19. júní


19. júní - 19.06.1971, Side 9

19. júní - 19.06.1971, Side 9
mömmuleiknum, og eitthvað verður að gera fyrir þær. Leikrit Svövu Jakobsdóttur er að mínum dómi bezta framlag nýju hreyfinganna hér á landi. Það er sannarlega ánægjuefni, að aftur skuli vera farið að heyrast í kvenfólkinu eftir doða eftirstríðsáranna. Einhvernveg- inn finnst mér samt eins og karl- menn hafi miklu fremur tekið undir með Svövu, eftir að leik- urinn kom í sjónvarpi, og lítið borið á hreyfingunum góðu. Hefði þetta verið á mínum sokkabandsárum þegar kven- réttindahreyfingin stóð með sem mestum blóma, hefði áreið- anlega verið boðað til fundar, strax daginn eftir, og svo hver fundurinn og álitsgerðin rekið aðra. Af hverju hafa ekki verið boðaðir fundir og Svava fengin til að segja meira, tala til ann- ars hóps kvenna? Það er ekki nóg að kveikja, það verður að halda áfram að loga. Svava minnir mig að mörgu leyti á Rannveigu Kristjáns- dóttur Hallberg, sem kom hing- að heim frá námi í Svíþjóð und- ir stríðslokin uppfull af nýjum skoðunum, sem fáir höfðu hugs- að út í áður. Með ógleymanleg- um ferskleika og rökréttum máiaflutningi hristi hún upp í Kvenréttindafélaginu, þreif með sér hóp ungra kvenna til starfa. Með persónulegum töfrum og hispursleysi braut. hún niður aila pólitíska veggi meðal félags- kvenna. Sjálf var hún róttæk, en þær elztu og íhaldssömustu sögðu þá við hana fullar trún- aðartrausts: „Gerðu byltinguna, og við ætlum að njóta góðs af.“ Og nú er ég orðin sú gamla og segi það sama. Af því ég er spurð, hvað mér finnist um þessar nýju hreyfing- ar frá sjónarhóli húsmóður, og hvað réði mínu vali, þá er því til að svara, að ég hélt áfram mínu starfi eftir að ég giftist, og var aldrei gert ráð fyrir öðru en að ég ynni áfram við rönt- genstörf eins og ég hafði gert 10 árin, áður en ég giftist. Ég hélt áfram að vinna úti í nokk- ur ár, en það varð mér bara of- viða, af því ég bjó ekki í Reykja- vík. En eftir að ég hætti, fór ég reyndar í skóla og fékk próf í því órauðsokkulega starfi handavinnukennsiu, sem ég hef svo gripið til tíma og tíma, þeg- ar ég hef mátt vera að. Á þess- um árum hafði ég hverja ráðs- konuna annarri betri, svo ég get ekki borið mig saman við nú- tímakonuna. Þó ég sé að mestu leyti á máli rauðsokkahreyfing- arinnar, álít ég síður en svo, að ég hafi brotið odda af oflæti mínu með því að hafna í hús- móðurstarfinu og hætta við röntgenstörfin. Það hefði áreið- anlega enginn spurt mig um álit mitt á rauðsokkahreyfingunni, ef ég væri enn að vinna á rönt- gendeildinni. Auður Sveinsdóttir Laxness. Fortöluskylda umbótamanns Jóliann S. Hannesson „Hvað er að? Kann Sarah ekki á bíl?“ spurði sonur minn þrevetur, þegar kunningjahjón óku í hlað með eiginmanninn við stýrið. Konan mín tók öku- prófið nokkrum árum á undan mér, og samkvæmt reynslu drengsins var móðirin bilstjóri heimilisins en ekki faðirinn. Eg varð seinni til en konan mín að læra að aka vegna þess, að hún þurfti að aka til vinnu sinnar en eg ekki. Seinna fluttum við út i sveit og urðum að geta ekið til skiptis, svo að eg tók mitt bílpróf, og drengurinn varð að endurskoða hugmyndir sínar um eðlilega verkaskiptingu feðra og mæðra. Hann var á þeim aldri, að það kostaði hann hvorki fyrirhöfn né sársauka, að því er eg gat bezt séð. Ef ekki þyrfti að hugsa um aðra en börnin, væri hægðar- leikur að koma í kring þeim við- horfaskiptum, sem breyting á þjóðfélagsháttum krefst. Við þurfum aðeins að skipta um vör- ur í hillunum í sjónarmiðaeinka- sölu hinna fullorðnu, og eftir fáein ár væri komin ný kynslóð með æskileg sjónarmið; börnin 19. JÚNÍ 7

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.