Fréttablaðið - 13.11.2010, Page 118

Fréttablaðið - 13.11.2010, Page 118
86 13. nóvember 2010 LAUGARDAGUR PERSÓNAN Margrét Rúnarsdóttir Aldur: 23 ára Starf: Nemi og söngkona. Fjölskylda: Kærastinn, Birkir Rafn Gíslason. Foreldrar: Sæmundur Rúnar Þórisson, kennari og tónlistarmaður, og Arna Vignisdóttir, fatahönnuður og kennari. Búseta: Smárinn í Kópavogi. Stjörnumerki: Vog Margrét syngur eitt vinsælasta lag lands- ins um þessar mundir, Ein stök ást með hljómsveit sinni Lifun. „Það voru miklir fagnaðarfundir á tökustað. Eins og við var að búast,“ segir Karl Ágúst Úlfsson, liðsmað- ur Spaugstofunnar, en Randver Þorláksson snýr aftur í Spaugstof- una í kvöld þegar hann endurtek- ur eitt af sínum frægustu hlutverk- um þessa spéspegils, rónann Örvar. Randver var sem kunnugt er látinn fara þegar Spaugstofan var á RÚV en hinir fjórir, Karl, Sigurður Sig- urjónsson, Pálmi Gestsson og Örn Árnason héldu áfram. Randver hefur ekki birst í nein- um gestahlutverkum fyrr en nú og því er um sögulegan viðburð að ræða. „Hann birtist í einum skets, sem er í svona tvær til þrjár mín- útur. Okkur fannst kominn tími á að Bogi og Örvar myndu hittast aftur og okkur gafst tækifæri til þess nú.“ Spaugstofan hefur brydd- að upp á þeirri nýbreytni að bjóða landsþekktum Íslendingum í þátt- inn og hefur Jónínu Benediktsdótt- ur, Loga Bergmanni og fleirum brugðið fyrir sem þeim sjálf- um. Karl segir hins vegar að nærvera Randvers hafi fyllt stjörnukvóta þáttarins. Randver sjálfur vildi gera sem minnst úr aðkomu sinni að þættinum. Og bætir því við að hann hafi ekki séð Spaugstofuna né Stöð 2 í nokkur ár. Randver seg- ist hafa tekið ágætlega í bón vina sinna en biður þó fólk um að gera sér ekki of miklar væntingar, hann sé í mýflugumynd og eigi erfitt með ímynda sér að þetta sé eitthvað sem þjóðin hafi beðið eftir. - fgg Randver snýr aftur í Spaugstofuna LANGÞRÁÐIR ENDURFUNDIR Bogi og Örvar, fyndnustu rónar landsins, verða sameinaðir á ný eftir að hafa verið stíað í sundur fyrir þremur árum. Randver Þor- láksson birtist loksins aftur í Spaugstofunni eftir nokkurra ára fjarveru. Sólveig Eiríksdóttir matreiðslumaður og Dorrit Moussaieff forsetafrú héldu létta sýnikennslu í mat- argerð á veitingastaðnum Gló í fyrrakvöld. Námskeið- ið tengist alþjóðlegu athafnavikunni sem hefst í næstu viku og á meðal þess sem þær stöllur buðu upp á var fagurgrænn heilsudrykkur. Sólveig er talsmaður athafnavikunnar og segir hún sýnikennsluna hafa gengið vonum framar og segir forsetafrúna hafa staðið sig með prýði. „Þetta gekk rosalega vel og Dorrit er svo sjarmerandi að það heill- uðust allir af henni. Hún er frjálsleg og skemmtileg en heldur alltaf virðingu sinni.