19. júní - 19.06.1984, Page 16
tímanum bæði vegna breyttra þjóðfé-
lagshátta og annarra aðstæðna. Purfti
því málið endurskoðunar við.
Eftir nána og rækilega athugun
komst framkvæmdastjórn Hallveigar-
staða að þeirri niðurstöðu, að heppileg-
ast yrði að hverfa frá hinni upprunalegu
hugmynd um stórhýsi, sem jafnframt
yrði að nokkru leyti hótel, en að byggt
yrði félagsheimili fyrir starfsemi kven-
félaganna og kvenfélagasamtakanna í
landinu.“
Hallveigarstaðir voru teknir í notkun
19. júní 1967.
Eins og fram kemur hér að framan
var ætlunin að ýmis samtök kvenna
hefðu aðstöðu í húsinu fyrir starfsemi
sína. Úr þessu varð þó ekki nema að
litlu leyti þar sem eigendur hússins
höfðu ekki fjárhagslegt bolmagn til
þess að standa undir rekstri þess nema
stærstur hluti hússins yrði leigður út til
annarra aðila. I áðurnefndri grein Sig-
ríðarJ. Magnússon segirm.a.:
„Nú er málum þannig háttað að í Hall-
veigarstöðum hafa aðstöðu fyrir starf-
semi sína eftirfarandi samtök kvenna:
Kvenréttindafélag íslands, Bandalag
kvenna í Reykjavík, með um 20
aðildarfélög og Kvenfélagasamband
íslands en í því eru um 250 aðildarfé-
lög. Þessi samtök eru jafnframt eig-
endur hússins.
Ymis önnur samtök kvenna hafa að-
stöðu í húsinu: Leiðbeiningarstöð
húsmæðra á vegum Kvenfélaga-
sambandsins, Húsmæðrafélag Reykja-
víkur, Kvenstúdentafélagið, Friðar-
hreyfing íslenskra kvenna og tímaritin
19. JÚNÍ og Húsfreyjan. Það má því
með sanni segja að vísir að „kvenna-
húsi“ hefur verið að Hallveigarstöðum
um árabil. Fjárhagur hússins er nú um
það bil að færast í það horf að unnt fer
að verða að nota húsið eingöngu undir
starfsemi samtaka kvenna og láta
þannig drauminn um Kvennaheimili/
Kvennahús verða að veruleika.
HATTABÚÐ
REYKJAVÍKUR
FILTHATTAR OG KOLLUR
LÉTTIR SUMARHATTAR OG HÚFUR
STRÁHATTAR margar gerðir
ALPAHÚFUR í mörgum litum
SLÆÐUR, SJOL, TREFLAR, GRIFFLUR
ÚRVALAF HÖNSKUM
MINKASKINNSHÚFUR OG TREFLAR
Sendum í póstkröfu
HATTABÚÐ REYKJAVÍKUR
Laugavegi 2,101 Reykjavíks: 12123
tíótel
Vík
breytt í
kvenna-
hús
Draumurinn um kvennahús í
Reykjavík rættist í janúar s.l. þótt með
öðrum hætti væri en upphaflega var ráð
fyrir gert. Kvennahúsið er til húsa í
Hótel Vík, gömlu húsi í miðborg
Reykjavíkur nánar tiltekið við svo
kallað Hallærisplan. Tíðindamaður 19.
JÚNI brá sér þangað til þess að fræðast
örlítið um þá starfsemi sem þar fer fram
og hitti að máli ínu Gissurardóttur,
starfsmanna Kvennalistans og fyrsta
spurningin sem fyrir hana var lögð var:
- Hvenær hófu samtök kvenna starfsitt
í húsinu?
„Fyrir rúmum tveimur árum tók
Kvennaframboðið Hótel Vík á leigu
undir starfsemi sína. Húsið hafði þá
staðið autt um skeið og var í gífurlegri
niðurníðslu. Strax var hafist handa við
lagfæringar og endurbætur. Það voru
margir sem lögðu hönd á plóginn, bæði
konur og karlar og var unnið þarna
mikið og óeigingjarnt starf. Reyndar
má með sanni segja að lítil sem engin
vinna hefur verið keypt út við lagfær-
ingar á húsinu.
- Nú er Kvennalistinn einnig til húsa að
Hótel Vík. Hvenær hóf Kvennalistinn
starfsitt í húsinu?
16