19. júní


19. júní - 19.06.1984, Blaðsíða 68

19. júní - 19.06.1984, Blaðsíða 68
Framkvæmdanefnd um launamál kvenna Kvcikjan að Framkvæmdanefnd um launamál kvenna varð til á ráðstefnu er Samband Alþýðuflokkskvenna gekkst fyrir í Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi 24. september 1983. Yfirskrift ráðstefn- unnar var „Launamál kvenna á vinnu- markaðnum“. Flutt voru erindi um launamál kvenna og launamisrétti kynjanna af sjónarhóli félagsfræði, hagfræði og fjölmiðla, aðila vinnu- markaðarins og forystu kvennasam- taka. Ennfremur lýstu konur í láglauna- störfum kjörum sínum. Ráðstefnan var öllum opin og mjög fjölsótt. Sérstaklega var til hennar boðið fulltrúum stjórnmálaflokka, launþegasamtaka og kvennasamtaka. Enda þótt meirihluti þátttakenda væri konur sátu einnig nokkrir karlar ráð- stefnuna, af 11 ræðumönnum voru 4 karlar og í palli sátu 4 karlar ásamt 3 konum. Mikill hugur var í ráðstefnugestum og mörgum þóttu skörp skil efnislega milli lýsinga láglaunkvennanna á kjörum sínum og hins vegar fullyrðinga annarra um að launamisrétti kynjanna fyrirfinndist ekki. Undir lok ráðstefnunnar tóku nokkra konur tal saman. Voru þær á einu máli um að hreyft hefði verið viðamiklu og brýnu úrlausnarefni og ekki verjandi að slíta ráðstefnunni, án þess að framhald væri tryggt. Af þessu spratt tillaga þar sem ráðstefnan for- dæmir harðlega það launamisrétti sem ríki á vinnumarkaðinum og jafnframt eftirfarandi: „Ráðstefnan samþykkir að efna til þverpólitisks samstarfs um launamál kvenna á vinnumarkaðinum. Samþykkir ráðstefnan að boðað verði til fundar kvenna úr öllum stjórnmálaflokkum, þar sem leitað verður samstöðu um skipan fram- kvæmdanefndar með þátttöku kvenna í launþegahreyfingunni og öðrum áhugaaðilum um launajafn- rétti kynjanna, sem skipuleggi síðan aðgerðir er leiði til úrbóta og uppræti misréttið." Undir tillöguna skrifuðu: Jóhanna Sigurðardóttir, Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, Guðrún Ágústsdóttir, Ragna Bergmann, Björg Einarsdóttir, Gerður Steinþórsdóttir, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Jóhanna Friðriksdóttir. Tillagan var rædd og borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með öllum greiddum atkvæðum yfirgnæf- andi meirihluta fundarmanna. Nefndarskipan - Markmið Jóhönnu Sigurðardóttur var falið að kalla flutningsmenn tillögu saman til fundar, sem haldinn var 3. október. Var afráðið að við skipan í nefndina skyldi leitast við að tryggja, að sem flestar konur ættu óbeinan fulltrúa, án tillits til stjórnmálaskoðana, starfa eða búsetu. Gerðar voru tillögur um aðila er til greina kæmu. Fullskipuð kom nefndin saman 24. október og skipti með sér verkum. Jóhönnu var falið að koma fundum á og stjórna þeim, Gerði Steinþórsdóttur voru falin ritarastörf og síðar var Dag- björt Torfadóttir kjörin gjaldkeri. Samþykkt var að kalla nefndina Framkvœmdanefnd um launamál kvenna og leggja áherslu á launamálin í samræmi við orðalag tillögunnar frá 24. september, enda þótt nefndar- mönnum væri ljóst að önnur og almenn skilyrði hefðu einnig afgerandi áhrif á kjör kvenna á vinnumarkaðinum. Launaþátturinn væri hins vegar öllum sameiginlegur og úrbætur varðandi þann málaflokk sköpuðu betri stöðu á öðrum sviðum. Markmið og leiðir til þess voru skil- greind þannig: „Markmið Fram- kvæmdanefndarinnar er að ná fram úrbótum í Iaunamálum kvenna. Sér- stök áhersla verði lögð á launajafnrétti kynjanna á vinnumarkaðinum og með konum almennt myndist samstaða á breiðum grundvelli um þessi mál. Framkvæmdanefndin mun í störfum sínum leggja ríka áherslu á góða sam- vinnu og samráð við stéttarfélög um land allt og heildarsamtök launafólks, svo og að halda uppi tengslum við kon- urnar sjálfar á vinnustöðunum, t.d. í formi fund og upplýsinga um launamis- rétti kynjanna á vinnumarkaðinum.“ Fyrsta verkefni - Kannanir Fyrsta verkefni nefndarinnar var að safna niðurstöðum úr tiltækum könn- unum um stöðu kvenna á vinnumarkað- inum og upplýsingum um launamisrétti kynjanna. Þjóðfélagsfræðingunum Est- her Guðmundsdóttir og Guðrúnu Sig- ríði Vilhjálmsdóttur var falið verkefnið og að ganga frá greinargerð um það og gera handrit að bæklingi til dreifingar. Fjármálaráðherra veitti kr. 50 þús. til að standa straum af kostnaði við verk- efnið. í októberlok lögðu Esther og Guð- rún Sigríður fram yfirlit um kannanir sem tiltækar voru allt frá árinu 1975, ennfremur um fjölda fólks í samtökum launþega og skiptingu eftir kynjum, svo og hlutfall kynja í stjórnum sömu sam- 68
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.