19. júní


19. júní - 19.06.1984, Blaðsíða 72

19. júní - 19.06.1984, Blaðsíða 72
Lög samtakanna voru samþykkt svo- hljóðandi: Lög „samtaka kvenna á vinnu- markaðnum“ 1. Nafn samtakanna er: „Samtök kvenna á vinnumarkaðnum". Markmið þeirra er að: a. Standa að sameiginlegum bar- áttumálum um kjör kvenna á vinnumarkaðinum og vera þar stefnumarkandi. b. Vera bakhjarl þeirra kvenna, sem gegna trúnaðarstörfum í launþegasamtökunum. c. Hvetja konur til aukinnar þátt- töku í trúnaðarstörfum innan launþegasamtakanna. 2. Aðild að samtökunum geta allar konur átt, sem vilja vinn að mark- miðum þeirra. Starfssvæði sam- takanna er landið allt. 3. Félagar starfa r' opnum starfs- hópum, sem ýmist myndast eftir ákveðnum málaflokkum eða eftir landssvæðum. 4. Tengihópur samhæfir störf sam- takanna. Verkefni hans er auk þess, að boða til sameiginlegra funda, að sjá um framkvæmd á- kvarðana þeirra eða fela hana starfshópum. Starfsreglur kveða nánar á um verksvið hans. 5. Lög og starfshættir samtakanna skal endurskoða árlega. 6. Aðalfund samtakanna skal halda að hausti, eigi síðar en 1. nóv- ember. Aðalfundur kýs 15 konur í tengihóp og 15 konur til vara. Tryggt skal að hvert landsbyggð- arkjördæmi tilnefni 1 konu í tengihóp og 1 til vara. Aðalfund- ur ákveður félagsgjöld og endur- skoðar lög og starfshætti samtak- anna. Starfsreglur Hlutverk „tengihóps" er að halda til haga skýrslum um starfsemi starfs- hópa og miðla upplýsingum milli þeirra. Tengihópur skipuleggur dag- skrá félagsfunda í samráði við starfs- hópa. Almennir félagsfundir skulu vera minnst þrisvar á ári. Á þeim eru teknar ákvarðanir samtakanna á milli aðalfunda. Gæta skal þess að í tengihópnum sitji konur úr sem flestum starfsgreinum. Hver aðal- maður hefur ákveðinn varamann og ber ábyrgð á að boða hann í sinn stað, geti hann ekki komið á fund tengihóps. Tengihópur sér um fjár- reiður samtakanna og heldur skrá yfir allar félagskonur. Frá útifundi Samtakanna 1. maí 1984. Ljósmynd Ann Mikkelsen. Konur voru tilnefndar í tengihóp er starfa skyldi fram að framhaldsstofn- fundi er ákveðið var að halda í janúar. Tengihópurinn hófst þegar handa við að kynna Samtökin og benda á það hrikalega Iaunamisrétti er ríkir í land- inu. Var m.a. gefið út dreifirit í jóla- ösinni í þessu skyni. Framhaldsstofnfundurinn var hald- inn í Gerðubergi 29. janúar 1984. Á honum voru kjaramálin í brennidepli og samþykkti fundurinn fjölda ályktana um kjaramál, er síðar voru sendar fjöl- miðlum og verkalýðsfélögum um land allt. Bent var á að atvinnuöryggi kvenna væri víða bágborið. Fólki á kaup- tryggingu í fiskvinnslu væri nú víða sagt upp með aðeins viku fyrirvara og væri hér aðallega um konur að ræða. Var krafist breytinga á lögum og kauptrygg- ingarákvæðum í fiskvinnslu þannig að farið yrði eftir lögboðnum uppsagnar- fresti eins og hann er í flestum stéttar- félögum. Einnig var þess krafist að engir launataxtar verði fyrir neðan lög- boðin lágmarkslaun eins og viðgengist. Tengihópur - engin stjórn Um innra starf Samtakanna er þetta að segja: Tengihópsfundir sem haldnir eru á um það bil 10 daga fresti eru opnir öllum félögum. Þar sem engin eiginleg stjórn er á Samtökunum ákvað tengi- hópur að skipta með sér verkum þannig að fundarritari síðasta fundar er fundarstjóri næsta fundar. Fundarstjóri kýs sér fundarritara. Fundarstjóri og fundarritari eru nokkurs konar fram- kvæmdastjórar samtakanna á milli funda. Ber öðrum úr tengihóp að láta þær vita hyggjist þeir leggja einhver mál fyrir næsta fund. Með þessari skipan mála dreifist ábyrgðin á alla í tengihóp, og allir fá æfingu í að stjórna fundum. 72
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.