Fréttablaðið - 13.11.2010, Page 112
13. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
FÓTBOLTI Hádegisleikurinn í enska
boltanum er viðureign Aston Villa
og Man. Utd. Lærisveinar Sir Alex
Ferguson hjá Man. Utd hafa ekki
enn tapað leik í vetur og eru búnir
að spila 25 leiki í röö án þess að
tapa. Síðast tapaði liðið fyrir Chel-
sea í apríl á þessu ári.
United mætir í dag stjóra sem
gekk vel með United er hann stýrði
Liverpool á sínum tíma. Sá heitir
Gerard Houllier og hann mætir
nú Ferguson í fyrsta skipti í sex
og hálft ár.
Alls mættust Man. Utd og Liver-
pool tólf sinnum er Houllier stýrði
Liverpool. Ferguson vann fimm
leiki, Houllier fimm og tveir end-
uðu með jafntefli. Aðeins Ars-
ene Wenger, stjóri Arsenal, hefur
unnið fleiri leiki gegn Ferguson.
Þó svo árangur Houllier gegn
Man. Utd sé góður verður ekki það
sama sagt um Aston Villa. Villa
hefur aðeins unnið einn af síðustu
29 viðureignum liðanna.
Það hjálpar ekki til fyrir Villa
að níu leikmenn liðsins eru meidd-
ir og gætu misst af leiknum í dag.
Man. Utd verður klárlega án Paul
Scholes sem er í leikbanni eftir
að hafa fengið fimm gul spjöld
það sem af er vetri. Patrice Evra
og Rafael eru einnig tæpir vegna
meiðsla.
Liverpool sækir Stoke heim þar
sem Eiður Smári Guðjohnsen verð-
ur ekki í byrjunarliði Stoke frekar
en fyrri daginn.
Liverpool hefur verið að sækja í
sig veðrið í síðustu leikjum þó svo
það hafi gert jafntefli við Wigan í
vikunni.
„Ég er að vonast til þess að leik-
mennirnir verði ferskir í leiknum.
Við byrjuðum tímabilið skelfilega
og þurfum að hrista þann skrekk
af okkur,“ sagði Roy Hodgson,
stjóri Liverpool.
„Útileikir í þessari deild eru allt-
af erfiðir og við verðum að leggja
mikið á okkur til þess að ná góðum
úrslitum. Ég veit hvernig Stoke
spilar og vonast eftir að ná góðum
úrslitum í þessum leik.
Hin víðfrægu innköst Rory
Delap, leikmanns Stoke, munu lík-
lega skapa usla eins og venjulega
en Martin Skrtel, varnarmaður
Liverpool, segir að vörnin sé klár
í slaginn.
„Við þurfum allir að vera á rétt-
um stað á réttum tíma. Það er ekki
auðvelt að verjast þessum löngu
innköstum og við verðum að vera
varkárir og vinna vel með Pepe í
markinu,“ sagði Skrtel. - hbg
Leikir helgarinnar
Laugardagur:
Aston Villa - Man. Utd
Man. City - Birmingham
Newcastle - Fulham
Tottenham - Blackburn
West Ham - Blackpool
Wigan - WBA
Wolves - Bolton
Stoke - Liverpool
Sunnudagur:
Everton - Arsenal
Chelsea - Sunderland
Man. Utd hefur ekki tapað í síðustu 25 leikjum:
Fornir fjendur
mætast á Villa Park
MÆTAST Á NÝ Gerard Houllier gekk vel
gegn United með Liverpool. Endurtekur
hann leikinn með Aston Villa?
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Naustabryggja 14
110 Reykjavík
Falleg og rúmgóð íbúð á góðu verði
Stærð: 112,5 fm
Fjöldi herbergja: 4
Byggingarár: 2002
Fasteignamat: 24.100.000
Verð: 23.900.000
RE/MAX SENTER KYNNIR: Fallega og stílhreina 4ja herbergja íbúð á jarðhæð ásamt stæði í bílageymslu.
Íbúðin skiptist í hol með parketi og fataskáp, sjónvarpshol sem er stúkað af frá stofu, samliggjandi stofu og
borðstofu með parketi og stórum gluggum. Eldhúsið er opið við stofu, með vandaðri Maghony innréttingu og
efri skápum upp í loft. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf og þar er innrétting og baðkari með sturtu.
Hjónaherbergi er parketlagt, með góðum fataskápum og útgengi út á sérverönd í bakgarði. Tvö barnaherbergi
með parketi og fataskápum. Þvottahús með flísum og hvítri innréttingu með góðu skápaplássi.Í kjallara er góð
sér geymsla með hillum og sameiginleg geymsla fyrir dekk ofl. Einnig er góð sameiginleg hjólageymsla.
Stæði í upphitaðri bílageymslu. Góð sér timburverönd er í vel hirtum og fallegum bakgarði þar sem einnig er
stór sameiginleg verönd. Sameign er öll mjög snyrtileg og vel umgengin. Allar upplýsingar um eignina gefur
Ástþór Reynir í síma 8996753 eða á arg@remax.is og Gunnar Sverrir 8622001 eða á gunnar@remax.is
Senter
Ástþór Reynir
Lögg. fasteignasali
arg@remax.is
Gunnar Sverrir
Sölufulltrúi
gunnar@remax.is
Opið
Hús
Opið hús á sunnudaginn kl 15.00 - 15.30
899 6753
8622001
FÓTBOLTI Ian Jeffs er kominn
„heim“ sögðu Eyjamenn í gær er
Ian Jeffs skrifaði undir samning
við félagið. Hann var hjá félaginu
frá 2003 og til 2008 er hann gekk í
raðir Fylkis. Þaðan fór hann í Val
en er nú kominn aftur til Eyja.
„Það er mjög gaman að vera
kominn aftur til Eyja og spenn-
andi. Þetta var ekkert rosalega
erfitt val. Það voru nokkur félög
sem vildu fá mig en mér leist best
á ÍBV. Mér leið alltaf vel í Eyjum
og því var ég til í að fara þang-
að,“ sagði Jeffs við Fréttablaðið
í gær en það skemmdi ekki fyrir
að konan hans er frá Eyjum og
var því vel til í að fara aftur til
Eyja.
„Það er líka mjög spennandi
tímabil fram undan í Vestmanna-
eyjum enda er liðið í Evrópu-
keppni. Mér líst líka vel á Heimi
en ég spilaði undir hans stjórn á
sínum tíma. Hann er mjög góður
þjálfari. Þetta verður virkilega
skemmtilegt,“ sagði Jeffs.
Hann gerir aðeins eins árs
samning við ÍBV þar sem ekki
er loku skotið fyrir að hann fari
í nám erlendis á næsta ári. Jeffs
er að vonast til þess að útskrif-
ast sem íþróttafræðingur næsta
vor og hann íhugar mastersnám
erlendis í framhaldi af því. Hann
tekur þó aðeins eitt ár í einu og
útilokar ekki að vera lengur en
þetta eina ár í Eyjum.
Jeffs er sannfærður um að
næsta sumar verði skemmtilegt
og sérstaklega hlakkar hann til að
mæta aftur á Þjóðhátíð sem leik-
maður ÍBV.
„Ég fór á Þjóðhátíð í fyrra en
það er miklu skemmtilegra að
fara á Þjóðhátið þegar maður er
leikmaður ÍBV,“ sagði Jeffs og hló
dátt. - hbg
Ian Jeffs gerði eins árs samning við ÍBV í gær:
Skemmtilegra á Þjóðhátið
er maður spilar fyrir ÍBV
AFTUR TIL EYJA Jeffs spilar með ÍBV á nýjan leik næsta sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM