Fréttablaðið - 20.11.2010, Page 42

Fréttablaðið - 20.11.2010, Page 42
42 20. nóvember 2010 LAUGARDAGUR A ðfaranótt 6. mars árið 1869 liggur Jakob ína Jónsdóttir sofandi í rúmi sínu austur á Reyðarfirði. Í draumi hennar eru Þóra og Elínborg. Þær eru komnar að Hólmum, hafa „vaðið krap og bleitu yfir Hólma hálsinn“, en í draumnum finnst Jakobínu þó sem Reykjavík sé þar sem Eskifjörður er. Hún finnur til sokka og skó handa þeim og ætlar það engan enda að taka „eins og vant er í draumi“. Þar sem þær sitja í stofunni finnst Jakobínu Elínborg vera glaðleg en Þóra ekki. Jakobínu grunar þó að það sé upp- gerð í Þóru. Gamli sauðurinn Grímur Thomsen Síðan þær Þóra og Jakobína kvödd- ust við Reynisvatn haustið 1867 hafa þær skrifast á. Svo gerist það síðla árs 1868, eða jafnvel ekki fyrr en í byrjun árs 1869, að Grímur Thomsen, sem þá hefur sagt stöðu sinni í danska utanríkisráðuneyt- inu lausri og snúið heim til að hefja búskap á æskuheimili sínu á Bessa- stöðum, biður um hönd Jakobínu. Hún hefur varla litið Grím augum og þekkir hann aðeins af sögum sem eru bæði margar og svaka- legar. Hún ákveður að leita ráða hjá Þóru sem þekkir Grím í gegn- um föður sinn. Þrátt fyrir undir- liggjandi togstreitu milli Gríms og biskups ins er hann tíður gestur í Austurstrætinu og biskupsfjöl- skyldan hefur heimsótt hann á Bessastaði. En hvað á Þóra að gera? Grímur Thomsen er enginn venjulegur maður. Hann er heims- borgari sem hendir silkifóðraðri skikkju sinni í drullupoll – eða svo segir sagan – svo leikkonan sem hann er í tygjum við komist klakk- laust upp í hestvagninn þar sem hann bíður hennar. En hún veit líka að hann getur verið ófyrirleitinn og óútreiknanlegur. Þóra er í vanda. Hún vill reynast vinkonu sinni vel en samt ekki bera ábyrgð á óhamingju Jakobínu, hver sem ákvörðun hennar verður. Hún hvetur hana samt pínulítið með því að segja henni að oft rætist úr hjónaböndum sem ekki byrji í ást. Líka þegar hún segir í sama bréfi Grím vera „makalaust galant.“ En skilaboðin til Bínu eru þó mis- vísandi og ruglingsleg því í næsta bréfi kallar Þóra Grím gamlan sauð – hann er þá 48 ára – og skrifar: „mjer þóknast gömlu karlarnir vel, en þarámót eru allir ungir Fýrar mín Pest ha! hvað! trúir þú mjer ekki.“ Allir ungir fýrar mín pest? Hér er allt í hálfkveðnum vísum og bréfabútum án dagsetninga. Vandræðagangur í vinaheimsókn Ein lítil saga gæti þó skýrt þessi orð Þóru þótt hún gerist að öllum líkindum síðar eða haustið 1869 þegar hún er á tuttugasta og öðru ári. Þá er Þóra stödd í Aðalstræti 6, húsi Þórðar Jónassonar háyfir- dómara, hjá Maríu dóttur hans. Erindið er að ræða basar sem þær voru að undirbúa. Stuttu síðar mæta á staðinn þær Elín, systir Magnúsar Stephensen, síðar lands- höfðingja, og tilvonandi eiginkona Theodórs, bróður Maríu, og Þór- unn Havstein, dóttir Péturs amt- manns og systir Hannesar. María og Þórunn fara „þá inn í kamer- sið“ og byrja að „pískra saman“. Þær koma fram og segja Þóru að Þórunn og Jónas, annar bróðir Maríu, síðar alþingis maður og land læknir, séu trúlofuð. Þá var það ekki opinbert og hafði Þórunn verið að sverja af sér orðróminn allt sumarið. Í því kemur Jónas inn og sér að Þóra verður „nátt- úrl. hin kátasta“, að eigin sögn, við að heyra tíðindin. Þóru finnst sem Jónas ætli að hún eigi að bregðast öðruvísi við, að hún eigi að „öfunda Þórunni af lukku hennar og verða dauf“. Þegar stúlkurnar hafa rætt um basarinn og þá sjálfboðavinnu sem undir búningurinn felur í sér vindur Jónas sér allt í einu að Þóru og fer að gefa í skyn að hún muni í raun geta komið vel út úr þessari vinnu, „setum svo að hann Helgi Helgasen beiddi yðar eptir allt saman.