19. júní - 19.06.1984, Page 17
Hótcl Vík - nú Kvennahúsið. (Tímamynd
Róbert).
„Við höfðum áður aðstöðu í húsi við
Hverfisgötu en fluttum þaðan með allt
okkar hafurtask í ágúst 1983 og hóf-
umst handa með starfsemi hér.“
- Kvennahús? Hvenœr kviknaði sú
hugmynd að Hótel Vík yrði Kvenna-
hús?
„Frá því að Kvennaframboðið flutti
inn hefur verið hér lífleg starfsemi sem
síðan jókst með tilkomu Kvennalist-
ans. Hér voru haldnir fundir bæði form-
legir og óformlegir. Konur litu hér inn
til þess að ræða ýmis mál sem voru í
deiglunni eða jafnvel aðeins til þess að
hitta hver aðra og rabba um daginn og
veginn yfir kaffibolla. Húsið er stórt og
Kvennaframboð og Kvennalisti nýttu
aðeins lítinn hluta þess til að byrja með.
Þegar síðan Menningar og friðar-
samtök íslenskra kvenna fóru þess á
leit að fá aðstöðu í húsinu kviknaði sú
hugmynd að gera mætti Hótel Vík að
kvennahúsi að erlendri fyrirmynd. Hér
gætu hin ýmsu samtök kvenna haft
aðstöðu og konur gætu litið hér inn á
daginn þegar þær ættu leið hjá hvort
sem þær væru aðilar að umræddum
samtökum eða ekki. Nú standa málin
þannig að sex samtök kvenna hafa
aðsetur í húsinu: Kvennaframboð,
Kvennalisti, Vera (blað Kvennafram-
boðsins), Menningar og friðarsamtök
íslenskra kvenna, Konur á vinnu-
markaði og Kvennaráðgjöfin. Þessi
samtök hafa hvert fyrir sig sitt herbergi
í húsinu en síðan er hluti þcss notaður
til sameiginlegra þarfa. Hægt er t.d. að
hafa þrjá fundi samtímis í húsinu."
- Er starfsemin komin i fullan gang?
„Að vissu leyti. Það er verið að taka
húsið í gagnið smátt og smátt eftir því
sem efni og aðstæður leyfa. Hér eru
fundir flest kvöld vikunnar og eitthvað
um að vera flesta daga. Konur eru að
koma hér við allan daginn og eru það
bæði konur héðan af höfuðborgarsvæð-
inu og konur utan af landi. Þetta skapar
skemmtilega stemmningu og samstöðu
meðal kvenna."
- Hver er stærsti þátturinn í starfsemi
Kvennahússins?
„Mest áberandi þátturinn er það sem
ég drap á áðan. - Konur koma hér inn,
setjast niður og fá sér kaffi og spjalla
saman. Ég verð t.d. vör við að konur
sem þurfa að hittast t.a.m. eftir vinnu
rnæla sér oft mót hér. Mér finnst þetta
einn skemmtilegasti þátturinn í starf-
seminni."
- Hvernig er rekstrarformið? Er ein-
hver ákveðin stjórn sem sér um rekstur
hússins?
„Samdar hafa verið starfsreglur fyrir
Kvennahúsið og í þeim koma fram
helstu atriði sem varða rekstur þess.
Þar kemur fram að stjórn hússins, hús-
hópur, skal vera í höndum 6 kvenna: 2
frá Kvennaframboði, 2 frá Kvennalista
og 2 frá hinum þremur samtökunum.
Starfstími hvers húshóps er 4 mánuðir
og skipta meðlimir sjálfir með sér verk-
um. Samtök sem fast aðsetur hafa í
Kvennahúsinu skulu greiða leigu en
leigugjald þarf þó ekki að vera skilyrði
fyrir dvöl í húsinu. Slíkt skal metið af
húshóp í hverju tilviki fyrir sig enn-
fremur koma beiðnir um fast aðsetur
m.a. til kastahúshóps. Ætluninersíðan
að starfsreglurnar verði endurskoðaðar
að þremur mánuðum liðnum frá samn-
ingu þeirra svo og ef einhver samtök
sem eiga aðild að húsinu óska þess.“
- Verður skipulag á rekstri hússins ekki
að vera í nokkuð föstum skorðum?
„Að vissu marki. Hér er þó alltaf viss
sveigjanleiki fyrir hendi. Starfsmaður
hússins annast bókanir fyrir fundi í
sameiginlegum herbergjum og reynt er
að fara eftir þeim ramma sem þannig er
settur um starf í húsinu. Þó er alltaf
reynt að hliðra til eftir því sem þörf
krefur hverju sinni. Formfestan ræður
ekki ríkjum hér. Það eina sem aldrei er
breytt út af er starfsemin í húsinu á
þriðjudagskvöldum. Þá er Kvenna-
húsið eingöngu notað undir starfsemi
Kvennaráðgjafarinnar og engin önnur
starfsemi fer fram í húsinu þau kvöld."
- Hvernig hefur tekist til? Einhver sér-
stök framtíðaráform ?
„Það er svo skammur tími liðinn
síðan Kvennahúsið tók til starfa og erf-
itt er að meta árangurinn af starf-
seminni. Þó held ég að óhætt sé að segj a
að vel hafi til tekist svo langt sem það
nær. Starfsemin er í mótun og sumir
aðilarnir varla komnir í fullan gang með
sitt starf. Ennþá er rými í húsinu fyrir
fleiri samtök sem áhuga hafa. Skilyrði
fyrir aðild að Kvennahúsinu cru þau að
viðkomandi samtök eða hópar sem
hyggjast fá inni í Kvennahúsinu berjist
fyrir málefnum kvenna sem stuðla að
bættum hag þeirra. Ég vona svo bara að
áfram megi verða blómleg starfsemi í
Kvennahúsinu við Hallærisplanið.“
17