Fréttablaðið - 20.11.2010, Page 67
LAUGARDAGUR 20. nóvember 2010 9
Verðboð
Bygging 60 herb. hótels á Akranesi.
Óskað er eftir verðboðum í byggingu 60. herb hótels á
Akranesi skv. fyrirliggjandi aðaluppdráttum. Verðboð skulu
miðast við hús, fullbúið að utan og með fullfrágegnum
veggjum, loftum, gólfum og lagnakerfum að innan.
Um er að ræða hús á 2 hæðum að grunnfleti 2960 m2.
Verktaki sér um burðarþols, vatnslagna, frárennslis,
raflagna og loftræstihönnun. Verktaki er ábyrgur fyrir að
verkið sé hannað og framkvæmt af fagaðilum og unnið í
samræmi við ákvæði gildandi laga, reglugerða og staðla
sem eiga við um þessa framkvæmd.
Áhugasamir eru hvattir til að skoða aðstæður á staðnum.
Nánari uppl. veittar í síma 859 9773 eða
planteiknistofa@gmail.com
Verðboðum skal skilað á PLAN-teiknistofu Brekkubraut 23,
Akranesi eða á netfangið: planteiknistofa@gmail.com eigi
síðar en föstudaginn 17. des 2010 kl. 16.00.
Verkkaupi er Langisandur ehf.
PLAN-teiknistofa
Innkaupaskrifstofa
F.h. Reykjavíkurborgar:
Rammasamningur um eftirlit með slökkvitækjum og
öðrum eldvarnabúnaði - EES útboð nr. 12432.
Útboðsgögn á geisladiski fást afhent frá og með 23. nóvember
2010 í upplýsinga-þjónustu Ráðhúss Reykjavíkur.
Opnun tilboða: 17. janúar 2011, kl 10:00 í Ráðhúsi Reykjavíkur.
12432
Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod
Aðalfundur 2010
Aðalfundur Stangaveiðifélags Reykjavíkur verður haldinn á
Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, laugardaginn
27. nóvember 2010 kl. 13:30.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Utankjörfundakosning fer fram á skrifstofu félagsins 22. – 26.
nóvember kl. 11 til 16 samkvæmt lögum félagsins.
Nánari upplýsingar um framboð til stjórnar og fulltrúarráðs er
að finna á heimasíðu félagsins, www.svfr.is og í Veiðifréttum.
Stjórnin
Nr. 14965
Fullbúið skrifstofuhúsnæði óskast á leigu
fyrir Vinnumálastofnun
Ríkissjóður óskar eftir að taka á leigu skrifstofuhúsnæði fyrir
Vinnumálastofnun. Miðað er við að húsnæðið verði tekið á
leigu til 10 ára, fullbúið til notkunar, án lauss búnaðar.
Gerð er krafa um góða staðsetningu miðsvæðis á
höfuðborgar svæðinu, gott aðgengi og næg bílastæði.
Æskilegur afhendingartími er 1. mars 2011.
Húsrýmisþörf stofnunarinnar fyrstu fimm árin er áætluð um
1800 fermetrar , en að þeim tíma liðnum mun stofnunin
áskilja sér rétt til að minnka stærð hins leigða um a.m.k.
300-500 m2.
Húsnæðið skal vera hefðbundið skrifstofuhúsnæði, þó með
óvenju stóru móttökusvæði.
Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður að
uppfylla verða aðgengilegar á heimasíðu Ríkiskaupa www.
rikiskaup.is mánudaginn, 15. nóvember nk.
Fyrirspurnir varðandi verkefni 14965 skulu sendar á
netfangið: utbod@rikiskaup.is og verða svör birt á vef
Ríkiskaupa.
Fyrirspurnarfrestur rennur út 25. nóvember 2010, en svar-
frestur er til og með 29. nóvember 2010.
Leigutilboðum þar sem fram kemur stærð, ástand og stað-
setning húsnæðis, ásamt leiguverði, skal skila til Ríkiskaupa,
Borgartúni 7, 105 Reykjavík, eigi síðar en miðvikudaginn
1. desember 2010.
Útboð skila árangri!
Forval / Alútboð
Félagsstofnun stúdenta, Háskólatorgi, Sæmundar götu
4 í Reykjavík, óskar eftir umsóknum verktaka til forvals
um þátttöku í alútboði vegna hönnunar og byggingar á
280-300 herbergjum og einstakl ings- og paraíbúðum
fyrir stúdenta við Sæmundargötu í Reykjavík.
Heildar byggingarmagn er áætlað um 12.000 m2 brúttó.
Leitað verður til þriggja til fjögurra aðila um að gera
tilboð í verkið.
Forvalsgögn skulu sótt á skrifstofu Félagsstofnunar
stúdenta, Háskólatorgi, Sæmundargötu 4, 101 Reykja-
vík, 22.-25. nóvember 2010 á milli kl. 9-16.
Umsóknum ásamt fylgiskjölum skal skila á skrifstofu
Félagsstofnunar stúdenta eigi síðar en kl.16.00,
miðvikudaginn 8. desember 2010, merktum:
Forval vegna stúdentaíbúða við Sæmundargötu í
Reykjavík fyrir Félagsstofnun stúdenta.
Útboð
Fundir
Til leigu
Tilkynningar
Útboð
PIPA
R\TBW
A
• SÍA
• 102981
Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands leitar
að verkefnisstjóra í fullt starf.
Viðkomandi á að annast rannsóknir
og greiningu, stjórnun og úrvinnslu
megindlegra og eigindlegra rannsókna,
uppsetningu og hönnun spurningalista,
umræðuramma, stjórn umræðuhópa
og túlkun og framsetningu niðurstaðna.
Krafist er háskólamenntunar sem fellur
að verkefnunum, víðtækrar reynslu af
rannsóknarstörfum og öðrum verkefnum
sem falla undir starfið auk mjög góðrar
þekkingar á Excel og SPSS tölfræðiforritinu
og framúrskarandi almennrar tölvukunn-
áttu. Reynsla af vefkönnunarforriti og
eigindlegu úrvinnsluforriti er mikilvæg.
Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og
sjálfstæði í starfi eru mikilvægir þættir sem
tillit verður tekið til við ráðningu.
Skilyrði er að viðkomandi hafi gott vald
á mæltu og rituðu máli, bæði íslensku
og ensku, og hæfileika til að setja fram
fræðilegt efni á skýran hátt.
Umsækjandi þarf að hafa mjög góða
samskiptahæfileika og vera reiðubúinn
til sölumennsku og hópvinnu af ýmsu tagi.
Umsóknarfrestur er til 29. nóvember 2010.
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Andrea
Jónsdóttir forstöðumaður, netfang: gudbjorg@hi.is.
Við ráðningar í störf við Háskólann er tekið mið af
jafnréttisáætlun.
Verkefnisstjóri
Félagsvísindastofnun
Sjá nánar á starfatorg.is og hi.is/skolinn/laus_storf