Fréttablaðið - 20.11.2010, Qupperneq 30
30 20. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
F
yrst af öllu viljum við
taka fram að það er
nýkomin aðdáenda-
síða fyrir Spilverk
þjóðanna á Facebook.
Eins og stendur eigum
við einn aðdáanda en stefnum að
því að þeir verði ekki fleiri en
þrír. Lesendur eru hvattir til að
bregðast fljótt við, vilji þeir ná
inn í tæka tíð,“ segir Valgeir Guð-
jónsson þegar blaðamaður tyllir
sér með honum og hinum meðlim-
um Spilverksins, Diddú, Sigurði
Bjólu og Agli Ólafssyni, í menn-
ingarhúsinu NemaForum sem Val-
geir rekur ásamt Ástu Kristrúnu
eiginkonu sinni í Slipphúsinu við
höfnina.
Þrátt fyrir aðdáendafæð á hinni
spánnýju Facebook-síðu leikur
enginn vafi á því að Spilverkið er
með allra vinsælustu hljómsveit-
um sem Ísland hefur alið og mikið
stendur til á næstu vikum og mán-
uðum hjá kvartettinum.
Plata á stórstraumsflóði
Í byrjun næsta mánaðar kemur
út veglegur kassi sem inniheldur
allar sex plötur Spilverksins auk
einnar til sem samanstendur af
ýmsu fágæti frá ferlinum, áður
óútgefnum upptökum og fleiru.
Einnig hefur 11. september á
næsta ári verið eyrnamerktur
sem dagsetningin fyrir fyrstu
stóru hljómleika Spilverksins í
áratugi. Þeir verða haldnir í hinu
langþráða tónlistarhúsi Hörpu,
sem hlýtur að teljast einkar við-
eigandi þar sem Spilverkið hefur
innanborðs bæði fyrrverandi og
núverandi formenn Samtaka um
tónlistarhús, SUT, þá Valgeir og
Egil. „Við höfum verið upptekin
af þessu húsi um langan aldur og
segja má að örlög okkar séu að
spila þar,“ segir Valgeir.
Þá eru ótaldar stærstu fréttirn-
ar, sem snúa að því að Spilverkið
hyggist gefa út nýja skífu. Sjálfur
útgáfudagurinn hefur ekki verið
negldur niður en Spilverksfólk
hefur sínar hugmyndir um hve-
nær afurðin kemur til með að líta
dagsins ljós.
„Platan kemur út þegar sólin
verður komin í 36 gráður á hádegi,“
[sem er um 13.30 á Íslandi] segir
Valgeir. „Svo verður fólk bara að
fletta upp í almanaki Þjóðvina-
félagsins og finna út úr því,“ segir
Egill. „Við getum líka upplýst að
hún kemur út á stórstraumsfjöru
klukkan 19.05 á sunnudegi,“ bætir
Sigurður við. Sameiginleg niður-
staða er sú að almenningur geti átt
von á plötunni í verslanir með vor-
inu, en aðeins á fullu tungli.
„Nú erum við komin á sérfæði,
eins og þú sérð,“ bætir Valgeir við
og bendir á gnótt af hnetum sem
Spilverksfólk gæðir sér á með kaff-
inu. „Svona verður þetta næstu
mánuði. Það er prótín í hnetun-
um, en ekki mikil transfita,“ segir
hann og í kjölfarið fylgja ítar-
legar umræður um þetta nýjasta
tískuorð í almennum næringar-
fræðum.
Okkur langar en þurfum ekki
Hversu langt eruð þið komin á veg
með nýju plötuna?
