19. júní - 19.06.1984, Blaðsíða 37
Börnin hafa gott af góöri skólamáltíð, og þau
eru líka glöð á svip eins og myndir Onnu
Gyðu sýna hér.
tíma nemenda dag hvern í þeim
skólum. Sagði skólastjórinn meðal
annars:
„Nemendur í þessum skólum búa við
þann ótvíræða kost að hafa samfelldan
skólatíma (heimavista- og heimanakst-
ursskólum). í heimangönguskólunum
er þessu öðruvísi farið. Skipulag þeirra
skóla er að vísu breytilegt en hefur þó
lítið breyst hvað skólatíma varðar síð-
astliðin 50 ár, takið eftir síðastliðin 50
ár. Umtalsverðasta breytingin er að
kennsla í grunnskólum hefur verið felld
niður á laugardögum og kennsluvikum
fjölgað. Það er óþarfi að minnast á það
hér hve gífurlega miklar breytingar
hafa orðið á samfélagsgerðinni á þess-
um tíma. Mann hlýtur því að reka í
rogastans þegar maður stendur frammi
fyrir svona staðreyndum. A meðan
skólatími dreifbýlisins hefur tekið al-
gerum stakkaskiptum höfum við staðið
í stað í þéttbýlinu.“
í 19. JÚNÍ í fyrra stóð á einum stað í
þættinum um skólamálin. - „Það nægir
greinilega ekki að konur afli sér starfs-
menntunar og séu gjaldgengar til jafns
við karla úti á vinnumarkaðinum, því
þegar blessuð börnin eru komin á
skólaaldur þá fer allt í hnút“.
Skólamenn og foreldrar eru víst flest
sammála um að ýmsu þarf að breyta
innan veggja skólanna, bæði skipulag
og innra starfi. Og ekki skulum við
gleyma nemendunum. Þeirra líðan og
vinnuaðstaða er það sem málið snýst
um. Óreglulegur skólatími, hlaup á
milli heimilis og skóla og dreifð
kennsluaðstaða kemur mest niður á
nemendunum. Við vitum öll hér á höf-
uðborgarsvæðinu að mikil þennsla
hefur verið í byggingum skólahús-
næðis. Kröfur og það sjálfsagðar, hafa
verið um skólabyggingar í nýjum hverf-
um. Þeim hefur verið sinnt eftir bestu
getu. En kannski að þennslan í bygg-
ingamálum hafi dregið úr öðrum þátt-
um svo sem uppbyggingu innra starfs og
breytingum. Ekki ber að líta fram hjá
þeirri staðreynd að margt hefur þó
verið gert.
Frá hálfu foreldra hefur kröfuna um
samfelldan skóladag borið einna hæst
hvað skipulagsbreytingar varðar. Ein af
undirstöðum undir samfelldan skóla-
dag er skólamáltíð, því gerum við þetta
hvort tveggja að umræðuefni hér. Og
reifum í stuttu máli það sem áunnist
hefur.
í fyrravetur samþykkti Fræðsluráð
Reykjavíkur að gera tilraun nteð skóla-
nesti í fjórum grunnskólum í Reykja-
vík. Varnemendum 7., 8. og9. bekkja-
deilda í viðkomandi skólum gefinn
kostur á að kaupa nestispakka í skól-
unum. Gafst sú tilraun allvel þrátt fyrir
nokkra hnökra. Síðan var í framhaldi af
þessari reynslu ákveðið í fræðsluráði að
bjóða nestispakkaþjónustuna út á síð-
asta ári og jafnframt að útvíkka til-
raunina í alla grunnskólana. Tilrauna-
þjónustan var í höndum Mjólkursatn-
sölunnar í Reykjavík og þegar þjón-
Texti:
Þórunn
Gestsdóttir
37