19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1984, Qupperneq 49

19. júní - 19.06.1984, Qupperneq 49
Jafnréttið og samskipti kynjanna Helga ræðir við verðandi foreldra. (Ljós- mynd Anna Gyða Gunnlaugsdóttir). barnið sé þeirra afkvæmi og þeir beri ábyrgð á því. Aukin hlutdeild karla í sambandi við meðgöngu og fæðingu er svo sannarlega af hinu góða. Hið stórkostlega undur lífsins Á fundum sem Jafnréttisráð gekkst fyrir árið 1979 hafði það mikil áhrif á mig þegar ég var skömmuð fyrir gam- aldagshátt og jafnvel misrétti kynja í sambandi við mæðraskoðun, vegna þess að feðurnir voru ekki hafðir með. Ég tók ábendingarnar til greina og lét prenta á upplýsingablað mæðradeildar að æskilegt væri að maki fylgdist með skoðun. Eftir 1979 hefur aukist að feður kæmu með konum og jafnvel börnin líka. Sumir eru feimnir en ég hvet þá til að fylgjast með. Flestar verð- andi mæður í Reykjavík fara í sónar á Landspítalanum á 16.-20. viku með- göngunnar. Feðurnir geta farið með og séð fóstrið og fylgst með hreyfingum þess. Núorðið er einhver nákominn við- staddur langflestar fæðingar, oftast er það barnsfaðirinn - ef það er vilji beggja foreldra - eða þá móðir eða systir, ef faðirinn er fjarstaddur. Stundum er faðir við fæðinguna, þótt parið ætli ekki að taka saman. Sé faðir- inn viðstaddur eignast hann mun meiri hlutdeild í barninu og þessi stórkostlegi og einstaki atburður bindur foreldrana traustari böndum.“ Fræðslunámskeið - kynfræðsla Hulda Jensdóttir, ljósmóðir, hélt sín fyrstu námskeið fyrir verðandi mæður árið 1953. Árið eftir var feðrunum boðið að taka þátt í námskeiðunum. Hulda hefur haldið slík námskeið allar götur síðan, en hún er brautryðjandi í þessum málum hér á landi. Árið 1972 var samþykkt í borgar- stjórn Reykjavíkur tillaga frá Gerði Steinþórsdóttur þess efnis að haldin yrðu fræðslunámskeið fyrir verðandi foreldra. Strax það sama ár var byrjað að bjóða upp á slík námskeið á vegum borgarinnar í mæðradeild Hcilsuvernd- arstöðvarinnar. Árlega sækja þessi námskeið mörg hundruð verðandi mæður auk feðra. Svipuð námskeið hafa verið á kvennadeild Landspítalans síðan 1969. Árið 1964 tók Ráðleggingarstöð þjóðkirkjunnar til starfa; frumkvæðið átti Hannes Jónsson, félagsfræðingur, sem boðaði til fundar með forráða- mönnum ýmissa félagasamtaka til að finna leiðir til að ráða bót á vöntun á fræðslu um getnaðarvarnir. Pétur H.J. Jakobsson, læknir, starfaði við stöðina frá upphafi og þar til hann lést árið 1975, þá var stöðin lögð niður. Auk Péturs störfuðu þar ljósmæður og prestar. Árið 1975 tók til starfa kynfræðslu- deild á vegum mæðradeildar Heilsu- verndarstöðvarinnar og var það gert vegna áhuga félagsráðgjafa, heilsu- verndarhjúkrunarfræðinga og kven- sjúkdómalæknis sem höfðu unnið að þessum inálum kauplaust í 6 mánuði áður en deildin tók formlega til starfa. Markmið kynfræðslunnar er að koma með fræðslu og getnaðarvörnum í veg fyrir ótímabærar þunganir og stuðla að hamingju og vellíðan þeirra sem leita aðstoðar. Ég spyr Helgu hvernig starfsemi kyn- fræðsludeildar sé háttað. „Við veitum almennar, hlutlausar upplýsingar og fræðslu eftir þörfum um getnaðarvarnir og kynsjúkdóma. Hingað leita inest ungar stúlkur til að fá upplýsingar um getnaðarvarnir. Deildin er opin einu sinni í viku. f nokkur ár var einnig starfrækt hér svo- kölluð kynlífsvandamáladeild, en hún var lögð niður í árslok 1982.“ - Hver voru helstu vandamálin? „Algengasta kynlífsvandamálið hjá körlum var of bráð sáðlát, en' hjá konum voru útrásarerfiðleikar algeng- asta vandamálið.“ - Hvers vegna var deildin lögð niður? „Hún þótti of dýr í rekstri og fólk mætti illa þótt það væri búið að panta tíma. Seinasta árið sem deildin starfaði leituðu þangað 17 konur, 10 karlar og 11 pör eða alls 49 manns, en auk þess höfðu 36 manns pantað tíma en ekki mætt til viðtals, hvaða skýring sem kann að vera á því.“ 49
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.