19. júní - 19.06.1984, Side 40
Bókmenntir
SÉRHERBERGI
SÉRHERBERGI
(A Room of One’s Own)
eftir Virginiu Woolf
Þýðing: Helga Kress
Útg.: Svart á hvítu,
Reykjavík 1983
166 bls.
„En við báðum þig að tala um konur og
skáldsögur, kynnuð þið að segja, - og hvað
kemur það sérherbergi við? Ég ætla að rcyna
að útskýra það.“ Á þessum orðum byrjar
bókin „Sérherbergi" eftir enska rithöf-
undinn Virginiu Woolf, sem Svart á hvítu gaf
út um síðustu jól í þýðingu Helgu Kress.
„Sérherbergi" er fyrir löngu sígilt verk um
stöðu kvenna í bókmenntum og þýðing
bókarinnar og útgáfa hlýtur að teljast bók-
menntaviðburður og mikið fagnaðarefni
okkur öllum. Efni bókarinnar voru upphaf-
lega tveir fyrirlestrar um konur og skáld-
sögur, sem Virginia hélt í kvennaháskól-
unum Newnham og Girton í Cambridge árið
1928 en bókin kom svo út árið eftir.
Og hvað kemur sérherbergi svo konum og
skáldsögum við? Jú, í bók sinni setur Virg-
inia fram þá skoðun, að konum sé því aðeins
unnt að skrifa, hafi þær sjálfstæðar tekjur og
- en ekki hvað síst - eigið herbergi, þar sem
þær geta lokað sig af frá önnum dagsins og
kanna hvar sé nú þegar samfelldur
skóladagur, hverju þurfi að breyta til að
ná því takmarki. Vinnuhópur þessi
hefur gert samanburð á skólum með
samfelldan skóladag og ósamfelldan.
Reynt hefur verið að gera grein fyrir
hvaða ráðstafanir þurfi að gera til að
koma á samfelldum skóladegi og hver
tilkostnaður yrði. Hefur vinnuhópur-
inn haft samband við skólastjóra,
kennara, fræðslustjóra, forráðamenn
foreldrafélaga í skólum og fleiri aðila
sem lið hafa lagt. Sérstakar skoðana-
kannanir hafa farið fram á meðal for-
eldra og nemenda á samfelldum skóla-
degi og tengslum heimila og skóla.
Mjög margt athyglisvert hefur komið
fram í könnunum og viðræðum sem
vinnuhópurinn hefur átt við hina ýmsu
aðiia. Hugsanlegt er að þegar þetta
blað kemur út að áfangaskýrsla frá
vinnuhópnum hafi verið birt. Sé ekki
svo er hún væntanleg. Þó að með vissu
notið þess frelsis, sem hverjum listamanni er
nauðsynlegt. Ástæðurnar fyrir því, að
kvennabækur hafa ekki blómstrað í bók-
menntagarðinum eru, að félagslegar og fjár-
hagslegar aðstæður kvenna hafa verið á þá
lund að hefta sjálfstæði þeirra, gert þær
háðar öðrum; körlunum og karlasamfé-
laginu. Sérherbergið er meira en kompa með
skrifborði og ritföngum, það er það afdrep,
sem konur verða að hafa til að mega loka
dyrunum á skyldur og kvaðir, sem þær taka
á sínar herðar vegna kynferðis síns. En áður
en ég held áfram við að reyna að gera grein
fyrir hugmyndum Virginiu Woolf um konur
og bókmenntir, er skylt að gera nokkra grein
fyrir henni sjálfri.
Virginia Stephens fæddist í London árið
1882. Hún gekk árið 1912 að eiga Leonard
Woolf. Fyrsta bók hennar, The Voyage Out
kom út árið 1915, sú síðasta, Between The
Actsárið 1941, rétt eftirdauða Virginiu. Alls
urðu bækur hennar hátt á annan tug talsins
auk þess sem hún skrifaði fjölda greina um
bókmenntir og gagnrýni, dagbækur og
sendibréf, mest hvert hefur verið útgefið.
Hún er án tvímæla talin í hópi merkustu rit-
höfunda á enska tungu á þessari öld og
brautryðjandi nýrrar stefnu, en um þá
stefnu, modernismann, kemst Helga Kress
svo að orði í inngangsorðum sínum f bókinni
megi fullyrða að nokkuð hafi áunnist í
þessum tilteknu málum grunnskóla-
nema, þá eru margir endar enn óhnýtt-
ir. En unnið er að málinu. Skólanestið
hefur verið reynt og vonandi í fram-
haldi af fenginni reynslu verður fram-
hald byggt. Nú þegar er samfelldur
skóladagur hjá hluta nemenda í grunn-
skólunum. í einni skoðanakönnun
vinnuhóps mentamálaráðherra, sem
áður er getið, kom í ljós að sundur-
slitnar stundaskrár eru mest áberandi
hjá 9, 10 og 11 ára börnum.
