Fréttablaðið - 20.11.2010, Page 118
20. nóvember 2010 LAUGARDAGUR86
sport@frettabladid.is
TONY PULIS segist skilja vel gremju Eiðs Smára Guðjohnsen, sem hefur lítið fengið að spila með Stoke City á
leiktíðinni. Pulis hefur margsinnis sagt að Eiður sé ekki í nægilega góðu formi. „Hann lék heilan leik með varalið-
inu í vikunni og við erum ánægðir með það. Hann mun hafa sínu hlutverki að gegna,“ sagði knattspyrnustjórinn.
HANDBOLTI Framkonur mæta úkr-
aínska liðinu Podatkova í Evrópu-
keppni bikarhafa og fara báðir
leikirnir fram í Framhúsinu um
helgina. Fyrri leikurinn, sem er
heimaleikur Fram, fer fram klukk-
an 19.00 í kvöld en seinni leikur-
inn verður síðan klukkan 17.00 á
morgun.
„Við vitum voða lítið um þetta
lið en ég held að við eigum að klára
þetta nokkuð sannfærandi,“ segir
Einar Jónsson, þjálfari Framliðs-
ins.
„Við ætlum okkur stóra hluti
í þessari Evrópukeppni og ég
myndi vilja sjá okkur reyna við
undanúrslitin,“ segir Einar en liðið
var hársbreidd frá því að fara í
undan úrslit í áskorendakeppn-
inni í fyrra.
„Það verður vonandi
ódýrari kostur fyrir
okkur að spila báða
leikina heima að því
gefnu að fólk mæti á völl-
inn og við fáum einhverjar
tekjur af leikjunum,“ segir
Einar en Framarar ætla að
bjóða upp á hamborgara og
einhverja kvöldhressingu
á vægu verði fyrir leikinn
í kvöld.
Einar segir fyrri leikinn
skipta miklu máli og hann er
óhræddur við að keyra upp
hraðann þótt það sé
innan við sólarhring-
ur á milli leikjanna.
„Við ætlum að keyra
þetta á háu tempói og
við teljum okkur vera í
það góðu standi og með það
góða breidd,“ segir Einar.
Einar er mjög sáttur við
sínar stelpur það sem af er
tímabilinu.
„Við höfum verið mjög
sannfærandi hérna heima
og spiluðum líka mjög vel í
Evrópuleikjunum úti í Sviss.
Mér sýnist vera smá þroska-
merki á liðinu miðað við
árið í fyrra,“ segir Einar. -
Kvennalið Fram spilar við Podatkova í Evrópukeppni bikarhafa um helgina:
Vill sjá liðið fara í undanúrslit
Landssamtök eldri kylfinga
Aðalfundur LEK verður haldinn í golfskála Keilis (GK) Steinholti
1, 220 Hafnarfirði sunnudaginn 28.nóvember 2010. kl. 14:30
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum samtakanna
2. Önnur mál
Kaffiveitingar að loknum aðalfundarstörfum. Nánari upplýsingar
og fundargöng má nálgast á www.lek.is
Stjórnin
HANDBOLTI Fyrri leikur Íslands-
meistara Hauka og þýska liðsins
Grosswallstadt fer fram ytra í
dag.
Með Grosswallstadt leikur
landsliðsmaðurinn Sverre Andr-
eas Jakobsson en hann hlakkar til
að mæta löndum sínum.
„Það er alltaf stórfurðulegt
að mæta íslenskum liðum. Ég
er reyndar öllu vanur frá tíma
mínum með Gummersbach. Þá
mættum við bæði Fram og Val,“
sagði Sverre við Fréttablaðið í
gær en hann segir þýska liðið
ekki ætla að falla í þá gryfju að
vanmeta Haukana.
„Það er aukapressa á mér þar
sem við erum að mæta íslensku
liði og ég verð brjálaður ef ein-
hver okkar ætlar að leyfa sér að
slaka á. Ég mun ekki fyrirgefa
þeim það ef við komumst ekki
áfram. Þetta verður örugglega
ekki auðvelt en við eigum samt
að vinna. Við erum nú atvinnu-
mannalið.“
Það vakti athygli að Gross-
wallstadt skyldi klúðra auglýs-
ingamálum fyrir leikinn. Þeir
auglýstu andstæðinginn sem HK
en ekki Hauka.
„Ég vissi ekki hvort ég ætti að
hlæja eða gráta þegar ég sá þetta.