Diddú: „Við erum sirkabát
milli Reykjavíkur og Stokks-
eyrar, svona rétt að renna inn í
Þrengslin. Þessa dagana erum við
að velta hugmyndum fram og til
baka eins og gengur og gerist.“
Valgeir: „Nýja platan verður
ekki tekin með keisara, heldur
verður þetta sitjandi fæðing.“
Egill: „Ég las nýlega viðtal í
þýsku listatímariti við ungt fólk
sem mælir velgengni í hamingju-
stundum. Hér áður fyrr mældi
fólk velgengni ýmist með því
hversu ríkt það væri eða hversu
frægt það væri, en það er alveg
ný afstaða að mæla velgengni með
hamingju. Þetta þykir mér gleði-
legt og ber með sér von um að
hægt sé að breyta þessum áhersl-
um. John Lennon söng um „The
meaning of success,“ og hans hug-
mynd um velgengni var allt öðru-
vísi en margra annarra. Til dæmis
leit Lennon á það sem velgengni
að dvelja heima hjá sér í fimm ár
og annast ungan son sinn.“
Valgeir: „Hann bakaði bara
heilhveitibrauð í fimm ár.“
Egill: „Einmitt, og þetta er
staðan sem við erum í núna. Við
þurfum ekki að gera nýja plötu,
en okkur langar til þess, rétt til
að fjölga hamingjustundunum. Í
því felst okkar velgengni.“
Diddú: „Það er útgangspunkt-
urinn.“
Egill: „Það eru mikil lífsgæði
fólgin í því að geta fengið hug-
mynd og sjá hana verða að veru-
leika á tiltölulega skömmum tíma.
Og sama var uppi á teningnum
hjá okkur hérna í denn. Í tilefni
af útkomu kassans, tónleikanna
og nýju plötunnar hef ég verið að
rifja upp Spilverkstímann. Ég hélt
dagbók og þegar ég blaða í henni
sé ég á hversu ótrúlegum hraða
hlutirnir gerðust á þessum tíma.
Við tókum fyrstu plötuna [Spil-
verk þjóðanna, sem einnig gekk
undir nafninu „brúna platan,“
sem kom út árið 1975] upp á tólf
dögum.“
Diddú: „Já, það var ekki lengri
tími en það sem þetta tók. Svo
miklir hæfileikar sem þurftu að
brjótast út.“
Egill: „Auðvitað voru þetta tólf
langir dagar, en þetta sýnir ágæt-
lega hvað við unnum í rauninni
hratt. Og núna langar okkur til
að gera nýja Spilverksplötu. Það
er allt öðruvísi að gera eitthvað ef
maður þarf þess. Þá gerir maður
það með einhverjum semingi, ein-
hverjum beyg. Ég veit ekki alveg
hvernig ég á að orða þetta.“
Valgeir: „Maður þarf að skíta
þótt mann langi ekki til þess.“
(Spilverksliðar hlæja dátt að
þessari útskýringu Valgeirs.)
Diddú: „Þetta er ófyrirsjáan-
legt ferðalag.“
Ég held að Spilverkið hafi verið fremur undarleg hljóm-
sveit á sínum tíma. Til að mynda var það meðvituð stefna
okkar, sem hrein samstaða var um innan hljómsveitar-
innar, að takmarka áhorfendafjölda á tónleikum.
Spilverkið trekkt upp að nýju
Spilverk þjóðanna, ein vinsælasta hljómsveit Íslandssögunnar, vinnur nú að nýrri plötu sem kemur út með vorinu. Þá eiga
aðdáendur von á stórtónleikum í Hörpu í september og í næsta mánuði kemur út safnkassi með öllum plötum kvartettsins, auk
óútgefins efnis. Kjartan Guðmundsson settist niður með meðlimum Spilverksins og fræddist um fortíð og nánustu framtíð þess.
Í KLÍKUNNI Það er hugur í þeim Diddú, Valgeiri, Sigurði Bjólu og Agli enda margt og mikið fram undan hjá hinu endurreista Spilverki þjóðanna. „Þetta er heilmikil aðgerð. Við erum öll að sinna öðrum hlutum, en núna
er tíminn réttur til að segja „einn, tveir, einn, tveir, þrír, fjór,“ segir Valgeir og vitnar til upphafs Sirkuss Geira Smart, eins vinsælasta lags Spilverksins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
1975 SPILVERK ÞJÓÐANNA PLATAN
1976 C.D. NÆRLÍFI
1976 GÖTUSKÓR
1977 STURLA
1978 ÍSLAND
1979 BRÁÐABIRGÐABÚGÍ
Auk þess gaf Spilverkið út hina margrómuðu breiðskífu Á
bleikum náttkjólum ásamt Megasi árið 1977.
Tuttugu árum síðar, árið 1997, kom svo út
safnplatan Sagan með þekktustu lögum sveit-
arinnar.
■ PLÖTUR SPILVERKSINS
FRAMHALD Á SÍÐU 32
Ekki tilbúð. Ma ekki fara