19. júní


19. júní - 19.06.1984, Blaðsíða 7

19. júní - 19.06.1984, Blaðsíða 7
byrjun en fann fljótlega að þetta var bæði áhugavert og skemmtilegt við- fangsefni. Starfið á þingi er vissulega krefjandi. Fylgja verður flóknum þing- sköpum, sem tekur tíma að venjast, og vinnudagarnir eru oft langir en ég hef mikla ánægju af starfinu. Ef ekki væri ánægjan risi maður varla undir álag- inu.“ Ávarpinu varð að breyta - Getur sú staðreynd að forseti lýð- veldisins er kona - hafa haft áhrif á að þú varst valin deildarforseti? „Já, ég er sannfærð um að það hefur haft viss áhrif. Tilkoma Kvennalistans hefur líka vakið til umhugsunar, þótt ég persónulega sé ekki fylgjandi því að vera skipað á bás vegna kynferðis. For- seti má taka til máls þegar hann sjálfur vill. Ég er að vissu leyti bundnari en áður því ég get ekki vikið úr stól nema með því að fela varaforseta fundar- stjórn. Starfið er skemmtilegt að takast á við en mjög hefðbundið. Það eru ákveðnar hefðir - orðavalið er samkvæmt upp- skrift - þannig að ég breyti litlu sem engu. Ein breyting varð þó ekki um- Salóme Þorkelsdóttir í sæti sínu í efri deild Alþingis. (Ljósmynd Anna Gyða Gunnlaugs dóttir). flúin. Venjan var sú að ávarpa þing- forseta „herra forseti“. Samþingmenn mínir neyddust til að breyta því og ávarpa mig nú „virðulegi eða hæstvirti forseti“. Konur og stjórnmál Það er dapurlegt hve konum gengur illa í prófkjörum og að komast á lista. Innkoma kvenna í stjórnmálin er auð- vitað eðlilegust og best ef þær geta þró- ast og þjálfast við hlið karlanna í góðu samstarfi og þannig aukið hlut sinn og áhrif smám saman. En ég skil vel að konur séu orðnar óþolinmóðar. Nú eru svo margar ungar konur sem eru til- búnar og vilja takast á við málefnin. Konurnar bæði vilja og þær þurfa að vera með. Ef við hugum að mannlegu þáttunum þá eru konurnar þar oft betur að sér og láta þau mál frekar til sín taka. Einn þeirra málaflokka sem ég hef mikinn áhuga á eru umferðarmálin. Það er mál sem varðar okkur öll. Fjöldi umferðarslysa er alltof mikill, sem er óhagkvæmt þjóðhagslega en ekki hvað síst sársaukafullt. Fyrirbyggjandi starf er þar mikilvægur þáttur. í starfi okkar í nefndinni um tengsl heimila og skóla hefur þetta verið til umræðu. Þar kom fram þáttur „grenndarskóla“. Það eru skólar sem eru reistir svo að segja mitt í heimabyggð barnanna, sem gerir það að verkum að skólaeiningarnir verða fleiri en um leið smærri. Slíkt skipulag skólabygginga skoðast sem liður í fyrir- byggjandi starfi. Skólaganga barnanna verður öruggari og betri ekki hvað síst með tilliti til umferðarinnar. Auk þess auðveldar það og stuðlar að auknum samskiptum heimila og skóla. Ég hef þá skoðun að allt sem hægt er að gera til þess að fækka umferðarslysum sé þess virði að það sé gert.“ 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.