Fréttablaðið - 22.01.2011, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 22.01.2011, Blaðsíða 50
 22. janúar 2011 LAUGARDAGUR12 Reglugerð um veiðar á Austur-Atlantshafs bláuggatúnfiski 2011 1. gr. Allar veiðar á austur Atlantshafs bláuggatúnfiski eru óheimilar nema að fengnu leyfi Fiskistofu. Ákvæði reglugerðar þessarar taka til veiða á austur-Atlantshafs bláuggatúnfiski á samningssvæði Atlantshafs túnfiskveiðiráðsins (ICCAT), þar með talið hafsvæði utan lögsögu ríkja og enn fremur innan lögsagna þar sem íslensk skip hafa rétt til veiða samkvæmt samningum eða sérstökum veiðileyfum. Leyfisveitingin er bundin við þau skip sem sækja um aflaheimildir á bláuggatún- fiski til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis innan frests sem auglýstur er í upphafi árs. Í umsókninni skal tilgreina áætlun um veiðarnar, m.a. um útbúnað skips, áætlaðar löndunarhafnir og ráðstöfun afla. Leyfi til bláuggatúnfiskveiða skulu gefin út fyrir hvert almanaksár en ráðuneytinu er heimilt að fella úr gildi leyfi til bláuggatúnfiskveiða sé talin ástæða til að tak- marka veiðarnar frekar eða endurskipuleggja stjórnun þeirra. 2. gr. Á árinu 2011 er íslenskum skipum heimilt að veiða 78 tonn af bláuggatúnfiski miðað við afla upp úr sjó. Bláuggatúnfiskveiðar er einungis heimilt að stunda á línu. 3. gr. Samkvæmt reglum ICCAT er aðeins heimilt að úthluta einu íslensku skipi veiði- leyfi árið 2011. Skilyrði fyrir útgáfu leyfis til bláuggatúnfiskveiða er að skip hafi leyfi til veiða í atvinnuskyni og hafi búnað til veiðanna. Ráðuneytið áskilur sér rétt til að hafna umsóknum sé ljóst að viðkomandi skip hafi ekki búnað til veiðanna eða að fyrirséð sé að það muni af öðrum ástæðum ekki stunda þær. Að öðru leyti skal hlutkesti skera úr um rétt umsækjenda til leyfis til bláuggatúnfiskveiða. Eftir að leyfi er veitt er óheimilt að endurúthluta því á árinu 2011 til annars skips nema skip hafi farist, eða vélarbilun valdi því að það geti ekki haldið til veiða. Aflaheimildir má ekki flytja milli ára. Skip skulu landa afla á Íslandi í fyrirfram ákveðnum höfnum, sem Fiskistofa ákveður í samráði við útgerðir. Veiðar á Austur-Atlantshafs bláuggatúnfiski á línu eru heimilar frá 1. ágúst 2011 til ársloka á veiðisvæðinu norðan 42°00,00´ N milli 10°00,00´ V og 45°00,00´ V. 4. gr. Skipstjórar skulu skrá í afladagbækur sem Fiskistofa og Hafrannsóknarstofnunin leggja til, nákvæmar upplýsingar um veiðarnar í því formi sem skýrslurnar gera ráð fyrir og skila Fiskistofu þegar skip kemur næst til hafnar eftir að hafa stundað veiðar samkvæmt reglugerð þessari. Veiðar á bláuggatúnfiski í landhelgi Íslands í tómstundum eða til eigin neyslu skal tilkynna til Fiskistofu eigi síðar en við löndun. 5. gr. Þau íslensku fiskiskip sem leyfi hafa fengið til að stunda veiðar á samningssvæði ICCAT skulu vera búin fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslu Íslands og Fiskistofu, hér eftir nefnd eftirlitsstöðin, um staðsetningu viðkomandi skips á klukkustundar fresti. Skipi er óheimilt er að halda úr höfn til veiða fyrr en starfsmenn eftirlitsstöðvar- innar hafa staðfest til skipstjóra að ofangreindur búnaður starfi eðlilega. Ef búnaður til sjálfvirkra sendinga, sbr. 1. mgr., bilar, skal gert við hann við komi í næstu höfn. Þar til búnaðinum verður komið í lag, skal senda á annan hátt upplýs- ingar um staðsetningu skipsins á 6 klukkustunda fresti til eftirlitsstöðvarinnar. Einn- ig skulu tilkynningar skv. 6. gr. innihalda upplýsingar um staðsetningu skipsins. 6. gr. Tilkynningar. Skip sem stunda bláuggatúnfiskveiðar á samningssvæðinu skulu senda eft- irgreindar tilkynningar til eftirlitsstöðvarinnar: Komutilkynning: Skylt er skipstjóra skips að tilkynna til eftirlitsstöðvarinnar með ekki meira en 12 klukkustunda og að minnsta kosti 6 klukkustunda fyrirvara að það fari inn á viðkomandi samningssvæði til bláuggatúnfiskveiða á þetta við um veiðar innan íslenskrar lögsögu sem og utan. Í tilkynningunni komi fram eftirfarandi upplýsingar: 1. Kóði viðtakanda: „ISL“ fyrir íslensku eftirlitsstöðina. 