Auk skólamáltíða er margt annað
sem verður að vera til staðar svo að
hægt sé að koma á samfelldum skóla-
degi. Til dæmis einsetnir skólar, skóla-
söfn og að verk og listgreinar séu
kenndar í skólunum. Af því sem hcr
hefur verið reifað má ljóst vera að vilji
er fyrir hendi hjá yfirvöldum að stuðla
að samfelldum skóladegi grunnskóla-
nema í Reykjavík.
Sérherbergi: „Hann fólst í uppreisn gegn
hefðbundnum gildum vestrænnar menningar,
jafnt þjóðfélagslegum, trúarlegum sem sið-
fræðilegum, og jafnframt í viðleitni til að
tefla fram nýjum gildum, nýjum lífsskiln-
ingi. Það koma fram ný yrkisefni og form.“
Helga getur þriggja bóka, sem allar konru út
árið 1922 og teljast marka tímamót: Ulysses
eftir James Joyce, The Waste LandeftirT.S.
Eliot og Jacobs Room eftir Virginiu Woolf.
Frægust skáldsagna Virginiu er sögð bókin
To the Lighthousc (1927). Engin sagna
hennar hefur verið þýdd á íslensku. Líf Virg-
iniu markaðist mjög af sálrænum átökum,
sem leiddu til sjálfsmorðs árið 1941.
„Sérherbergið" kom fyrst út árið 1929
(reyndar þ. 24. október). Lesandinn mun
finna í bókinni grundvöll að kvennabók-
menntarannsóknum eins og Helga Kress
bendir á í formála sínum og hann/hún mun
einnig finna þar hugmyndir og vísa í þá átt,
sem kvennabaráttan hefur verið að benda til
lengur en marga grunar. Því fer þess vegna
fjarri að einungis áhugafólk um bókmenntir
njóti lestursins, skírskotun hennar til stöðu
kvenna almennt og viðleitni þeirra til að
mega um frjálst höfuð strjúka í samfélagi
mannanna er bæði fróðleg og skemmtileg.
Þá kenningu sína, að konur þarfnist fjár-
muna og sérherbergis til að listrænir hæfi-
leikar þeirra nái að þroskast, styður Virginia
með vísun til sögunnar. Hún ber saman ólíkt
efnahagslegt hlutskipti karla og kvenna í
gegn um tíðina, og þau ólíku viðhorf, sem
ríkja í garð kynjanna. Hún veitir athygli
umhverfinu - háskólabænum „Oxbridge",
litast um á bókasafni, ber jafnvel saman
matseðla karlaskóla og kvennaskóla,
ímyndar sér að Shakespeare hafi átt systur
búna jafnmiklum hæfileikum og hann og
hvað um hana hafi orðið.
Hún segir frá kvenrithöfundinum George
Eliot, sem „settist að í skugganum af van-
þóknun heimsins" af því að hún lifði í synd
með kvæntum manni, og svo frá ungum karl-
manni, „sem lifði frjálsu lífi hinum megin í
Evrópu ýmist með sígaunastúlkum eða hefð-
arfrúni og var á leið í stríð; óhindrað og
ámælislaust safnaði hann sér hinni fjöl-
breyttu reynslu mannlegs lífs, sem kom
honum ágætlega til góða, þegar hann fór að
skrifa bækur sínar. Hefði Tolstoi lifað ( ein-
angrun í The Priory með giftri konu „skilinn
frá því, sem kallað er heimurinn (líkt og
Eliot) þá hefði hann þrátt fyrir uppbyggi-
legan siðalærdóm, varla getað skrifað Stríð
ogfrið." (bls. 99/100).
Ólík aðstaða kynjanna, ólíkt gildismat
þeirra, reynsla, viðhorf - hvernig skyldi
þetta koma fram í ritverkum karla og
kvenna? „Skyldi sjálft kynferðið á einhvern
hátt verka á heiðarleika kvenrithöfundarins
- þann heiðarleika, sem ég held að sé aðal
rithöfundarins?" spyr Virginia og hefur þá
áður skilgreint heiðarleikann í bókmenntum
sem vissuna um að höfundurinn gefi manni
sannleikann. Svarið gæti verið já, hin skáld-
lega sýn vék stundum fyrir reiðinni yfir því
40