“ Ekki að hugsa um giftingar Helgi Helgason? Guðfræðingur og skólastjóri, síðar eigin maður Magdalenu Zoëga Lichtenberg sem áður er nefnd? Ekki er það fullvíst en orð Jónasar fara illa í Þóru. Hún byrjar að titra af reiði og þegar Elín fer að hlæja og gant- ast með drykkjuskap þessa Helga – hún myndi ekki öfunda hana af því að taka á móti honum þegar hann kæmi „rennblautur heim á kveldin“ – hefur hún lagt frá sér kaffibollann af ótta við að missa hann í gólfið úr skjálfandi hend- inni. En hún verður samt að látast og svarar því Elínu í einhverju upp- gerðargríni: „ó hann yrði víst ekki verri en aðrir sem koma blautir heim“, breytir svo um tón og snýr sér að Jónasi og segir með þunga: „en yður ætla jeg að segja það að jeg er ekki að hugsa um neinar giptingar“. Svo er þögn. Ekkert nema sötrið í Þóru þegar hún keppist við að klára kaffið og svo hljómurinn frá postulín inu þegar bollinn skellur á undir skálinni. Þá stendur hún upp og kveður, Elínu 29 ára, Maríu 24 ára og Þórunni 20 ára. Jónas, 29 ára, kveður hún ekki en lítur á hann með vanþóknun á leið sinni út. […] 38 ára og enn einhleyp Það er 5. febrúar árið 1886 og úti er stingandi frost. Inni í kaldri Dóm- kirkjunni situr Elínborg, fjöru- tíu og fjögurra ára, með börn sín, Sesselju ellefu ára og Pétur tíu ára, að fylgja elskulegum eiginmanni sínum til grafar. Hennar bíður nú óljós staða sem ekkju valdamesta embættismanns á Íslandi. Og þarna er Þóra, þrjátíu og átta ára. Einhleyp. Hennar bíður, að öllum líkindum, ekki annað en fram- tíð sem gömul „jómfrú að vandra áfram í heiminum“, án hlutverks og skyldna. „Það er brosað að þess- um gömlu jómfrúm“, segja þær systur. En bíðum aðeins við. Uppi í ræðu- stól stígur nú rúmlega þrítugur prestur, séra Þórhallur Bjarnarson, til að minnast hins látna landshöfð- ingja. Þórhallur er verðandi presta- skólakennari og er í miklu áliti hjá biskupnum og öðrum embættis- mönnum. Um haustið verður hann gerður að biskupsritara. Eitthvað hefur gerst eða mun gerast sem verður til þess að trúlofun hans og Þóru liggur í loftinu þennan vetur. En um sumarið, um það bil þegar Leiðarvísirinn mikli kemur út, kemur til landsins frá Kaupmanna- höfn Valgerður Jónsdóttir, 23 ára gömul fósturdóttir Tryggva Gunn- arssonar og Halldóru Þorsteins- dóttur, systur Sigríðar þeirrar sem kallaði Þóru „hégómlega trítlu“ hér um árið. Tryggvi er sveitungi og náinn vinur séra Björns Halldórs- sonar í Laufási við Eyjafjörð, föður Þórhalls. Atburðarásin þetta sumar er óljós en endirinn er skýr: Val- gerður og Þórhallur eru trúlofuð um haustið. Þóra situr eftir með sárt ennið Það verður „heilt uppþot“ morgun- inn 18. október 1886 þegar þetta fréttist: „er það ekki „makalaust!“ aumingja Þóra biskups hún situr eptir með sárt ennið“, skrifar Guðrún Borgfjörð til bróður síns, Finns Jónssonar, alþýðupiltsins úr Reykjavík sem er um það bil að verða dósent í norrænum fræðum við Kaupmannahafnarháskóla. Og frá bænum Stafholtsey í Borgar- firði skrifar Elín Blöndal, eigin- kona Páls Jakobs Blöndal læknis, bróður sínum, Þorvaldi Thorodd- sen náttúrufræðingi, sem þá er nýkominn heim til Íslands úr vís- indaferð um Evrópu, hinar óvæntu fréttir. Svo fer hún eitthvað að tala um að hann sé nú tveimur árum eldri en Þórhallur. Að hann ætti því líka að fara að finna sér konu. Það er brosað að gömlum jómfrúm Þóra biskups og raunir íslenskrar embættismannastéttar er nýútkomin bók Sigrúnar Pálsdóttur. Hér fylgjumst við með angistinni sem fylgdi því að vera ólofuð í bæ þar sem framboð mannsefna af efri stétt var minna en eftirspurn. SYSTUR Þóra og Elínborg Pétursdætur stilla sér upp í evrópskum síðkjólum á reyk- vískri möl. Þóra var fædd 1847 en Elínborg árið 1842. ■ SAGNFRÆÐINGUR OG RITSTJÓRI Sigrún Pálsdóttir, höfundur bókarinnar um Þóru Pétursdóttur, lauk meistara- og doktorsnámi frá Oxford-háskóla. Hún hefur verið stundakennari við Háskóla Íslands og er ritstjóri tímarits Sögufélagsins, Sögu. Þóra biskups er hennar fyrsta bók en hún byggir meðal annars á umfangsmiklu bréfa- og dagbókaefni sem Þóra lét eftir sig. „Sá þráður sem ég valdi [við ritun bók- arinnar] var leit Þóru að maka. Þetta var stór tilvistarspurning á 19. öld því framboð mannsefna af borgarastétt var minna en eftirspurn. Bréf Þóru leiða þessa angist líka vel í ljós því það sem brennur á Þóru fram til fertugs er karlmenn,“ sagði Sigrún í viðtali við blaðið Bækur sem fylgdi Frétta- blaðinu í vikunni. Hægt er að horfa á myndina með íslensku eða ensku tali. Íslensk örlagasaga sem aldrei má gleymast. Góð gjöf til vina og ættingja erlendis NÝTT á DVD PLÚS: 60 MÍNÚTUR AF AUKAEFNI „Myndin var framúrskarandi vel gerð.“ OPO Morgunblaðinu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.