Fréttablaðið - 20.11.2010, Page 126
94 20. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
PERSÓNAN
Þórdís Björk Þorfinnsdóttir
Aldur: 19 ára.
Starf: Nemi í
Verzlunarskóla
Íslands.
Fjölskylda:
Ég á foreldra
og tvo eldri
bræður. Svo á
ég kærasta sem
heitir Jóhann.
Foreldrar: Aðalheiður Bragadóttir,
skólastjóri Hlíðaskóla, og Þorfinnur
Björnsson, starfsmaður Landsbank-
ans.
Búseta: Fossvogurinn
Stjörnumerki: Hrútur
Þórdís vann Söngkeppni Verzló á dög-
unum.
„Hann viðurkenndi að hann hefði
kúgast yfir þessu,“ segir Nanna
Rögnvaldardóttir matargúrú, sem
sýndi frönskum sjónvarpsmanni í
vikunni hvernig ætti að taka slátur.
Franska sjónvarpsstöðin Arte var
stödd hér á landi til að fjalla um
hvernig Íslendingar hefðu brugðist
við kreppunni sem svo skyndilega
skall á þjóðinni.
„Ég fór með honum í búð til að
kaupa í slátrið og svo myndaði hann
alla sláturgerðina,“ segir Nanna,
sem bauð allri fjölskyldunni í heljar-
innar sláturveislu af þessu tilefni.
Í þættinum er talað við marga
Íslendinga sem segja frá raunum
sínum í kreppunni. Sýnt er frá troð-
fullum bílasölum og tómum húsum
sem og því hvernig Íslendingar gera
slátur. Nanna segir franska frétta-
manninn hafa kannast við slátrið
en þó ekki vitað hvernig það væri
gert. „Hann stóð yfir mér á meðan
ég gerði slátrið og leist ekkert á
blikuna á tímabili, en hann borð-
aði þetta svo með bestu lyst,“ segir
Nanna.
Frakkar eru mjög áhugasamir
um mat og því vert að vita hvort
Nanna haldi að slátrið slái í gegn í
Frakklandi. „Það held ég ekki. Ég
er allavega ekki viss um að þessi
sjónvarpsmaður muni leggja í
sláturgerðina í Frakklandi,“ segir
Nanna og hlær. - ka
Kennir Frökkum að taka slátur
KENNDI FRÖKKUM AÐ TAKA SLÁTUR
Nanna Rögnvaldardóttir fékk til sín
franskan sjónvarpsmann og sýndi honum
hvernig farið er að í sláturgerðinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Hann er yngri, myndarlegri og
betri söngvari. Það er allt sem
þarf,“ segir Ingólfur Þórarinsson,
söngvari Veðurguðanna.
Ingó og Veðurguðirnir koma
fram á Nasa í kvöld. Litli bróðir
Ingós, Guðmundur Þórarinsson,
stígur á svið með hljómsveitinni
og flytur nokkur lög á meðan Ingó
hvílir sig. „Ég ætla að stilla honum
upp og láta hann syngja. Svo ætla
ég að mæma, dansa eða flippa á
meðan. Það er planið,“ segir Ingó
og viðurkennir fúslega að sá yngri
sé endurbætt útgáfa af sjálfum
sér. „Hann er ‘92 týpan af þessum
sama gamla Volvo.“
En ertu að þjálfa hann upp svo
hann geti einn daginn tekið við
kyndlinum í Veðurguðunum?
„Nei, ég held að það sé ekki séns
að hann nenni því. Hann er bara
í boltanum. Enda ætla ég ekki að
borga honum fyrir þetta – bara
gefa honum pítsu, eins og stórir
bræður gera.“
Guðmundur vakti talsverða
athygli á dögunum þegar mynd-
band með atriði hans í söngkeppni
Fjölbrautaskóla Suðurlands gekk
manna á milli á netinu. Honum líst
vel á að stíga á svið með stóra bróð-
ur, en þvertekur fyrir að vera betri
söngvari og myndarlegri. „Ég ætla
aðallega að reyna að slá í gegn í
boltanum og vera betri en hann
þar. Það hefur alltaf verið mark-
miðið – hann má eiga hitt,“ segir
Guðmundur í léttum dúr, en hann
gekk nýlega í raðir úrvalsdeildar-
liðs ÍBV.