2. Raðnúmer skeytisins. 3. Kóði fyrir tegund skeytisins: „COE“ sem komutilkynning. 4. Kallmerki skipsins. 5. Staðsetning skipsins í gráðum og heilum mínútum. 6. Áætlað aflamagn um borð miðað við afla upp úr sjó, sundurliðað eftir tegundum. 7. Dagsetning og tími. Haldi skip til veiða úr íslenskri höfn skal það tilkynnt eftirlitsstöðinni á sama hátt. Aflatilkynning: Dag hvern sem skip er við túnfiskveiðar, skal skipstjóri tilkynna eftirlitsstöðinni um heildarafla síðasta sólarhrings, miðað við afla upp úr sjó, sundurgreindan eftir tegundum. Í tilkynningunni komi fram eftirfarandi upplýsingar: 1. Kóði viðtakanda: „ISL“ fyrir íslensku eftirlitsstöðina 2. Raðnúmer skeytisins. 3. Kóði fyrir tegund skeytisins: „CAT“ sem aflatilkynning. 4. Kallmerki skipsins. 5. Afli frá síðustu aflatilkynningu í kg., miðað við afla upp úr sjó, sundurliðað eftir tegundum. 6. Fjöldi veiðidaga frá upphafi veiða, en frá síðustu aflatilkynningu hafi hún verið send. 7. Dagsetning og tími. Lokatilkynning: Þegar veiðiskip hættir veiðum skal það tilkynnt eftirlitsstöðinni. Jafnframt skal í tilkynningu tilgreina afla frá síðustu aflatilkynningu miðað við afla úr sjó, aðgreindan eftir tegundum og einnig löndunarhöfn eða löndunarstað. Loka- tilkynningin skal send eigi síðar en 6 klukkustundum fyrir áætlaðan tíma í löndunarhöfn. Í tilkynningunni komi fram eftirfarandi upplýsingar: 1. Kóði viðtakanda: „ISL“ fyrir íslensku eftirlitsstöðina. 2. Raðnúmer skeytisins. 3. Kóði fyrir tegund skeytisins: „COX“ sem lokatilkynning. 4. Kallmerki skipsins. 5. Dagsetning og tími. 6. Afli frá síðustu aflatilkynningu í kg, miðað við afla upp úr sjó, sundurliðað eftir tegundum. 7. Fjöldi veiðidaga frá upphafi veiða, en frá síðustu aflatilkynningu hafi hún verið send. 8. Löndunarhöfn (áætlaður tími og dagsetning þar). 9. Dagsetning og tími. Tilkynningar til Eftirlitsstöðvarinnar er hægt að senda með eftirfarandi sam- bandsleiðum: Tölvupóstfang sar@lhg.is, fax nr. 545 2001, Inmarsat C nr. 581 425101519 eða gegnum strandstöðvar á Íslandi. 7. gr. Óheimilt er að styðjast við leit úr lofti við veiðar á bláuggatúnfiski. 8. gr. Sé þyngd bláuggatúnfisks sem veiddur er undir 30 kg, skal honum sleppt lifandi. 9. gr. Hverju skipi er óheimilt að stunda bláuggatúnfiskveiðar nema eftirlitsmaður á vegum Fiskistofu sé um borð. Þó er Fiskistofu heimilt að veita undanþágu frá skilyrði 1. ml. enda séu eftirlitsmenn um borð a.m.k. 20% þess tíma sem skip stundar bláuggatúnfiskveiðar. Skipstjóra er óheimilt að halda skipinu til bláugga- túnfiskveiða án eftirlitsmanns um borð án skriflegrar heimildar Fiskistofu þar að lútandi. Útgerð skips skal greiða eftirlitskostnað skv. 4. mgr. 4. gr. laga nr. 33, 5. maí 2000, um veiðieftirlitsgjald. Útgerð skips með eftirlitsmann á vegum Fiskistofu um borð skal sjá honum fyrir fæði og aðstöðu án endurgjalds. Fyrir hverja veiðiferð skal útgerð skips tilkynna Fiskistofu með a.m.k. 7 daga fyrir- vara að fyrirhugað sé að halda til veiða. 10. gr. Merkja skal hvern einstakan bláuggatúnfisk sem veiddur er af íslenskum skipum samkvæmt nánari fyrirmælum Fiskistofu og í samræmi við reglur ICCAT þar að lútandi. Öllum bláuggatúnfiski sem veiddur er af íslenskum skipum sem og öllum bláugga- túnfiski sem fluttur er inn til Íslands eða seldur er á íslenskum markaði skal fylgja sérstakt rekjanleika¬vottorð (e. bluefin tuna catch document, BCD) sem Fiskistofa gefur út. Öllum bláuggatúnfiski sem endurútfluttur er frá Íslandi skal fylgja sérstakt endur- útflutnings¬vottorð (e. bluefin tuna re-export certificate, BFTRC) sem Fiskistofa gefur út. 11. gr. Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum III. kafla laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. 12. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi reglugerðir um veiðar á Austur-Atlantshafs bláuggatúnfiski nr. 640, 4.ágúst 2010. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu 21. janúar2011. F. h. r. Jóhann Guðmundsson Hrefna Karlsdóttir. Tilkynningar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.