19. júní - 19.06.1971, Blaðsíða 54
Brostnir
hlrkkir
Þessar konur hafa lálizt, síðan 19. júní kom
út í fyrra.
Sessslja Guðmundsdóttir, fædd á Akranesi 17.
júní 1888, dáin 1. ágúst 1970 í Reykjavík. Lífs-
starf hennar var einkum innan veggja heimilis-
ins, sem var löngum mannmargt og umsvifamik-
ið. Hún tók einnig þátt í félagsmálum, var t. d.
í kvenfélaginu Hringnum auk Kvenréttindafélags
Islands. Hún var síðari kona Bjarna Jónssonar
frá Galtafelli. Hann var kunnur athafnamaður og
eignuðust þau hjónin 5 börn. Auk þess var hún
einum stjúpsyni sem sönn móðir.
Unnur Skúladóttir Thoroddsen var fædd á ísa-
firði 20. ágúst 1885, dáin í Reykjavík 6. ágúst
1970. Unnur var ein af stofnendum Mæðrastyrks-
nefndar Reykjavíkur. Hún starfaði mikið á veg-
um nefndarinnar og var lengi í stjórn hennar og
lét sér annt um hag hennar allt til dauðadags.
Unnur var mjög félagslynd kona, enda barn
þeirra Theodóru og Skúla Thoroddsen. Hún var
gift Halldóri Stefánssyni lækni, sem m. a. var
héraðslæknir á Flateyri og síðast læknir í
Reykjavík. Þau eignuðust tvö börn.
Sigríður Eiríksdóttir Sœland var fædd á Vatns-
leysuströnd i Gullbringusýslu 12. ágúst 1889, dá-
in 8. október 1970 í Hafnarfirði. Sigríður var ár-
um saman starfandi Ijósmóðir í Hafnarfirði, en
tók auk þess mikinn þátt í ýmsum félagsmálum,
einkum bindindismálum og slysavarnamálum, og
gegndi þar mörgum trúnaðarstörfum. Einnig tók
hún virkan þátt í stjórnmálum og var nokkrum
sinnum í framboði til Alþingis. Hún var gift Stígi
Sæland, lögregluþjóni í Hafnarfirði, og eignuð-
ust þau þrjú börn.
Áslaug Jónsdóttir, fædd í Reykjavík 31. ágúst
1906, dáin 26. nóvember 1970 í Reykjavík. Ás-
laug gerðist kornung félagi í verkakvennafélag-
inu Framsókn í Reykjavík og gegndi þar mörg-
um trúnaðarstörfum, var m. a. í stjórn þess. Hún
var einnig mörg ár í stjórn barnaheimilisins Vor-
boðans og var um tíma mikið starfandi í fjár-
öflunarnefnd Hallveigarstaða. Áslaug var tvígift.
Fyrri maður hennar var Guðmundur ö. Guð-
mundsson og eignuðust þau 4 börn. Seinni mað-
ur hennar er Jakob Loftsson.
Allar þessar mætu konur voru árum saman góð-
ir félagar í Kvenréttindafélagi íslands. Guð blessi
minningu þeirra.
G. H.
Óskráða Ijóð,
sem Ijós á kerti dó.
Orðvana Ijóð,
sem engum gleði bjó.
Iiverfula stund,
sem kom og fór um leið.
Hvar eru launin þess,
er hljóður beið?
Ellisif.
52
19. Júní