En nú ætlar Ingó að borga þér
pítsu fyrir sönginn. Er stóri bróð-
ir svona harður við samningaborð-
ið?
„Nei, engan veginn! (hlær) Laun-
in verða bara gleði og ánægja, held
ég. Hann er alltaf að splæsa ein-
hverju á mig þannig að ég held að
hann eigi inni hjá mér að ég syngi
með honum frítt.“ - afb
Ingó gefur litla bróður tækifæri á Nasa
BRÆÐUR MUNU BERJAST … um hylli
áhorfenda í kvöld. Ingó segir Guðmund
bæði myndarlegri og betri söngvara en
hann sjálfan.
Baltasar Kormákur hefur verið
fenginn til að setja upp Villiönd-
ina eftir Henrik Ibsen í norska
þjóðleikhúsinu árið 2012. Villi-
öndin á að vera opnunarsýning-
in á Ibsen-hátíðinni sem leikhús-
ið heldur annað hvert ár en Ibsen
er í hávegum hafður í menning-
arlífi Norðmanna. „Þetta er mik-
ill heiður fyrir mig,“ segir Balt-
asar í samtali við Fréttablaðið.
Hann er staddur í Los Angeles að
ráða til sín starfsfólk fyrir fyrstu
stóru Hollywood-kvikmyndina
sína, Contraband, sem Universal-
kvikmyndaverið framleiðir með
Mark Wahlberg og Kate Beckin-
sale í aðalhlutverki.
Að sögn Baltasars má segja
að upphafið að þessu samstarfi
megi rekja til þess að fyrir fjór-
um árum mætti hann á sömu
hátíð ásamt leikurum Þjóðleik-
hússins og sýndi tvær sýning-
ar á Pétri Gauti. „Viðbrögðin við
þeirri sýningu voru mjög góð og
sýningin virðist hafa lifað hjá
fólkinu í norska Þjóðleikhúsinu,“
segir Baltasar en Villiöndin verð-
ur að sjálfsögðu sett upp á norsku
og verður að öllum líkindum með
norskum leikurum í helstu aðal-
hlutverkum þótt Baltasar útiloki
ekki neitt. „Nei, ég meina Gísli
Örn er hálfnorskur.“
Hins vegar var haustið 2012
eina tímasetningin sem hentaði
fyrir leikstjórann, sem verður
ákaflega upptekinn á næstunni
„Ég verð auðvitað upptekinn
við tökur á Contraband, svo er
það Djúpið og loks frumsýning
á Contraband í mars 2012. Ég
hefði því ekki getað gert þetta á
öðrum tíma.“ Leikstjórinn segir
það alltaf vissa áskorun að flakka
milli kvikmyndaformsins og leik-
húslífsins, leikstjóri þurfi til að
mynda að geta unnið mun nánar
með leikurum í leikhúsinu heldur
en þegar hann gerir kvikmynd.
„Og maður hefur alveg heyrt
sögur af frægum kvikmynda-
leikstjórum sem eru hreinlega
hræddir við leikara. Mig langaði
hins vegar til að gera þetta því ég
vil ekki sleppa hendinni alveg af
leikhúsinu,“ segir Baltasar.
freyrgigja@frettabladid.is
BALTASAR KORMÁKUR: ÞETTA ER MIKILL HEIÐUR FYRIR MIG
Setur upp Villiönd Ibsens
fyrir norska þjóðleikhúsið
PÉTUR RUDDI VEGINN Uppfærsla Baltasars á Pétri Gauti fyrir fjórum árum skildi
góðar minningar eftir hjá fólkinu í norska þjóðleikhúsinu, sem hefur beðið hann um
að setja upp Villiöndina eftir Henrik Ibsen á Ibsen-hátíð eftir tvö ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Skemmtileg bók.“
EINAR K ÁRASON
EKKI SÍÐRI
Skáldverk 3.–9.11.10
„Óskar Magnússon s
skemmtilegt safn af smásögum fyrir fáum árum …
Nú hefur [hann] bætt við öðru safni sem ekki er síðra …
Óskar hefur stílgáfu …“ PÁLL BALDVIN BALDVINSSON / FRÉT TATÍMINN
Lau 20.11. Kl. 13:00
Lau 20.11. Kl. 15:00
Sun 21.11. Kl. 13:00
Lau 27.11. Kl. 13:00
Lau 27.11. Kl. 15:00
Sun 28.11. Kl. 13:00
Sun 28.11. Kl. 15:00 br. sýn.t.
