19. júní - 19.06.1984, Blaðsíða 27
sviðið sem myndast í kringum tölvuna.
Langtímaáhrif slíks rafsegulsviðs eru
lítið könnuð. Nýjar sænskar rannsóknir
sýna þó t.d. að krabbamein er algeng-
ara hjá börnum sem búa nálægt há-
spennulínum. Önnur ný rannsókn sýnir
einnig að blóðkrabbamein er algengara
meðal þeirra sem vinna við rafmagn en
meðal annarra starfshópa. Einnig er
vitað að eiturefnið PCB og fleiri skyld
efni hafa lekið út úr tölvum og enginn
veit hversu algengur slíkur leki er eða
hverju hann kann að valda. Aðrir vilja
meina að vinnuálag og stress sé oft
mikið við tölvurnar og geti átt sinn þátt
í fósturlátunum.
Nýlega hófust umfangsmestu rann-
sóknir hingað til á tölvuskjáum og áhrif-
um þeirra á fóstur og meðgöngu og
gengst NIOSH, ráðgjafastofnun vinnu-
verndarmála í Bandaríkjunum fyrir
rannsóknunum. Par verður m.a. fylgst
með meðgöngu 7.000 ófrískra kvenna
sem vinna við tölvuskjái. Athugaðar
verða reykingar, áfengisneysla og aðrir
þættir sem geta haft áhrif á meðgöngu
og fósturlát. Þar með ætti að fást svar
við því hvort fósturlát eru óeðlilega tíð
hjá konum sem vinna við tölvuskjái.
Næsta skref yrði svo að finna ástæðuna.
Pað er sannarlega ekki einum degi of
snemmt að hrinda af stað slíkri rann-
sókn ef litið er til útbreiðslu tölvuskjáa
í hinum vestræna heimi. Bara í Norður-
Ameríku eru um 10 milljónir skjáa og
þeim fer stöðugt fjölgandi bæði þar og
annarsstaðar. I Bandaríkjunum einum
er talið að milli 7 og 10 milljónir kvenna
á barneignaraldri vinni við tölvur á
stærri vinnustöðum.
Á meðan beðið er eftir niðurtöðum
NIOSH hafa mörg lönd og mörg fyrir-
tæki kosið að bjóða konum að vinna
önnur störf meðan þær eru barnshaf-
andi. M.a. hafa yfirvöld í Kanada mælt
með því að ófrískar konur eigi rétt á
öðrum störfum á meðgöngutímanum
með sömu launum og réttindum. Síma-
fyrirtækið Bell’s hefur boðið öllu sínu
starfsfólki, sem vinnur við tölvuskjái,
blýsvuntur til þess að verjast hugsan-
legri geislun.
En það var einmitt frá Kanada og
Bandaríkjunum sem fyrstu fregnirnar
komu um hugsanlegt samband fóstur-
láta og tölva. Á sumum vinnustöðum
þar endaði allt að helmingur með-
gangna með fósturlátum eða þá að
börnin fæddust vansköpuð. En sam-
kvæmt rannsóknum ætti sú tala að vera
15 prósent. Ef tölvurnar reynast söku-
dólgurinn er tæknilega mögulegt nú
þegar að gera þær hættulausar. Pá yrðu
tölvurnar sjálfar að vera sér í herbergi
og myndin á skerminum væri svo send
inn í annað herbergi þar sem hægt væri
að lesa hana „geislunarlaust“ og án raf-
segulsviðs. En slíkt kostar peninga og
ylli atvinnurekendum og framleiðend-
um auknum kostnaði. Ólíklegt er því
að til slíkra ráðstafana verði gripið fyrr
en fullsannað verður hvort allar fóstur-
látsfregnirnar eiga við rök að styðjast
og talvan verður sek fundin.
Síríus
Kbnsum
suóusúkkulaði
Gamla góða Sirius Konsum
súkkulaðið er í senn úrvals
suðusákkulaði og gott til átu. Það
er framleitt úr bestu hráefnum, er
sérlega nærandi og dijúgt til suðu
og í bakstur, enda jafnvinsæll í
nestispökkum ferðamanna og
spariuppskriftum húsmæðra.
Siríus Konsum er vinsælast hjá
þeim sem velja bara það besta.
Mí Slrfa
9*ð.
"i.
fM,-
*1l.
teA.