Ég rauk inn á skrifstofu og sagði
mönnum frá mistökunum,“ sagði
Sverre en var auglýsingunni
breytt?
„Nei, reyndar ekki. Það var
búið að prenta svo mikið og
hengja upp út um allan bæ að það
var ekki hægt. Fólk heldur því
að HK sé að koma,“ sagði Sverre
hlæjandi en hann lék einmitt með
HK áður en hann fór til Gross-
wallstadt. - hbg
EHF-bikarinn:
Sverre tekur á
móti Haukum
STERKUR Sverre tekur hér á Christian
Zeitz, leikmanni Kiel.
NORDICPHOTOS/BONGARTS
ÍÞRÓTTIR „Rannsóknir hafa sýnt
að árangur tengdur íþróttum og
öðrum menningaratburðum skilar
sér margfalt til baka fyrir bú við-
komandi þjóðar. Það er í því sam-
hengi sem við þurfum að skoða
fjárveitingar til þessara málefna,
ekki síst til okkar afreksfólks í
íþróttum.“
Þetta segir Vésteinn Hafsteins-
son frjálsíþróttaþjálfari, sem held-
ur í dag fyrirlestur á Grand Hótel
hvað þurfi til að komast á toppinn
í íþróttaheiminum. Fyrirlesturinn
hefst klukkan 15.30.
Vésteinn segir að svarið liggi
meðal annars í fjárveitingum til
íþróttastarfs og að það standi helst
fyrir þrifum hér á landi. „Þetta
gengur helst út á að ætla sér að
verða bestur. Ekki bara næst-
bestur heldur að ætla sér gullið,“
segir Vésteinn með áherslu. „Það
er engin ástæða fyrir Íslendinga
að taka aðra stefnu en á toppinn.
Það sem þarf til fyrst og fremst
er fjármagnið.“
Vésteinn á sinn bakgrunn í
frjálsíþróttum og hefur sem
þjálfari náð á toppinn. Hans
skjólstæðingar hafa orðið heims-
meistarar, Evrópumeistarar og
Ólympíumeistarar. Sá frægasti er
eistneski kringlukastarinn Gerd
Kanter sem hefur orðið heims- og
Ólympíu meistari.
„Við erum nú ellefu manns sem
vinnum eingöngu með hann. Það
eru ekki allir í fullri vinnu en
þetta er teymið í kringum hann.
Það þarf mikið fjármagn til að það
gangi upp,“ segir Vésteinn, sem er
búsettur í Svíþjóð þar sem hann
starfrækir eigið fyrirtæki.
„Ég er með 28 starfsmenn sem
starfa í kringum sjö íþróttamenn.
Starfið er fjármagnað af þeim
löndum sem íþróttafólkið keppir
fyrir. Og fjarlægðin er ekkert
vandamál. Enginn þessara íþrótta-
manna býr á sama stað og ég. Við
hittumst í 150-180 daga á ári í
æfingabúðum en þess á
milli sinni ég þjálfuninni
og þeim samskiptum sem
ég þarf að eiga í gegnum
netið. Til að verða bestur
þarf að starfa með þeim
bestu.“
Nýjasti skjólstæðingur
Vésteins er Helga Mar-
grét Þorsteinsdóttir,
sem er í fremstu röð í
sjöþraut í sínum aldurs-
flokki. „Þannig erum við
að reyna að gera þetta
með Helgu Margréti og
erum við rétt komin af
stað í þeirri vinnu. Við
höfum leitað til bestu
þjálfaranna á hennar sviði, til að
mynda þjálfara Carolinu Klüft.
Við sjáum um að hún fái það sem
hún þarf.“
Vésteinn segir að nú þurfi
að búa til umgjörð fyrir annað
íslenskt afreksfólk í íþróttum.
„Mér finnst Ísland vera drauma-
land fyrir íþróttafólk og miklu
meira fjármagn á að koma inn í
afreks íþróttir. Það er afar auðvelt
að halda utan um allt starfið hér
og hægt að stjórna öllu landinu úr
Laugar dalnum. Ísland er svo lítið
land að reksturinn yrði eins og í
einum klúbbi út í heimi.“
Vésteinn segir að grunnurinn sé
til staðar. „Íslendingar eru sterkt
fólk. Við erum með þetta í blóðinu.
