19. júní - 19.06.1984, Page 81
FR£M
TólvuskóTT
Allt frá stofnun skólans hefur það verið markmið þeirra sem
að FRAMSÝN standa að veita almenna grunnþekkingu um
tölvur, uppbyggingu þeirra, helstu gerðir og notkunarmögu-
leika og á þann hátt aðstoða þá sem auka vilja atvinnumögu-
leika sína og tryggja framtíð sína á öld tæknivæðingar og
tölvuvinnslu.
Til þess að geta komið til móts við óskir hins fjölbreytilega
hóps sem til skólans sækir hefur stöðugt orðið að auka fjölda og
fjölbreytni námskeiða skólans.
í dag heldur skólinn tölvunámskeið á öllum stigum, allt frá
almennum grunnnámskeiðum til flókins framhaldsnáms.
Komið hefur verið á sérstökum hópnámskeiðum fyrir starfs-
hópa, stéttarfélög, fyrirtæki og stofnanir. Einnig hefur verið
efnt til almennra námskeiða víða um land sem og sérstakra
starfskynninga-námskeiða fyrir unglinga.
Nemendur skólans eru á öllum aldri úr öllum starfsstéttum,
með mismunandi menntun að baki og alls staðar að af landinu.
Stöðugur straumur nýrra nemenda sýnir svo ekki verður um
villst að FRAMSÝN er töluvskóli með tilgang og nám við
skólann hentar allra þörfum.
Innritun og upplýsingar í síma 39566, frá kl. 13 til 18.
TÖLVUNÁM ER FJÁRFESTING í FRAMTÍÐ ÞINNI.
TÖLVUSKÓLINN FRAMSÝN, SÍÐUMÚLA 27, PÓSTHÓLF 4390, 124 R.