Fréttablaðið - 22.01.2011, Side 41

Fréttablaðið - 22.01.2011, Side 41
LAUGARDAGUR 22. janúar 2011 3 www.alcoa.isHraun 1 • 730 Reyðarfjörður • s. 470 7700 Alcoa Fjarðaál auglýsir eftir öflugum einstaklingi í starf leiðtoga vakthóps í skautsmiðju. Vakthópar vinna við framleiðsluferli skautsmiðjunnar, þar sem ný rafskaut eru búin undir að fara í rafgreiningarker og notuð rafskaut eru endurunnin. Um vaktavinnustarf er að ræða. Almennt um hlutverk leiðtoga hjá Fjarðaáli • Meginhlutverk leiðtoga er að þjálfa, styðja og leiðbeina starfsmönnum. • Leiðtogi ber ábyrgð á því að starfsmenn skipti með sér verkum, vinni saman og fylgi framleiðsluáætlun. • Leiðtogi tryggir að öll verk séu unnin í samræmi við verklagsreglur og stuðlar þannig að öryggi starfsmanna, ásamt hagkvæmum og umhverfisvænum skautsmiðjurekstri. • Leiðtoginn sér til þess að starfsmenn hafi þau tól og tæki sem þarf til að vinna verkin, metur hæfni þeirra, útvegar nauðsynlega þjálfun og veitir endurgjöf í því skyni að bæta frammistöðu starfsmanna. Kröfur um menntun og hæfni leiðtoga • Æskilegt er að leiðtogar hjá Fjarðaáli hafi fjölbreytta menntun og reynslu. • Umsækjendur þurfa að hafa reynslu af stjórnun. • Leiðtogi þarf að bera virðingu fyrir ólíkum einstaklingum og búa yfir hæfileikum til að leiða teymi. • Mikið reynir á samskiptahæfni bæði innan og utan teymisins. • Leiðtogi þarf að hafa hvort tveggja í senn, frumkvæði og staðfestu. Hann verður að hafa mikinn metnað til að ná árangri og vinna að stöðugum úrbótum. Hann þarf að geta stutt og hvatt starfsmenn, en um leið tekið á vandamálum. • Leiðtogastarf krefst nákvæmni og skipulagshæfileika. Mikilvægt er að leiðtogi hafi gott vald á íslensku og er kostur að hafa góða enskukunnáttu. Við hvetjum jafnt konur sem karla til að sækja um starfið. Áhugasamir eru hvattir til að afla frekari upplýsinga hjá Elínu Jónsdóttur í mannauðsteymi Fjarðaáls, í gegnum netfangið elin.jonsdottir@alcoa.com eða í síma 470 7700. Skriflegum umsóknum ásamt ferilskrá skal skilað á www.alcoa.is og er frestur til að sækja um starfið til og með mánudegi 31. janúar 2011. ÍS L E N S K A /S IA .I S /A L C 5 32 92 0 1/ 11 Leiðtogi í skautsmiðju Álver Alcoa Fjarðaáls við Reyðarfjörð er eitt af þeim fullkomnustu í heiminum og mikið hefur verið lagt upp úr því að búa til góðan og öruggan vinnustað. Starfsmenn vinna saman í teymum og hafa stöðugar umbætur að leiðarljósi. Vinnustaðurinn býður upp á margvísleg tækifæri til starfsþróunar.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.