Fréttablaðið - 20.11.2010, Blaðsíða 8
8 20. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
1 Eru Gullfoss og Geysir friðlýst
svæði?
2 Með hvaða félagsliði spilar
Einar Hólmgeirsson?
3 Hvað heitir nýjasta mynd
leikstjórans Tony Scott?
SVÖRIN:
1. Nei, Geysir hefur ekki verið friðlýstur.
2. Ahlen Hamm 3. Unstoppable
Hafðu samband
Fjármálafræðsla fyrir þig
Lærðu á netbankann þinn
Á fræðslufundinum verður farið yfir grunnatriðin
varðandi notkun Netbanka Arion banka.
Fræðslan hentar þeim sem eru að stíga sín fyrstu
skref í netbankanum. Markmið fræðslunnar er
að þátttakendur geti eftir fræðslufundinn sinnt
sínum helstu bankaviðskiptum í netbankanum
s.s. að greiða reikninga, millifæra, fylgjast með
hreyfingum o.fl.
24. nóvember kl. 17:30 í Borgartúni 19,
Reykjavík.
Fyrirlesarar eru Guðrún Elín Ingvarsdóttir og
Guðrún Magnúsdóttir. Fundurinn stendur yfir
í 90 mínútur.
Allir velkomnir – ókeypis aðgangur.
Skráning og nánari upplýsingar á www.arionbanki.is,
í næsta útibúi eða í síma 444 7000.
Auglýsingasími
VIÐSKIPTI Fyrrverandi stjórnar-
formaður Stíms neitar að gefa
upp hver það var frá Glitni sem
fékk hann til liðs við verkefnið og
sannfærði hann um að taka að sér
stjórnarformennsku í félaginu.
Það hafi þó ekki verið vinur hans
Magnús Pálmi Örnólfsson.
Magnús Pálmi er einn þeirra
sem hafa verið yfirheyrðir vegna
rannsóknar sérstaks saksóknara á
málefnum Glitnis. Magnús stýrði
gjaldeyrissjóðnum GLB FX sem
keypti haustið 2008 verðlaust
skuldabréf, útgefið af Stími, á 1,2
milljarða af Saga Capital. Þar með
slapp Saga Capital undan skuld-
bindingum sínum vegna Stíms,
ólíkt öllum öðrum sem tóku þátt í
verkefninu. Magnús Pálmi undir-
ritaði samninginn um kaupin á
bréfinu fyrir hönd sjóðsins.
Fréttablaðið hefur síðan á þriðju-
dag ítrekað en án árangurs reynt
að ná tali af Magnúsi Pálma til að
spyrja hann um ástæður þess að
hann kaus að verja 1,2 milljörðum
í verðlausan pappír.
Magnús Pálmi er Bolvíkingur
og æskuvinur Jakobs Valgeirs
Flosasonar, fyrrverandi stjórnar-
formanns Stíms. Félög á vegum
þeirra beggja eru skráð til húsa í
Síðumúla 33.
Spurður hvort Magnús sé teng-
ing hans inn í málið segir Jakob
það af og frá. „Ég þekki fullt af
fólki í þessum banka. Magnús kom
ekki að því að plata mig í þetta
kjaftæði.“ Hann fæst hins vegar
ekki til að segja frá því hver eða
hverjir það voru. „Það kannski
kemur fram einhvern tímann
seinna.“ Það hafi þó ekki heldur
verið Jóhannes Baldursson, fyrr-
verandi yfirmaður markaðsvið-
skipta, sem sagður er hafa komið
hluthafahópi Stíms saman.
