19. júní


19. júní - 19.06.1984, Blaðsíða 6

19. júní - 19.06.1984, Blaðsíða 6
Orðavalið á Alþingi er samkvæmt uppskrift Salóme Þorkelsdóttir fyrsti kvenforseti efri deildar Alþingis Salóme Þorkelsdóttir er fædd og uppalin í Reykjavík. Foreldrar hennar eru Anna Sigurðardóttirog Þorkell Sig- urðsson sem lést 1969. Þorkell var vél- stjóri á togurum og mikill áhugamaður um stjórnmál. Hann starfaði fyrir Sjálf- stæðisflokkinn og skrifaði greinar í blöð og tímarit. Móðir hennar hefur lítið skipt sér af stjórnmálum en fylgist af áhuga með því sem gerist í þjóðmálum. Salóme kveðst því aldrei hafa verið í vanda með að velja, þar sem hún hafi svo að segja verið fædd inn í flokkinn. Framhaldsnám stundaði hún við Kvennaskólann í Reykjavík eftir að hafa verið í undirbúningsdeild hjá Har- aldi Björnssyni kennara og leikara. f huga hennar eru Kvennaskólaárin sér- stæð að því leyti að þá var síðari heims- styrjöldin í algleymingi og ísland her- setið. íslenskir sjómenn sigldu með afl- ann til Englands öll stríðsárin og voru í sífelldri hættu vegna kafbátaárása. Áhrif þess voru því mikil á líf og störf sjómanna og fjölskyldur þeirra. Eiginmaður Salóme er Jóel Kr. Jóelsson garðyrkjubóndi í Mqsfells- sveit. Þar hafa þau búið allan sinn bú- skap að fyrsta hjúskaparárinu undan- skildu en þá voru þau í Biskupstungum. Þau eiga þrjú uppkomin börn og barna- börnin eru orðin fimm. Alin upp í kvenfélaginu „Ég hef frá því að ég man eftir mér verið mjög pólitísk. Þann áhuga tók ég í arf frá föður mínum. Fljótlega eftir að ég flutti í Mosfellssveitina, þá tvítug og nýgift, gekk ég í kvenfélagið eins og ég hélt að tilheyrði. Forystukonur félags- ins voru mjög félagsvanar og voru fundasköp í heiðri höfð. Við urðum að standa upp ef okkur lá eitthvað á hjarta og ekkert þýddi að tauta úr sæti sínu. í kvenfélaginu öðlaðist ég reynsluna í félagsstörfunum og fékk smám saman sjálfstraust. Þegar stofnað var sjálf- stæðisfélag í Mosfellssveit var ég einn af stofnendum félagsins og sótti síðan all- flesta pólitíska fundi. Upphaf hins eiginlega stjórnmála- ferils var árið 1962. Þá var leitað til mín um að gefa kost á mér í framboð vegna væntanlegra hreppsnefndarkosninga. Hafnaði ég í sæti fyrsta varamanns en kom síðan inn sem aðalmaður 1965. Árið 1967 hóf ég störf á hreppsskrif- stofunni og vann seinustu árin sem gjaldkeri hreppsins, en lét af störfum þegar ég var kosin á þing í desember 1979.“ Vingjarnlegir eldri menn vísa ókunnugum rétta leið upp á áhorfendapalla efri deildar Al- þingis. Á upphækkuðum, áber- andi stórum og fallega útskorn- um stól situr forseti efri deildar og stýrir fundi. Forseti rís úr sæti og gefur háttvirtum sjötta lands- kjörnum þingmanni orðið - engin nöfn eru nefnd. Þingfor- seti tilkynnir atkvæðagreiðslu um breytingartillögu og þrýstir á bjölluhnapp í borðinu. Þing- mönnum fjölgar í salnum og þeir greiða atkvæði með handaupp- réttingu. Sá sem stýrir fundi er þing- maðurinn Salóme Þorkclsdóttir, fyrsta konan sem gegnir embætti forseta efri deildar Alþingis. Þingforseti er bæði kvenleg og aðlaðandi kona sem augsýnilega hefur haldið áfram að vera hún sjálf en ekki breyst í neina karl- konu á þessum svo mjög kyn- skipta vettvangi. Þegar betur er að gáð má greina tvær aðrar konur meðal viðstaddra þingmanna. Einn málglaður á pöllunum telur það vísbendingu um að konurnar séu á góðri leið með að taka yfir. Aðeins ein önnur kona hefur gegnt embætti þingforseta. Ragnhildur Helgadóttir núver- andi menntamálaráöherra var förseti neðri deildar Alþingis á árunum 1961-1962 og 1974- 1978. Gott veganesti - Hvernig er að vera kona í stjórn- málum? „Með tilliti til heimilis og barna er það alltaf vandamál fyrir konur. Börnin okkar voru orðin nokkuð stálpuð þegar ég byrjaði fyrir alvöru og það bjargaði mér að hreppsnefndarfundirnir voru ekki tímafrekir. Þegar ég tók síðan sæti á þingi hafði ég gott veganesti sem var mikil reynsla í sveitarstjórnarmálum, sem ég tel góðan undirbúning. Ég er ein af þeim konum sem lét til- leiðast. Hafði engar stórar hugsjónir í 6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.