19. júní - 19.06.1984, Page 9
Anna Sigurðardóttir og Skúli Þorsteinsson
með börnunum sínum, Asdísi, Onnu og Þor-
steini. Myndina tók Vilberg Guðnason á
Eskifírði árið 1953.
Hér mælir Anna Sigurðardóttir for-
stöðumaður Kvennasögusafns íslands.
Bókin sem hún er að tala um, Vinna
kvenna á íslandi í 1100 ár, er afrakstur
eigin rannsókna um árabil. Anna
vinnur af krafti að útgáfunni þótt hún
hafi þegar fimm um sjötugt. Nú er það
fyrst og fremst að safna myndum því
handritið er komið í prentsmiðjuna.
„Það er mikilvægt að hafa margar
myndir í bók sem segir frá margvís-
legum störfum kvenna. Það er furðu-
lega erfitt að finna myndir sem sýna
störf kvenna á horfinni tíð.“
- Hvernig stóð á því að þú réðst í svo
umfangsmikið verk?
„Það er nú gömul saga. Ætli það hafi
ekki verið eftir að ég las fyrsta heftið af
Melkorku sem kom út á þjóðhátíðar-
árinu 1944 að ég tók að safna ýmsu efni
sem snerti réttarstöðu íslenskra kvenna
á margvíslegan hátt. Síðar varð mér
ljóst að vert væri að skrifa bók um öll
Ekki orðið nægileg breyting íjafn-
réttisátt, þrátt fyrir þrotlaust starf
— segirAnna Sigurðardóttir forstöðumaður
Kvennasögusafns íslands
Bók Önnu, Vinna kvenna á íslandi í 1100 ár,
kemur út í ár
„Ég tek bara lán og veðset íbúðina mína til að gefa bókina út.
Ég má ekki vera að því að bíða eftir því að einhver útgefandi
fáist til þess að gefa út bókina þegar honum hentar. Það liggur Texti:
á að koma þessari bók út, fínnst mér og öðrum sem hafa áhuga Margrét ■m —» W
á sögu íslenskra kvenna.“ Guðnadóttir
9