19. júní - 19.06.1984, Page 39
ustan var boðin út var tilboði þess fyrir-
tækis tekið. Frá áramótum og fram til
vors var því skólanesti í boði í flestum
grunnskólum borgarinnar en þó ekki
öllum. Sem fyrr voru nestispakkarnir
fyrir nemendur í 7., 8. og 9. bekkjum.
Að sögn eins skólastjóra sem reynslu
hefur af nestispökkunum bæði „til-
raunatímabilin“ er þetta fyrirkomulag
mjög til bóta. Þeir nemendur sem ekki
keyptu skólanesti í skólanum, að hans
sögn, komu þá flestir með nesti að
heiman.
En því er ekki að neita að ýmsir byrj-
unarörðugleikar fylgdu þessari nýjung
í skólunum. Örðugleikarnir voru þá
helst vegna dreifingar á nestispökk-
unum, hvers konar innheimtuform væri
heppilegast og hvar og hvenær nem-
endur snæddu nestið. Skólafólkið leysti
þessi mál á mismunandi máta. Einstaka
maður einblíndi á tréð og sá ekki skóg-
inn - en að líkindum hefur tréð verið
fellt. Með tilkomu skólanestis verður
skólareksturinn hagkvæmari, segjaþeir
skólamenn sem fagnað hafa tilkomu
nestispakkanna. Frá sjónarhóli margra
foreldra hafði skólanestið í för með sér
sparnað í akstri og fargjöldum vegna
færri ferða á milli heimila og skóla. Á
móti heyrðust raddir um „aukinn"
kostnaðarlið fyrir heimilin vegna kaupa
á nestismiðum. En sá kostnaðarliður
hlýtur að hafa dregist frá máltíð á heim-
ilunum. Þó að skólayfirvöld ákvæðu í
dag að skólanestið verði til boða til
frambúðar í skólunum er björninn ekki
unninn. Fleira þarf að koma inn í
myndina til að skólaseta grunnskóla-
nema í Reykjavík geti orðið samfelld.
Á síðastliðnu sumri skipaði Ragn-
hildur Helgadóttir menntamálaráð-
herra nefnd, sem hefur það verk að
vinna að athuga sérstaklega tengsl
heimila og skóla. Inní þá athugun
kemur að samræma betur vinnutíma
foreldra og skólabarna. Einnig að
meö
ávöxtum
Reykostur er réttnefndur fulltrúi Norðurlanda
^ í ábætisostaflokknum okkar - þakinn dillfræjum
og gefið reykbragð með reyksalti.
Hvor tveggja ævaforn hefð í norrænni matreiðslu
(samanber íslenska hangikjötið og sænska gravlaxinn).
' Jafnvígur á veisluborðinu sem hversdags.
brauðma
Ábœtisostur pp sem vert er að gef a gaum!
39