Fréttablaðið - 26.11.2010, Side 37

Fréttablaðið - 26.11.2010, Side 37
26. nóvember föstudagur 7 KI AÐ KAFFI kemur í ljós núna að við eigum meira sameiginlegt en ég hélt, ég hef þennan fjölmiðlaáhuga í það minnsta ekki frá mömmu því hún er dauðstressuð yfir þessu.“ KREFJANDI STARF Þetta verður ekki í fyrsta sinn sem Edda kemur fram í Gettu betur því hún var formaður nemenda- félags Menntaskólans á Akureyri þegar skólinn vann Gettu betur fyrir nokkrum árum og fór þá fyrir klappliði skólans. Innt eftir því hvort það verði erfitt að gæta hlutleysis ef gamli menntaskólinn kemst í úrslit segir hún: „Ég er búin að kúpla mig út úr menntaskóla- gírnum og ætti því að fara nokkuð létt með að halda í hlutleysið.“ Það er krefjandi starf að stýra spurningaþætti í beinni útsend- ingu og hefur Edda verið dugleg að undirbúa sig fyrir þáttinn. „Ég hef reynt að undirbúa mig eins og ég mögulega get og æft mig á eig- inmanninum og vinunum sem eru eiginlega búnir að fá nóg af spurn- ingum mínum. Allt starfsfólkið á RÚV hefur líka verið mjög hjálp- samt og gefið mér ýmis góð ráð.“ Edda hlakkar til að hefja störf en segist þó helst vera að einbeita sér að prófum og barneignum að svo stöddu, en þau hjónin eiga von á sínu öðru barni nokkrum dögum fyrir jól. „Ég er að reyna að hugsa bara um eitt í einu. Núna er ég að leggja lokahönd á allan jólaundir- búning svo allt verði tilbúið áður en barnið kemur. Ég vona bara að það komi fyrr en síðar,“ segir þessi atorkusama stúlka að lokum. Brúðkaups- dagur- inn okkar í sveitinni hjá tengda- foreldr- um mínum í Öxarfirði. Erfitt að finna fallegra um- hverfi til að ganga í það heilaga. Ég og Sigga Ásta æskuvinkona mín á út- skriftardaginn okkar. Við eigum venjulega mjög erfitt með að haga okkur vel og vera prúðar á myndum en þetta var ein af fáum sem ég fann. Fjölskyldumynd tekin stuttu eftir að við fjölskyldan fluttum til Íslands frá Danmörku. Við bjuggum þar í rúm fimm ár á meðan pabbi var í námi. Eftir þessa dvöl urðum við forfallnir Kim Larsen aðdáendur og vitum fátt betra en að heimsækja Danmörku. J

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.