Sun 5.12. Kl. 13:00
Sun 5.12. Kl. 15:00
Mið 29.12. Kl. 16:00 br. sýn.t.
Fim 30.12. Kl. 16:00 br. sýn.t.
Fös 26.11. Kl. 20:00 Fös 2.12. Kl. 20:00 Fim 3.12. Kl. 20:00 Aukas.
U
U
Finnski hesturinn (Stóra sviðið)
Fíasól (Kúlan)
Hænuungarnir (Kassinn)
Íslandsklukkan (Stóra sviðið)
Gerpla (Stóra sviðið)
Ö
Ö
Ö
Ö
Lau 27.11. Kl. 13:00
Lau 27.11. Kl. 14:30
Sun 28.11. Kl. 11:00
Sun 28.11. Kl. 13:00
Sun 28.11. Kl. 14:30
Lau 4.12. Kl. 11:00
Lau 4.12. Kl. 13:00
Lau 4.12. Kl. 14:30
Sun 5.12. Kl. 11:00
Sun 5.12. Kl. 13:00
Sun 5.12. Kl. 14:30
Lau 11.12. Kl. 11:00
Lau 11.12. Kl. 13:00
Lau 11.12. Kl. 14:30
Sun 12.12. Kl. 11:00
Sun 12.12. Kl. 13:00
Sun 12.12. Kl. 14:30
Lau 18.12. Kl. 11:00
Lau 18.12. Kl. 13:00
Lau 18.12. Kl. 14:30
Sun 19.12. Kl. 11:00
Sun 19.12. Kl. 13:00
Sun 19.12. Kl. 14:30
Leitin að jólunum
Ö
ÖÖ
Ö
Ö
Ö
U
Ö
U
Ö
Ö
Ö
U
Ö
Ö
Ö
U
Lér konungur (Stóra sviðið)
Sun 26.12. Kl. 20:00 Frums.
Þri 28.12. Kl. 20:00 2. sýn
Mið 29.12. Kl. 20:00 3. sýn
Lau 8.1. Kl. 20:00 4. sýn
Sun 9.1. Kl. 20:00 5. sýn
Fim 13.1. Kl. 20:00 6. sýn
Fös 14.1. Kl. 20:00 7. sýn
Fös 21.1. Kl. 20:00
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Fös 19.11. Kl. 20:00 Lau 20.11. Kl. 20:00 Sun 21.11. Kl. 14:00
Íslandsklukkan – á Akureyri (Hof, menningarhús)
U Ö
Ö
U
Ö
Ö
U
Ö
U
Ö
U
Ö
Ö Ö
U
U
Ö
U
U
Ö
U
U
U
U
U
Ö
U
U
Ö
Fös 19.11. Kl. 20:00
Lau 20.11. Kl. 20:00
Sun 21.11. Kl. 15:00 br. sýn.t.
Lau 27.11. Kl. 20:00
Sun 28.11. Kl. 20:00
Lau 4.12. Kl. 20:00
Sun 5.12. Kl. 20:00
Fös 19.11. Kl. 20:00 U
Lau 20.11. Kl. 20:00 Ö
Fös 26.11. Kl. 20:00 Ö
Lau 27.11. Kl. 20:00 Ö
Fös 3.12. Kl. 20:00 Ö
Lau 4.12. Kl. 20:00 Ö
Fös 10.12. Kl. 20:00 Aukas.
Mið 24.11. Kl. 19:00 Aukas.
Fim 25.11. Kl. 19:00 Aukas.
Fös 10.12. Kl. 19:00 Aukas.
Lau 11.12. Kl. 19:00 Aukas.
Sun 12.12. Kl. 19:00 Aukas.
Fim 30.12. Kl. 19:00
Fös 7.1. Kl. 19:00
Lau 15.1. Kl. 19:00
Sun 16.1. Kl. 19:00
Lau 22.1. Kl. 19:00
Sun 23.1. Kl. 19:00
8. sýn
U
Ö
Ö
Ö
U
Ö
ÖÖ
U
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI SKEMMTUN
Meiri Vísir.