Samanborið við önnur Norðurlönd
erum við miklu öflugra fólk. Og
við þurfum að velja þær greinar
sem við viljum skara fram úr sam-
kvæmt því. Það sem við höfum
fram fyrir marga aðra
er líkamlegt atgervi. Við
getum ekki ætlast til að
vinna í neinu nema að
við séum betri en hinir.
Grunnurinn er góður og
aðstaðan er komin en
það þarf að koma með
miklu meira fjármagn
inn í starfið.“
Næsta spurning er
vitaskuld hvaðan pen-
ingarnir eigi að koma.
Ísland er í kreppu og í
hverjum fréttatíma er
sagt frá niðurskurði
á mörgum sviðum, til
að mynda heilbrigði og
menntum. Vésteinn segir að þetta
sé ekki samanburðarhæft og að
hugarfarsbreytingar sé þörf.
„Það er auðvelt að gagn-
rýna þetta. Það er lúxus að fá
að vera atvinnumaður í íþrótt-
um og gera ekkert allan daginn
nema kasta kringlu. Það bjarg-
ar enginn mannslífum þannig.
Ég er sammála því. Minn besti
vinur er skurð læknir og það
er miklu mikil vægara að hann
sé á Landspítalanum að bjarga
mannslífum en ég að þjálfa ein-
hverja menn sem kasta kúlum og
kringlum.
En að sama skapi mætti færa rök
fyrir því að enginn veit af afrekum
skurðlæknisins nema aðstandend-
ur sjúklingsins. Ef Ísland myndi
eignast Ólympíumeistara eða
heimsmeistara yrði allt vitlaust í
öllu þjóðfélaginu. Það hefur verið
sýnt fram á það að slíkur árangur
skili sér í meiri framleiðni á vinnu-
markaði sem getur skilað þjóðar-
búinu milljörðum.“
Vésteinn nefnir dæmi um Evrópu-
meistaratitil Dana í knattspyrnu
árið 1992. „Það var fimm tán millj-
arða danskra króna virði í þjóðar-
framleiðslu. Þetta er það samhengi
sem við þurfum að skoða þessi mál
í. Annars getum við einfaldlega
lagt afreks íþróttir niður. Það er
ekki hægt að bera það saman við
niðurskurð á öðrum sviðum.“
ÍSÍ veitir árlega afreksmönnum
í íþróttum styrki. Aðeins einn fékk
A-styrk fyrir árið 2010 en það var
spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir.
„A-styrkurinn hefur ekki breyst í
20 ár og er enn 160 þúsund á mán-
uði, alveg eins og ég fékk á sínum
tíma. Þessi upphæð fylgir því
ekki einu sinni verðbólguþróun.
Ef ríkið og sérstaklega stór fyrir-
tæki myndu setja meiri pening í
þetta starf gæti Ísland orðið eins
og Jamaíka nema bara í öðrum
greinum. Íþróttafólkið gæti haft
þetta sem atvinnu og árangur-
inn yrði betri. Þetta eru svo litlar
upphæðir í samanburði við margt
annað en gæti skilað sér í milljörð-
um til baka.“ eirikur@frettabladid.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
Afreksíþróttafólk
milljarða virði
fyrir þjóðarbúið
Vésteinn Hafsteinsson frjálsíþróttaþjálfari
segir að mun meira fjármagn þurfi til
að koma íslensku íþróttafólki í allra
fremstu röð. Það væri fjárfesting sem
gæti skilað sér margfalt aftur í ís-
lenskt þjóðarbú. Hugarfarsbreyt-
ingar er þörf, segir Vésteinn, sem
hefur náð ótrúlegum árangri á
sínum þjálfaraferli.
Til þess að
verða bestur
þarf að starfa
með þeim
bestu.
VÉSTEINN
HAFSTEINSSON
FRJÁLSÍÞRÓTTA-
ÞJÁLFARI
Sænska úrvalsdeildin
Solna Vikings - Uppsala Basket 67-72
Logi Gunnarsson var stigahæstur hjá Solna með
átján stig. Helgi Már Magnússon skoraði tólf stig
fyrir Uppsala og tók sex fráköst.
ecoÖrebro - Sundsvall Dragons 89-99
Jakob Örn Sigurðarson skoraði nítján stig, gaf átta
stoðsendingar og tók fimm fráköst fyrir Sundsvall.
Hlynur Bæringsson bætti við átján stigum og tólf
fráköstum.
ÚRSLIT