Jakob Valgeir hefur ekki verið
yfirheyrður vegna málsins. Sjálf-
ur segist hann ekkert hafa að fela
í málinu. - sh
Jakob Valgeir Flosason segir æskuvin sinn, sem stýrði gjaldeyrissjóði Glitnis, ekki hafa fengið sig með í Stím:
Magnús plataði mig ekki í þetta kjaftæði
MAGNÚS PÁLMI
ÖRNÓLFSSON
JAKOB VALGEIR
FLOSASON
STJÓRNMÁL Steingrímur J. Sig-
fússon, fjármálaráðherra og for-
maður Vinstri grænna (VG) segir
að fimm til sex mánuðir gætu verið
í viðsnúning í íslensku efnahagslífi
og hjólin fari brátt að snúast á ný.
Þessi orð lét hann falla í ávarpi
á flokksráðsfundi VG í gær, en
þar fjallaði hann um stjórnmála-
ástandið. Í ræðunni fór Stein-
grímur yfir stærstu verkefnin sem
lægju fyrir og játaði að ekki hefði
allt farið eins og best yrði á kosið.
Hann sagði ríkisfjármálin gríðar-
lega erfitt verkefni en stjórninni
væri fyrst og fremst að mistakast
að koma til skila nauðsyn þess að
fara út í niðurskurðina sem boðað-
ir væru í fjárlagafrumvarpinu.
„Þetta er eitt stærsta og mikil-
vægasta málið sem við þurfum
að ná tökum á til þess að tryggja
velferðarþjóðfélag á Íslandi til
frambúðar. [...] Ef við tökum ekki
á þessu munum við til langrar
framtíðar búa við lakari þjónustu,
verri lífskjör og verri forsendur
hagvaxtar og uppbyggingar í sam-
félaginu.“
Sjötíu manna hópur á fund-
inum lagði fram ályktun um að
aðlögunar ferli að Evrópusamband-
inu yrði stöðvað.
Steingrímur minntist á þessa
meintu misklíð og lagði áherslu
á að VG léti ekki sundurlyndið ná
tökum á hreyfingunni, enda væri
ekki grundvallarágreiningur um
stefnuna í Evrópumálum.
„Mín afstaða er hins vegar sú að
við ætlum að standa við það sem
við höfum sagt og ætlum ekki að
aðlaga Ísland fyrirfram að Evrópu-
sambandinu. Við ætlum ekki að
bera fé í dóminn og við viljum að
þjóðin leiði þetta sjálf til lykta að
lokum.“
Hann vísaði einnig frá sér öllu
tali um aðgerðarleysi stjórnvalda.
„Það hefur engin ríkisstjórn á
lýðveldistíma unnið önnur eins
ósköp og þær sem hafa verið hér
að störfum frá 1. febrúar 2009.“
Þá lét hann stjórnarandstöðuna
einnig fá það óþvegið.
„Einhver ómerkilegasti mál-
flutningur sem veður uppi núna
er innihaldslaust kjaftæði stjórn-
arandstöðunnar um það að þessi
ríkisstjórn sé ekkert að gera.“
Hann stappaði stáli í fundar-
menn og sagði styttast í að rofa
færi til.
„Ég tel að það horfi nú til þess að
innan fárra mánaða förum við að
sjá og trúa því að verkið sé að tak-
ast. Og þá er ekki til einskis streð-
að og puðað.“
thorgils@frettabladid.is
Varaði við
sundurlyndi
vegna ESB
Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, sagði við
upphaf flokksráðsfundar að viðsnúningur efnahags-
lífsins væri á næsta leiti. Hann sagði sundurlyndi
vegna ESB ekki mega ná tökum á hreyfingunni.
ÁVARPAR FLOKKSRÁÐIÐ Steingrímur J. Sigfússon sagði ríkisfjármálin gríðarlega erfitt
verkefni og að á lýðveldistímanum hefði engin ríkisstjórn unnið önnur eins ósköp og
þær stjórnir sem verið hefðu að störfum síðan í febrúar árið 2009. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Einhver ómerkilegasti
málflutningur sem
veður uppi núna er innihalds-
laust kjaftæði stjórnarand-
stöðunnar um það að þessi
ríkisstjórn sé ekkert að gera.
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
FORMAÐUR VINSTRI GRÆNNA
VEISTU SVARIÐ?