19. júní - 19.06.1984, Qupperneq 54
Jafnréttið og samskipti kynjanna
Fráskilin, bamlaus kona á þrítugsaldri:
Kona ekki lengur talin skrýtin
þótt hún vilji vera ein
„Jafnréttisumræða síðustu ára hefur alveg tví-
mælalaust haft áhrif á samskipti kynjanna en karl-
rembusvínsháttur er samt enn við lýði og meira en
mann grunaði.“
- Hvar verður þú helst vör við hann, í vinnunni eða í
einkalífinu?
„Allsstaðar. Karlmenn koma inn í fyrirtækið í fín-
um fötum og komast á toppinn eins og hendi sé veif-
að. Þeir komast á örskömmum tíma það sem tekur
konur mörg ár. Konur treysta ekki á sjálfar sig. Þær
bíða eftir því að einhver komi á hvítum hesti og pikki
þær upp. Þessi hugsunarháttur er algengari en ætla
mætti.“
Frami í atvinnulífinu krefst fórna
- Hvenœr varðst þú fyrst vör við misréttið?
„Fólk fer fyrst að pæla í sér og umverfinu, þegar
það er orðið óánægt í hjónabandinu og hugsar með
sér: - Á ég að reyna að ná í annan mann eða á ég að
reyna að komast áfram í atvinnulífinu? Ég valdi
seinni kostinn.
Það er engin spurning að erfiðara er fyrir konur að
ná frama í atvinnulífinu, hvort sem þær hafa menntun
eða ekki. Þær þurfa að gefa sig allar í starfið og fórna
einkalífi sínu. Frami krefst líka fórna af körlum, en
þeir geta átt konu heima sem annast þá og börnin.
Konur eiga ekki um neitt slíkt að velja. - Ung stúlka
á eftir allar sínar barneignir segja atvinnurekendur,
sæki hún um eftirsóknarverða stöðu. Einn atvinnu-
rekandi viðurkenndi fyrir mér nýlega að konur þurfa
að leggja sig helmingi meira fram og vera helmingi
duglegri í vinnunni en karlar í sambærilegu starfi.“
- Hvers vegna er þetta svona?
„Þetta eru fordómar. Konan var hlekkjuð heima
við eldavélina til skamms tíma. Það tekur karla tíma
að læra að líta á konur sem jafningja í atvinnulífinu."
- Hefur jafnréttisumrœðan haft áhriftil góðs?
„Já, hún hefur gefið konum fleiri möguleika og
rosalega margt hefur breyst til betri vegar á nokkrum
árum. Kona er til dæmis ekki lengur talin skrýtin þótt
hún vilji vera ein til að koma sér áfram í lífinu. Hún
verður næstum að vera ein, nema hún eigi þeim mun
skilningsríkari eiginmann.“
- Hvernig var verkaskiptingin á þínu heimili?
„Eiginmaðurinn fyrrverandi var duglegur að elda
og vaska upp, en hann tók aldrei til. Aftur á móti
skildi ég það fyrst eftir skilnaðinn að bíllinn þvoði sér
ekki sjálfur og það þurfti að kaupa bensín á hann af og
til.
Það fór í taugarnar á honum að ég var að sækjast
eftir frama úti í atvinnulífinu. Allt var í lagi meðan ég
vann frá 9-5, en þegar það fór að verða meira var það
ekki nógu gott.
Ég óttaðist þegar ég skildi að ég yrði ekki nema hálf
manneskja. Ég hef þroskast heilmikið og langar að
vera ein. Mér líður vel.“
Fólk leggur enga rækt við sambandið sín
á milli
- Hvers vegna fara svona mörg sambönd út um
þúfur?
„Ég held að aðallega tvennt skemmi hjónabandið
hjá ungu fólki: í fyrsta lagi lífsgæðakapphlaupið sem
allir hella sér út í. Fólk er kannski farið að basla við
að kaupa íbúð og bíl, og stærri íbúð og stærri bíl áður
en það þekkist almennilega. Þetta er að vissu leyti
neikvætt, en einhvers staðar verður fólk að búa. Fólk
verður að vinna myrkranna á milli, verður skapvont
og pirrað og leggur enga rækt við sambandið sfn á
milli.
í öðru lagi ríkir meira frjálsræði í samskiptum kynj-
anna. Allri velmeguninni fylgir svo mikið skemmt-
analíf og framhjáhald.
Fleiri eru einhleypir nú en áður og einkennilegur
mórall er á skemmtistöðunum. Það fer fram ofboðs-
legur eltingarleikur að finna einhvern fyrir nóttina.
Karlmenn virðast telja að konur eigi að taka því sem
þeim býðst og vera þakklátar. Þeir álíta að konur sem
eru einar hljóti að vera alveg miður sín - ég tala nú
ekki um ef þær eiga börn.
Enn hafa karlmenn upphefð af því að sofa hjá sem
flestum konum, þótt það sé eitthvað farið að breytast.
Kona sem gerði það sama væri talin alger drusla. Það
er öruggt að jafnréttisumræðan hefur haft áhrif á kyn-
lífið. Konan er ekki lengur til þess að karlmaðurinn
geti notað hana til að fullnægja eigin hvötum.“
54