“ Sólveig og forsetafrúin báru fram grænan safa sem innihélt grænkál, gúrku, epli og myntu svo fátt eitt sé nefnt og rann hann ljúflega niður kverkar gestanna. „Dorrit drakk fullt glas sjálf og fannst drykkurinn mjög góður. Maður sér á henni að hún hlýtur að lifa mjög heilbrigðu lífi, hún lítur alveg rosalega vel út og ég hélt hún væri miklu yngri en hún er,“ segir Sólveig að lokum. Uppskriftina að safanum má nálgast á vef- síðunni www.lifraent.is. - sm Dorrit er alltaf jafn ungleg SJARMERANDI Dorrit Moussaieff forsetafrú aðstoðaði Sólveigu Eiríksdóttur við létta sýnikennslu í matargerð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Fös 12.11. Kl. 20:00 Fös 19.11. Kl. 20:00 Lau 20.11. Kl. 20:00 Sun 21.11. Kl. 15:00 br. sýn.t. Lau 27.11. Kl. 20:00 Sun 28.11. Kl. 20:00 Lau 4.12. Kl. 20:00 Sun 5.12. Kl. 20:00 Lau 13.11. Kl. 13:00 Lau 13.11. Kl. 15:00 Sun 14.11. Kl. 13:00 Sun 14.11. Kl. 15:00 Lau 20.11. Kl. 13:00 Lau 20.11. Kl. 15:00 Sun 21.11. Kl. 13:00 Lau 27.11. Kl. 13:00 Lau 27.11. Kl. 15:00 Sun 28.11. Kl. 13:00 Sun 28.11. Kl. 15:00 100 sýn. Sun 5.12. Kl. 13:00 br. sýn.t. Sun 5.12. Kl. 15:00 Mið 29.12. Kl. 16:00 br. sýn.t. Fim 30.12. Kl. 16:00 br. sýn.t. Fös 12.11. Kl. 20:00 Lau 13.11. Kl. 20:00 Fös 19.11. Kl. 20:00 Lau 20.11. Kl. 20:00 Fös 26.11. Kl. 20:00 Lau 27.11. Kl. 20:00 Fös 3.12. Kl. 20:00 Lau 4.12. Kl. 20:00 Sun 14.11. Kl. 19:00 Mið 24.11. Kl. 19:00 Aukas. Fim 25.11. Kl. 19:00 Aukas. Fös 10.12. Kl. 19:00 Aukas. Lau 11.12. Kl. 19:00 Aukas. Sun 12.12. Kl. 19:00 Aukas. Lau 13.11. Kl. 20:00 Fim 18.11. Kl. 20:00 Aukas. Fös 26.11. Kl. 20:00 Fim 2.12. Kl. 20:00 Aukas. Fös 3.12. Kl. 20:00 U U U Finnski hesturinn (Stóra sviðið) Fíasól (Kúlan) Hænuungarnir (Kassinn) Íslandsklukkan (Stóra sviðið) Gerpla (Stóra sviðið) U Ö Ö Ö Ö Ö Lau 27.11. Kl. 13:00 Lau 27.11. Kl. 14:30 Sun 28.11. Kl. 11:00 Sun 28.11. Kl. 13:00 Sun 28.11. Kl. 14:30 Lau 4.12. Kl. 11:00 Lau 4.12. Kl. 13:00 Lau 4.12. Kl. 14:30 Sun 5.12. Kl. 11:00 Sun 5.12. Kl. 13:00 Sun 5.12. Kl. 14:30 Lau 11.12. Kl. 11:00 Lau 11.12. Kl. 13:00 Lau 11.12. Kl. 14:30 Sun 12.12. Kl. 11:00 Sun 12.12. Kl. 13:00 Sun 12.12. Kl. 14:30 Lau 18.12. Kl. 11:00 Lau 18.12. Kl. 13:00 Lau 18.12. Kl. 14:30 Sun 19.12. Kl. 11:00 Sun 19.12. Kl. 13:00 Sun 19.12. Kl. 14:30 Leitin að jólunum Ö Ö Ö Ö U Ö Ö Ö Ö Ö Ö U Ö U Ö U U U Ö Ö Ö Ö Ö U U U U Ö Ö Ö Ö Ö U Lér konungur (Stóra sviðið) Sun 26.12. Kl. 20:00 Frums. Þri 28.12. Kl. 20:00 2. sýn Mið 29.12. Kl. 20:00 3. sýn Lau 8.1. Kl. 20:00 4. sýn Sun 9.1. Kl. 20:00 5. sýn Fim 13.1. Kl. 20:00 6. sýn Fös 14.1. Kl. 20:00 7. sýn Fös 21.1. Kl. 20:00 U Ö Ö Ö Ö Ö Ö Fös 19.11. Kl. 20:00 Lau 20.11. Kl. 20:00 Sun 21.11. Kl. 14:00 Íslandsklukkan – á Akureyri (Hof, menningarhús) U Ö Ö U Ö Ö Ö Ö U U U U U Ö Bókakynning á Súfistanum, Laugavegi 18, sunnudag kl. 20 Jónína Leósdóttir – Allt fínt … en þú? Árni Þórarinsson – Morgunengill Kristín Eiríksdóttir – Doris deyr Hugrún Hrönn Kristjánsdóttir – Stolnar raddir Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir – Mörg eru ljónsins eyru Bragi Ólafsson – Handritið að kvikmynd Arnar Featherby og Jóns Magnússonar um uppnámið á veitinga- húsinu eftir Jenný Alexson Allir hjartanlega velkomnir Brot af því besta FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MÁ BJÓÐA YKKUR MEIRI VÍSI? Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem setja „like“ við Vísi á Facebook geta unnið óvænta vinninga í hverri viku. „Litasamsetningarnar og áferð- in eru til að mynda eins og það er alveg augljóst hvaðan þeir fengu hugmyndina. Mér finnst samt und- arlegast að þeir skyldu ekki finna norska heitið á þvottakaffihúsi og nefna það eftir því,“ segir Frið- rik Weisshappel, eigandi tveggja Laundromat Café-staða í Kaup- mannahöfn. Hann hefur fengið óvænta samkeppni í kaffihúsa- bransanum því fyrir fimm mánuð- um var opnað Café Laundromat á besta stað í Ósló. Miðað við heima- síðu norska staðarins, laundromat. no, er augljóst hvaðan fyrirmynd- in er komin. Friðrik segist ekkert geta gert, hann sé nýbúinn að fá einkaleyfi fyrir þessari hugmynd á Evrópu- sambandssvæðinu og á Íslandi. „Þær reglur ná hins vegar ekki til Noregs enda Norðmenn ekki í ESB.“ Friðrik hefur þó reynt að taka þessu með jafnaðargeði, hefur meira að segja skrifað á Facebook-síðu norska staðarins og boðið þeim að stela frá sér öðrum hugmyndum. Fréttablaðið hafði samband við Café Laundromat í Ósló og fékk að tala við framkvæmdastjórann Kemal. Hann byrjaði á því að til- kynna blaðamanni hversu vel stað- urinn hefði gengið en Café Laun- dromat hefur vakið mikla athygli á norskum vefsíðum. Þegar Kemal er spurður út í augljós líkindi kaffihússins hans og Laundromat Café í Kaupmannahöfn viðurkenn- ir hann þau fúslega. „En eigandi þess kaffihúss á engan einkarétt á þessari hugmynd. Það eru líka til svona kaffihús í Bandaríkjunum þannig að þetta er ekkert sérstak- lega frumlegt.“ Kemal verður hins vegar ákaf- lega fámáll þegar hann er spurður hvort ekki hefði verið heppilegra að nota norskt heiti yfir þvotta- kaffihús. „Sko, við fengum tæki- færi til að fínpússa þessa hugmynd aðeins og gera hana nútímalegri og ég tel að okkur hafi tekist FRIÐRIK WEISSHAPPEL: ER EKKI MEÐ EINKALEYFI Í NOREGI Norðmenn stela Laun- dromat-hugmynd Frikka það.“ Kemal segir það hins vegar ekki á dagskránni að opna útibú á Íslandi, það er hins vegar í plön- unum hjá Friðriki því eins og kom fram í Fréttatímanum ætlar Frið- rik ásamt eigendum Vegamóta og Austurs að opna Laundramot Café í Jakobsen-húsinu við Aust- urstræti. freyrgigja@frettabladid.is AUGLJÓS SVIPUR Áferðin og litasamsetningar á norska Laundromat-staðnum (fyrir neðan) eru greinilega undir miklum áhrifum frá Laundromat Café-stöðum Friðriks Weisshappel (efst) í Kaupmannahöfn. Íslenski kaffihúsamaðurinn getur hins vegar ekkert gert enda bara með einkaleyfi á Íslandi og í Evrópusambandinu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.