19. júní


19. júní - 19.06.1984, Blaðsíða 23

19. júní - 19.06.1984, Blaðsíða 23
Vinnuveitendur ættu að hagnýta sér stjórnunar- hæfileika konunnar — segirJón Þór Þórhallsson forstjóri SKÝRR Tölvuvæðing í fyrirtækjum vex mjög hratt og segja má að við séum varla viðbúin þessari sprengju á atvinnumarkaðnum. Þar á ég við að við erum stutt á veg komin að mæta þróuninni með því að fjölga atvinnutækifærum í iðnaði á móti þeim störfum sem falla niður með tilkomu þessarar nýju tækni. Á hitt ber að líta að tölvuvæðing hefur í för með sér mikla vinnuhagræðingu og aukin afköst í fyrirtækjum. Svo dæmi sé tekið, þá léttir tölvan störf ritara til mikilla muna, en á móti kemur, að fyrirtækin alla vega hjá því opinbera fá aukin afköst. Þetta kemur ekki fram í auknum launum, þar eð frumvörp hafa ekki verið lögð fram né þingsályktunartillögur, sem ganga í þá átt að fylgja þessari þróun eftir sem skyldi. Til að fræðast um kosti og jafnvel galla þessarar þróunar, varð að ráði að undirrituð æskti viðtals við Jón Þór Þór- hallsson, forstjóra Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavíkurborgar, til að gefa les- endum blaðsins kost á að vita meira um tölvur og þýðingu þeirra í atvinnulíf- inu. Jón Þór er þekktur fyrir að styðja konur i jafnréttisbaráttu þeirra og er það einkar ánægjulegt og mætti vera mun algengara en nú er. Auk þess að vera forstjóri SKÝRR, er hann einnig dósent í viðskiptadeild Háskóla íslands og kennir þar. - Hvernig er hlutfall á milli kynja háttað á þínum vinnustað? „Þrír yfirkerfisfræðingar af 7 eru konur þ.e.a.s ca. 40% starfsmanna. Starfsmenn SKÝRR eru 94 talsins þar af 24 konur eða 25%. Tveir starfsmenn (deildarstjórar) gegna mínu starfi þegar ég er fjarverandi annar er kona.“ Konur leggja sig allar fram - Eru einhver sérstök atriði, sem þú hefur í huga við val nýrra starfsmanna? „Við leitum að hæfu fólki á viðkom- andi starfssviöi. Skiptir þá engu máli hvort um karl eða konu er að ræða. Sömu réttindi, sömu skyldur. Það að a) konur séu alltaf veikar, b) séu alltaf að eiga börn og c) konum henti ekki að vinna störf á tæknisviði, er að mínu mati hreinir fordómar sem eiga engan rétt á sér. Mín reynsla hefur verið sú að konur leggi sig allar fram í sínum störfum ekki síður en karlar og nái góð- um árangri. Rannsóknir t.d. í Banda- ríkjunum sýna einmitt að konur eru ekki síður hæfar til að starfa að fram- leiðslu hugbúnaðar en karlar.“ - Hver er þín skoðun á því sem hirtist í erlendum tímaritum um að óhollt sé fyrir barnshafandi konur að vinna við tölvuskerma? „Ekkert hefur komið fram ennþá í læknisfræðilegu tilliti, sem sýnir fram á að óhollt sé fyrir barnshafandi konur að vinna við tölvuskerma, einungis ein- stök tilvik. Menn eru þó sammála um, að skjávinna reynir á augun. Auðvitað verður aldrei bætt með fé ef heilsutjón er tilfinnanlegt.“ - Erum við á eftir í setningu reglugerða um vinnuumhverfi, aðhúnað á vinnu- stöðum, hlé á vinnu o.s.frv. miðað við nágrannalöndin ? „Líklega erum við það miðað við Norðurlandaþjóðir og sömuleiðis Bandaríkin.“ - En tölvuvæðingin sem slík, er hún skemmra á veg komin hér en annars staðar? „Við erum á eftir miðað við Banda- ríkin en Evrópulöndin eru nokkuð á eftir Bandaríkjunum í tölvuvæðing- unni.“ - í sjónvarpsþœtti nýlega var talað við Odd Benediktsson um tölvur. I svari hans kom fram, að við hefðum tölu- verða möguleika á að framleiða hug- búnað til sölu hérlendis og jafnvel er- lendis. Hver er þín skoðun á því máli? „Hugbúnaður er mikið staðlaður, en Jón Þór Þórhallsson við kaupum þó ekki t.d. orðskiptinga- forrit fyrir íslensku. Sumt af þessu þurfum við því að útbúa hér. Hug- búnaður til notkunar tölva í sjávar- útvegi er hinsvegar nokkuð sem yrði hagkvæmt að útbúa hér á landi núna. Ýmiss konar hugbúnaður í sambandi við rekstur fiskiskipanna, yrði vel fall- inn til framleiðslu hér á landi bæði til sölu innanlands og til útflutnings. Þá detta mér t.d. líka í huga ýmiss konar hjálpartæki fyrir skipstjóra, sem fram- leiða mætti hér. Bandaríkjamenn eru að útbúa hugbúnað sem þeir kalla að- stoðarflugmann. Við gætum þá fram- leitt hugbúnað sem við gætum kallað aðstoðarskipstjóra. - Tölvan hefur víðtæk áhrifíþjóðlífinu til hins betra og sums staðar til hins verra eða hvað? „Það má deila um það. Sem dæmi um notkun tölva á heimilum, var í útvarps- þætti um daginn viðtal við 12 ára dreng. Hann var spurður, hvað mamma væri að gera, pabbi o.s.frv. Svarið kom: Mamma er að vinn við heimilistölv- una.“ - Hefur þú einhverjar ráðleggingar til kvenna sem hafa hug á að læra tölvunar- fræði í Háskóla? Eða eru fordómar 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.