Fréttablaðið - 20.11.2010, Qupperneq 104
72 20. nóvember 2010 LAUGARDAGUR72
menning@frettabladid.is
„Ég vona að þessi bók varpi ein-
hverju nýju ljósi á Geirfinnsmál-
ið,“ segir Freyja Jónsdóttur, höf-
undur bókarinnar 19. nóvember,
ævisögu Hauks Guðmundssonar,
fyrrverandi rannsóknarlögreglu-
manns í Keflavík, sem kom út í
gær. Titill bókarinnar vísar til
dagsins sem Geirfinnur Einars-
son hvarf árið 1974, en Haukur
tók þátt í rannsókn málsins.
Tilurð bókarinnar má rekja til
þess að Freyja, sem hefur lengi
haft áhuga á og skrifað um manns-
hvörf, hafði samband við Hauk út
af öðru máli. „Við mæltum okkur
mót og þá kom Geirfinnsmálið til
tals. Haukur hafði margt forvitni-
legt um það að segja. Að lokum
kastaði hann því fram hvort ég
vildi ekki bara skrifa þessa bók
og ég sló til. Það vill líka til að
Haukur er merkilegur maður,
hefur lent í miklum ævintýrum
og erfiðum veikindum en hann er
þannig maður sem nær sér upp úr
öllu.“
Freyja segist trúa því einlæg-
lega að saklaust fólk hafi verið
dæmt í fangelsi vegna Geirfinns-
málsins og trúir því að enn séu
einhverjir á lífi sem viti hvað
gerðist þennan örlagaríka dag.
„Ég vona að þeir séu ekki farnir
yfir móðuna miklu og þeir stígi
fram og segi hvað gerðist.“
Freyja telur einnig að manns-
hvörf af mannavöldum á Íslandi
séu tíðari en margan gruni. „Ég
hef skrifað um ein þrettán manns-
hvörf sem ég tel að hafi orðið af
mannavöldum og hafa aldrei verið
upplýst. Ég trúi ekki að þetta fólk
hafi stytt sér aldur og gætt þess
að það myndi aldrei koma í leit-
irnar aftur.“ - bs
Óútskýrð mannshvörf
fleiri en marga grunar
FREYJA JÓNSDÓTTIR Hefur skrifað um
ein þrettán mannshvörf sem hún telur
að hafi orðið af mannavöldum en aldrei
verið upplýst. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Næsti hálftími verður þrjú
korter heitir heimildar-
mynd um Birgi Andrésson
myndlistarmann sem sýnd
verður í Ríkissjónvarpinu
á morgun. Myndin byggir
á viðtölum sem Jón Axel
Egilsson tók við Birgi með
fimm ára millibili.
Í nýútkominni bók um Birgi
Andrés son eftir Þröst Helga-
son er saga af því þegar Birgir
Andrés son myndlistarmaður er
á Feneyjatvíæringnum. Þegar
erlendir blaðamenn spurðu hann
hvers vegna enginn frá íslenska
Sjónvarpinu
væri viðstadd-
ur svaraði Birg-
ir á þá leið, að
á Íslandi sæi
sjónvarpið um
bókmenntirnar
en útvarpið um
myndlistina.
„Þarna hitti
Biggi naglann
á höfuðið, það
vantar mikið efni um myndlist í
sjónvarpi,“ segir Jón Axel Egils-
son kvikmyndagerðarmaður, sem
nú hefur gert heimildarmynd um
Birgi og list hans. Upp úr aldamót-
um einsetti hann sér að breyta því
og hóf að gera stutt innslög með
myndlistarmönnum sem nefndust
Lithvörf. Fyrsta viðtalið tók hann
við Birgi á vinnustofu hans við
Vesturgötu. Árið 2006 hillti undir
að innslögin yrðu sýnd á RÚV. „Þá
talaði ég við Birgi og spurði hvort
ég mætti ekki uppfæra spjallið við
hann. Hann hafði engan tíma því
hann var að undirbúa yfirlitssýn-
ingu í Listasafni Íslands. Það varð
úr að ég fylgdi honum eftir um
sýninguna og hann sagði sögur í
kringum verkin.“
Afraksturinn var notaður í
fimm mínútna langt innslag sem
sýnt var á RÚV 2007. Þegar Birg-
ir féll frá sama ár fór Jón Axel að
leiða hugann að því hvort hann
væri ef til vill með efnivið í lengri
mynd.
„Ég átti allt þetta efni; fyrra
viðtalið var tekið upp á 20 mínút-
um og það seinna á 80 mínútum.
Í kjölfarið fór ég að tala við fólk
sem þekkti hann og hafði unnið
með honum og endaði að lokum
með sex viðmælendur Jón Proppé,
Kristin E. Hrafnsson, Eirík Þor-
láksson, Þröst Helgason, Ólaf
Gunnarsson og Þór Vigfússon. Og
eftir því sem leið á klippivinnuna
sá ég að það sem þeir höfðu fram
að færa var akkúrat kjarninn í
því sem ég vildi gera með þess-
ari mynd. Þetta er ekki hefðbund-
in heimildarmynd um ævi Bigga,
heldur meira um list hans og ger-
ist á Listasafninu.“
Jón Axel segist hafa lagt mikið
á sig að vera Birgi og list hans
trúr. „Biggi var djúpur hugsuð-
ur og útpældur en alltaf að tala
þvert um hug sér og plata mann.
