19. júní - 19.06.1991, Side 9
er a<1 sendiherrum sé ckið til konun^shallarinnar í virðulcgum hestvagni þcgar trúnaðarbrcf
hennar sérstök nefnd sænskra hirð-
manna sem skiptust á að fylgja henni
í gegnum salina þar til komið var að
þeim innsta, þar sem Karl Gústav
konungur beið hennar. Þar skildu
leiðir Sigríðar, Margrétar Jónsdóttur
og hinna sænsku hirð- og embættis-
manna. Þegar erlendur sendiherra
gengur á fund konungs til að afhenda
trúnaðarbréf sitt er á táknrænan hátt
báðum vængjahurðunum að mót-
tökusalnum lokið upp. Að loknum
fundi konungs og sendiherrans, sem
fram fer fyrir luktum dyrum, er að-
eins annarri hurðinni lokið upp þegar
sendiherrann kemur út á ný. Ekki er
vitað hvað fer fram á milli nýs sendi-
herra og konungs því enginn er við-
staddur þennan fund og ekki er heim-
ilt að greina frá samtali þeirra.
Sendiherra íslands
í Finnlandi
endiherra íslands í Svíþjóð
er jafnframt sendiherra Is-
lands í Finnlandi og tveimur
vikum eftir að Sigríður afhenti trún-
aðarbréf sitt í Svíþjóð hélt hún á fund
Maunos Koivistos, forseta Finnlands
til að afhenda trúnaðarbréf sitt þar.
Þetta var 8. mars sem er alþjóðlegi
kvennadagurinn. í Finnlandi eru
hefðir við afhendingu trúnaðarbréfs
mjög ólíkar hefðum Svía þar sem
Finnland er lýðveldi en ekki kon-
ungsveldi. TrúnaðarbréFið var afhent
við hátíðlega athöfn í forsetahöllinni
í Helsinki. Athöfnin hófst með því
að leikinn var þjóðsöngur íslands
áður en nýi sendiherrann gekk inn í
höllina á fund Fmnska forsetans.
Forsetahöllin er í miðbæ Helsinki og
meðan á athöfninni stóð fyrir framan
höllina dreif þar að mikinn fjölda
fólks sem fylgdist með því sem fram
fór.
JT ei fyrsti erlendi sendiherrann um
,anf.t skeið sem það gerir. Sænska
n,r . n hafði beðið nokkuð lengi eftir
tækifæri til að gera slíka mynd með
sænskumælandi sendiherra og tæki-
tænð var kjörið þegar í Ijós kom að
nyi íslenski sendiherrann var prýði-
'ega vel að sér í tungumálinu.
Þennan dag var Sigríður kc
snemma morguns í íslenska sendi
kV, að undlrbúa sig fyrir athöfr
Klukkan halfníu kom hirðmei
konungs að sækja hana og Mar
Jonsdottur sendiráðsritara og
þeim ekið , tveimur bifreiðun
sænska Utanríkisráðurneytinu.
beið þeirra siðanreistari ráðuneytis-
ins og hópur embættismanna. Að
loknum formsatriðum í ráðuneytinu
var Sigríði fylgt að hinum glæsilega
hestvagni sem ók henni í hallargarð-
inn þar sem leiðir hennar og sænska
sjónvarpsins skildu vegna þess að
óheimilt er að taka rnyndir innandyra
í höllinni.
Samkvæmt gamalli hefð voru
varðmenn, klæddir gömlum virðu-
leguni búningum og með spjót í
hendi, á hverri tröppu þegar inn var
komið. Sigríðar beið nú ganga með
föruneyti í gegnum marga sali hallar-
innar og við dyr hvers þeirra beið
Fjölhreyttar skyldur
msum kann að virðast að
skyldur sendiherra séu aðal-
lega fólgnar í að mæta í boð
og móttökur en staðreyndin er sú að
starFið er ákaflega fjölbreytt og krefj-
andi. Sendiherra er fulltrúi síns lands
í viðkomandi ríki og er persónulegur
fulltrúi þjóðhöfðingja jafnframt því
að vera fulltrúi ríkisstjórnar og ráð-
herra. Hann getur setið hvaða fundi
sem er fyrir ráðherra íslensku ríkis-
stjórnarinnar svo fremi að umboð sé
veitt til slíks, þ.e. sendiherra er ekki
aðeins fulltrúi utanríkisráðherra
hverju sinni. Sendiherra hefur vald
9