Fréttablaðið - 22.01.2011, Blaðsíða 31
matur
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MAT ]
Grænmetisparadís á jörðu
Án glútens
Hjónin Tina og Sigurjón sneiða hjá glúteni í matar-
æði sínu. Vöfflur eru einn vinsælasti rétturinn. BLS. 6janúar 2011
Matarmenning hvers lands hefur mikið að segja um upplifun ferða-mannsins. Fyrir grænmetisætur
getur verið erfitt að fara til landa sem þekkt
eru fyrir kjötmikla rétti, eins og til dæmis
Þýskaland og Argentínu en önnur lönd eru
hreint himnaríki fyrir þá sem vilja aðeins
grænmeti.
Singapúr
Eyríkið í Suðaustur-Asíu býður upp á fjölda
grænmetisstaða, allt frá litlum stöðum á
erilsömum götumörkuðum til fágaðra veit-
ingastaða. Í Singapúr er hægt að fá það
besta úr matarmenningu margra landa,
Malasíu, Suður-Indlands og Kína. Lonely
Planet mælir sérstaklega með matargerðar-
list sem kennd er við Nyonya eða Peran-
aka sem er rík af sítrónugrasi, tamarind,
galangali og kókosmjólk. Rétturinn laksa
lemak, sterk kókos-núðlusúpa, þykir sér-
lega áhugaverður.
Hvar er að finna bestu græn-
metisrétti heimsins? Vefsíðan
Lonelyplanet.com hefur tekið
saman sjö frábæra áfangastaði í
fyrir grænmetisætur.
Lystugt hráfæði
Doktor Sigurlína Davíðsdóttir er ein þeirra
sem hefur gengið hrá fæði á hönd. Hún
segir hráfæði síst dýrara en annað.
BLS. 2
FRAMHALD Á SÍÐU 4
ÚTSALA ÖLL RAFTÆKI Í ELDHÚS OG ÞVOTTAHÚS Á ÚTSÖLU
Sýningareintök og útlitsgallað með miklum afslætti
Ofnar, helluborð og háfar með allt að 50% afsl.
Candy þvottavélar - verð frá kr. 79.990
Blomberg uppþvottavélar - verð frá kr. 89.990
Severin smátæki með allt að 33% afslætti og margt fleira
Sjálfvirkar Saeco kaffivélar frá kr. 49.990