19. júní


19. júní - 19.06.1971, Blaðsíða 6

19. júní - 19.06.1971, Blaðsíða 6
Faöir yöar bjó á Imfirði, þér eruð af vest- firzku bergi brotin eins og margir aðrir mœtir Islendingar. Það vœri gaman að fá að heyra eitt- hvað um foreldra yðar og uppvaxtarár. Faðir minn, Jón Auðunn Jónsson, var ættaður frá Garðstöðum við ísafjarðardjúp, en móðir mín, Margrét Guðrún Jónsdóttir, var Húnvetn- ingur að ætt, en fædd og uppalin á Vestfjörðum, þar sem faðir hennar var öil sín prestsskaparár, síðast á Stað á Reykjanesi. Eftir nokkurra ára búskap á Garðstöðum fluttust foreldrar mínir til ísafjarðar, þar sem ég er fædd og uppalin. Á bernskuheimili mínu var mannmargt á þeim árum, sjaldnast færra en 12—14 manns í heimili, þegar ég fyrst man eftir. Foreldrar mín- ir voru vinmörg, og afar gestkvæmt á heimiiinu. Faðir minn var útibússtjóri Landsbankans á Isa- firði, alþingismaður um langt skeið og sat í bæj- arstjórn. Áttu þvi margir við hann erindi, auk alls þess fjölda vina og kunningja, sem lögðu leið sina til okkar, bæjarbúar og aðkomufólk. Síðar í lífinu hefur mér skilizt, hvílíkur lærdóm- ur okkur systkinunum það var að alast upp á bernskuheimili okkar. Mér finnst seinna, að þar hafi ég lært í hnotskurn að þekkja mitt eigið þjóðfélag, eftir því sem aldur og þroski leyfði. Svo var það dvölin í sveitinni á sumrin hjá frænk- um mínum á hinu forna höfuðbóli ögri við ísa- fjarðardjúp, og heimsóknir á bæina víðs vegar við Djúpið, þar sem faðir minn þekkti nær hvert mannsbarn. Þetta var umhverfi bernskuára minna, og betra hefði ég ekki getað kosið það. Hvernig var það á skólaárum yðar, það var ekki orðið algengt þá, að stúlkur fœru i lang- skólanám, á þeim árum. Var þá orðið jafnrœði milli pilta og stúlkna í menntaskóla, ólíkt því sem var á dögum Laufeyjar Valdimarsdóttur? Við fórum saman tvær stöllur frá Isafirði snemma vors 1926 til þess að taka próf upp í 4. bekk Menntaskólans í Reykjavík, eins og þá var titt um utanbæjarnemendur. Ég held, að ég fari rétt með það, að við höfum verið fyrstu stúlkurnar, sem þangað komu að vestan. Á mín- um skólaárum voru annars allmargar stúlkur í neðri bekkjum skólans, sem þá var 6 ára skóli, en í efri bekkjum fáar, og engin i 6. bekk fyrsta skólaár mitt. Úr stærðfræðideild hafði útskrifazt einn kvenstúdent fáum árum áður, og öll min skólaár var engin stúlka i stærðfræðideild. Við nutum jafnréttis við skólabræður okkar, en fram- lag okkar til félagslífsins í skólanum held ég, að hafi verið frekar lítið annað en að stunda skóla- böll og dansæfingar, en það var líka gert af stakri kostgæfni. Æ, já, þetta var heldur aum útkoma. Þér lögðuð stund á námsgrein, sem konur höfðu ekki válið áður. Var einhver ástœða fyrir þvi, að þér völduð lögfrœði? Ég var ákveðin í að halda áfram námi að stúdentsprófi loknu. I háskólanum okkar, sem þá var ungur að árum og öll mín háskólaár til húsa á neðri hæð Alþingishússins, var þá ekki um ýkja margar leiðir að velja. Mér leizt svo á, að laganám mundi henta mér bezt, og ég held, að miðað við valkosti hafi það verið rétt metið. Alla vega hefi ég ekki séð eftir valinu. Faðir yðar var alþingismaður. Var áh/ugi á stjórnmálum arfur frá honurn og þegar vaknað- ur í foreldrahúsum, eða varð hann til við skóla- göngu eða varð eitthvað sérstakt til þess að vekja yður til umhugsunar um stjórnmál? Áhugi minn á stjórnmálum var vissulega arf- ur úr foreldrahúsum. Faðir minn tók mjög virk- an þátt i stjórnmálum og viðræður snerust mik- ið um þjóðmál og bæjarmál, ekki sízt, þegar gesti bar að garði. Harka var í pólitíkinni á Isafirði, þegar ég fyrst man eftir, en mun þó ekki hafa verið nema svipur hjá sjón hjá því, sem var um aldamótin, þegar pólitísku illindin þar voru land- fræg. Svo kom þetta venjulega vandamál að sam- rýma áhugamál utan heimilis og innan? Störfum mínum utan heimilis var löngum svo háttað, að ég var yfirleitt ekki að heiman nema hluta úr deginum, og meðan börnin voru ung, 4 19. JÚNÍ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.