19. júní - 19.06.1971, Blaðsíða 41
kostar
terta?
uf
minn
nf
Ingólfur: Ég er að koma á fót innlendum snyrtivöruiðnaði.
Inga: Ég er tveggja barna móðir.
Ingólfur: Ég er dugandi og atorkusamur. Með inngöngu landsins í
EFTA verður þjóðin að vera fyllilega samkeppnisfær í hvers konar iðn-
aði: eins og er, eyðir þjóðin nánast 50 milljónum af öllum gjaldeyris-
tekjum sínum í snyrtivörur.
Inga: Ég er göfug.
Ingólfur: (lítur undrandi á hana).
Inga: Allar mæður eru göfugar.
Ingólfur: Ég afla fjár.
Inga: Ég eyði því.
Ingólfur: Ég geri stórfelldar áætlanir fram í tímann.
Inga: Ég skúra, skrúbba og baka tertur.
Ingólfur: Ég hef reiknað út, að ég geti sparað þjóðinni minnst 10
milljónir gjaldeyris á ári.
Inga: Ég hef reiknað út, að lögin geti orðið fjögur.
Ingólfur (lítur spyrjandi á hana).
Inga: f tertunni.
Ingólfur: Ég tel, að við ættum að geta aflað íslenzkum snyrtivörum
markaða erlendis.
Inga: Ég tel, að neðst eigi að vera öskulag.
Ingólfur (lítur undrandi á hana).
Inga: Ég meina . . . möndlulag.
Ingólfur: Að minnsta kosti í Evrópu.
Inga: Þar næst svampur.
Ingólfur: Jafnvel í Ameríku.
Inga: Svo marsípan.
Ingólfur: Eftir 5 ár ætti ég að vera kominn á toppinn.
Inga: Og efst er marengs.
Ingólfur: Hvaða voðalega eyðirðu af peningum. Hvað kostar þessi terta
eiginlega?
Inga: Heilt líf, Ingólfur minn, heilt líf.
Inga: Ég held það sé
samt eina ráðið, Ing-
ólfur.
Ingólfur: Hvað?
Inga: Að skilja. f al-
vöru. Þá yrðu þeir að
taka hana á barna-
heimilið.
19. Jtjní
39