Titill myndarinnar vísar dálítið í
þetta. Hún er sótt í verk hans og
heitir þessu skrýtna nafni, Næsti
hálftími verður þrjú korter. Sem
er auðvitað bölvuð lygi því mynd-
in er 52 mínútur.“
bergsteinn@frettabladid.is
ÚTPÆLDUR EN ALLTAF AÐ PLATA
BIRGIR ANDRÉSSON Jón Axel segir vanta meira sjónvarpsefni um myndlist á Íslandi. Birgir sagði eitt sinn að á Íslandi sæi sjón-
varpið um bókmenntirnar en útvarpið um myndlistina. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Blóðhófnir ★★★★★
Gerður Kristný
Besta ljóðabók Gerðar Kristnýjar.
Meitlaður texti sem talar til lesand-
ans á mörgum sviðum. Lestrar-
nautn. - fsb
Svar við bréfi Helgu ★★★★★
Bergsveinn Birgisson
Sjaldgæf perla þar sem nútíð og for-
tíð, borg og sveit mætast og renna
saman í óviðjafnanlegum texta. - jyj
Áttablaðarósin ★★
Óttar Martin Norðfjörð
Á Áttablaðarósinni er ágætur
efniviður og margt er þar vel gert
en heildarmyndin líður fyrir gallaða
frásagnartækni og sögumann sem
svindlar á lesendum sínum. - jyj
Fyrirgefning ★★
Lilja Sigurðardóttir
Fín hugmynd en útfærslan ekki
nógu vönduð, sagan nær ekki
tökum á lesandanum og lítið fer fyrir
spennunni. - fsb
Birgir Andrésson: Í íslenskum
litum ★★★★
Þröstur Helgason
Þröstur Helgason varpar skýru ljósi
á list Birgis Andréssonar í íslensku
og alþjóðlegu samhengi og dregur
upp innilega mynd af þeim einstaka
manni sem hann hafði að geyma.
- rs
Leyndarmál annarra ★★★
Þórdís Gísladóttir
Vel skrifaðar og skemmtilegar smá-
myndir úr borgarlífinu, en ljóðrænan
er af skornum skammti. - fsb
Mörg eru ljónsins eyru ★★★★
Þórunn Valdimarsdóttir
Vel heppnuð nútímaútfærsla á
Laxdælu sem á meira skylt við
fornsögurnar en formúlukrimma
samtímans. - fsb
BROT ÚR BIRTUM
RITDÓMUM
JÓN AXEL
EGILSSON
GOÐAFOSS Á DVD Heimildarmyndin Árásin á Goðafoss er komin út á DVD. Myndin er í leikstjórn Björns Brynjúlfs Björns-
sonar en Þór Whitehead og Jón Ársæll Þórðarson skrifuðu handritið. Myndin var sýnd á RÚV í ársbyrjun og hlaut mikið lof.
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2011
Reykjavíkurborg auglýsir hér með eftir óprentuðu handriti að ljóðabók, frumsömdu á
íslensku, til að keppa um Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar sem verða til
úthlutunar á síðari hluta árs 2011.
Verðlaun að upphæð 600 þúsund krónur verða veitt fyrir eitt handrit.
Þriggja manna dómnefnd metur verkin; Davíð Stefánsson formaður og Bragi Ólafsson
tilnefndir af menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkurborgar og Ingibjörg Haraldsdóttir
tilnefnd af Rithöfundasambandi Íslands.
Útgáfuréttur verðlaunahandrits er í höndum höfundar eða þess forlags sem hann ákveður.
Sé dómnefnd á einu máli um að ekkert þeirra verka sem borist hafa fullnægi þeim kröfum
sem hún telur að gera verði til verðlaunaverka, má fella verðlaunaafhendingu niður það
ár. Handritum sem keppa til verðlaunanna þarf að skila merktum dulnefni, en nafn og
heimilisfang fylgi með í lokuðu umslagi.
Handrit berist í síðasta lagi 1. júní 2011
Utanáskrift:
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar b.t. skrifstofu, Menningar- og ferðamálas-
viði Reykjavíkurborgar, Vesturgötu 1, 2.hæð, 101 Reykjavík.
Bókmenntaverðlaun Tómasar 2010
Þórdís Gísladóttir hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2010. Aðrir sem
áttu handrit í keppninni eru beðnir að vitja þeirra á skrifstofu Menningar- og ferðamálas-
viðs Reykjavíkurborgar sem fyrst eða fyrir 1. febrúar 2011. Einnig er unnt að fá handrit
send í póstkröfu. Gefa þarf upp dulnefni. Aðeins var opnað umslag með nafni vinnings-
hafa.
Þetta er ekki hefð-
bundin heimildar-
mynd um ævi Bigga, heldur
meira um list hans.
JÓN AXEL EGILSSON
KVIKMYNDAGERÐARMAÐUR