Mynd-
in sýnir það glögglega að Jón var
ekkert að grínast. Mér fannst þó
koma kafli fyrir miðja mynd þar
sem stytta-og-sleppa deildin hefði
mátt láta betur til sín taka. En ég
ætla ekki að kvarta yfir neinu öðru
því myndin er stórskemmtileg og
líkt og Suðu-Sigfús sagði eftir-
minnilega: Maður biður ekki um
mikið meira. Haukur Viðar Alfreðsson
Niðurstaða: Fyndin mynd og vel
gerð. Framhaldsmynd er óumflýjan-
leg.
Gleði og grátur í Gnarrenburg
SJARMERANDI
STJÓRNMÁLAMAÐUR
Kvikmyndin um Jón
Gnarr og framboð Besta
flokksins er bæði fyndin
og vel gerð að mati
gagnrýnanda.
Heimildarmyndin Gnarr var frumsýnd í Sambíóinu í
Grafarvogi í gær. Eftir myndina hittust aðstandendur og
velunnarar myndarinnar á Hótel Borg og skemmtu sér
eins og konungborið fólk.
Gnarrfólkið skemmtir sér
VINKONURNAR MÆTTAR Tobba Marinós mætti úr eigin útgáfuhófi í partýið og sést hér ásamt Írisi, vinkonu sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
KÁTIR PILTAR Leikstjórinn Gaukur
Úlfarsson var að vonum kátur. Það var
Sigvaldi J. Kárason líka.
ÞVÍLÍKT STUÐ Berglind Häsler og Hug-
leikur Dagsson tóku orð ljósmyndara
bókstaflega þegar hann bað þau að
stilla sér upp.
FYRIR OG EFTIR? Sindri Freyr og Sölvi
Blöndal sýna hér áhrifamátt rakvéla á
afar myndrænan hátt.
VINNUFÉLAGARNIR Óttarr Proppé og
Jón Gnarr eru aðalstjörnurnar í Gnarr.
Þeir klæddu sig upp á í tilefni dagsins.
REFFILEG Björn Blöndal og Svanborg
Sigurðardóttir sýndu hvernig á að gera
þetta.
Í GÓÐU STUÐI Hrafnkell Kaktus Einars-
son og Karl Sigurðsson fóru í störu-
keppni við ljósmyndara. Keppnin er enn
þá í gangi.
Daniel Radcliffe fékk ekki heitustu
ósk sína uppfyllta þegar honum
var tilkynnt að hann fengi ekki
eitt af þeim gulleggjum sem notuð
voru í Harry Potter and the Goblet
of Fire. Honum var nefnilega til-
kynnt að eggið yrði gefið á safn.
Breski leikarinn, sem senn kveður
Harry Potter-æðið, vildi eiga eggið
til minningar um vinnu sína.
Radcliffe var þegar búinn að
ná sér í eitt þegar hann var vin-
samlegast beðinn um að skila því.
Enda fékk hann að vita að eggið
kostaði tíu þúsund pund. „Ég lenti
í smá vandræðum af því að ég var
gripinn með drekaeggið. Ég vissi
ekki hversu dýrmætt það var og
heldur ekki að það væri að fara á
safn. Ég varð þess vegna að skila
því.“ Radcliffe var ekki sá eini sem
reyndi að stela gulleggi því Rupert
Grint var einnig gert að skila einu
slíku sem hann stal af tökustað.
Gripinn glóðvolgur
1 RIHANNA SKAUST BEINT Á TOPP bandaríska Billboard-listans í vikunni með nýja lagið sitt, What‘s My Name. Hún er einnig í fjórða sæti listans
með lagið The Only Girl (In the World).
Spennandi
SAGA
MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
„Myndin var framúrskarandi vel gerð.
Hún náði heljartökum á manni
strax á fyrstu mínútu.“
PLÚS: 60 MÍNÚTUR AF AUKAEFNI
Örlagasaga fólksins um borð í Goðafossi þegar
skipið var skotið niður af þýskum kafbáti árið 1944.
Saga sem aldrei má gleymast.
NÝTT á DVD
OPO Morgunblaðinu