19. júní


19. júní - 19.06.1991, Blaðsíða 23

19. júní - 19.06.1991, Blaðsíða 23
bindum 1975 og 1978, er afar vönduð og fróðleg úttekt á byggðaþróun í landshlutanum. Þar er eftirfarandi klausu að finna eftir nákvæma lýsingu á kynjaskipting- unni og breytingar á henni: Þegar borinn er saman hlutfallslegur fjöldi kvenna og karla í aldurshópum á Austurlandi öllu, blasir við heldur óheillavænleg mynd ... Það óálitlegasta við kynjasamsetninguna er hversu konum fækkar hlutfallslega eftir tvítugsaldur. ... Hlutfallsleg fæð kvenna á giftingaraldri og helsta frjósemisaldri hlýt- ur að draga úr íbúafjölgun og hafa félagslegar afleið- ingar ogauka brottflutning karla frá svæðinu. (1975, bls 45). Hér er kominn vandi Hafliðanna og Ingólfanna. Síðar í skýrslunni er rætt um prjónastofur: Greinilegt virðist að prjónavöruframleiðslu er helst að finna í þéttbýli, þar sem sjávarútvegur og fiskiðn- aður er tiltölulega lítill. Gefur þetta tilefni til að ætla að prjónavöruframleiðslu sé sumstaðar komið upp með það fyrir augum að tryggja konum vinnu á stöðum, þar sem kvennastörf eru fá ... Því má við bæta að afkoma fyrirtækja í greininni er al- mennt fremur bágborin, sem styður þá ályktun að fyrirtækjunum hafi almennt fremur verið komið á fót með atvinnusjónarmið en gróðasjónarmið í huga. ... í viðtölum við aðila á svæðinu hefur kom- ið ótvírætt fram að mikil þörf er fyrir fjölbreyttara atvinnuúrval fyrir konur í sjávarplássum. Atvinnu- ástand er þannig í augnablikinu að hætt er við að það ylli fiskvinnslufyrirtækjum auknurn erfiðleikum með öflun starfsfólks ef kornið væri upp nýjum starfsmöguleika. Aukin fjölbreytni hlýtur samt sem áður að verða framtíðarlausnin. (1975, bls. 278). Þessi kafli er fyrir margra hluta sakir merkilegur. í fyrsta lagi leiðir hann hugann að öllum prjóna- og sauma- stofunum sem komið var á fót vítt og breitt um landið á 8- áratugnum og átti að bæta afkomu sveitarfélaga og íitvinnuástand. Víst er um það að þær veittu mörgum konum kærkomin tækifæri til launavinnu þar sem engin voru fyrir. Vissulega voru gróðasjónarntiðin ekki sett á ýddinn í sama mæli og þegar fiskeldi og loðdýrarækt eiga 1 hlut. En fyrirstaðan var að sama skapi lítil þegar syrti 1 alinn í þessari grein og aðeins smápeningum varið til ^jörgunaraðgerða samanborið við miljarðana sem farið hsfa í fiskeldis- og loðdýraævintýrin. 1 öðru lagi er aug- ’jóst hvað hefur forgang - fjölbreytnin, atvinnuúrval fyr- Ir konur, verður að bíða framtíðarinnar. Hvenær kemur framtíðin? Hún var ekki komin þegar 2. bindið af Austurlandsáætlun kom út 1978. Þar eru hugmyndir til lausn- ar fyrir landshlutann og þar er alls ekki minnst á konur. Hins vegar eru konur og málefni þeirra komin inn í umræðuna um byggðaþróun og byggðastefnu á síðustu árum. Konur hafa látið meira til sín taka í bændasamtökunum tló undanförnu og í ráðherratíð Jóns Helgasonar var ákveðið að efna til könnunar meðal kvenna í landbúnaði um stöðu þeirra. Hún birtist 1989. í málefnasamningi ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar, sem mynduð var á haustdögum 1988, er ákvæði um að gera skuli átak til að auka atvinnumöguleika kvenna á landsbyggðinni. Það er varla tilviljun að þetta ákvæði komst inn á verkefna- lista ríkisstjórnar eftir kosningar sem skiluðu fleiri konum af landsbyggðinni inn á þing en nokkru sinni fyrr í sögu lýðveldisins. Efndirnar hafa hvorki verið skjótar né stórkostlegar þó að þingkonur úr öllum flokkum hafi minnt á loforðin með því að flytja hverja tillöguna á fætur annarri um atvinnumál kvenna á landsbyggðinni. Ráðist hefur verið í könnun á atvinnumálum kvenna í dreifbýli (Martha Ó. Jensdóttir 1989), námskeið verið haldin víða um land og norræn ráðstefna og einhverju fé veitt til ráðgjafar og aðgerða. Það hillir kannski undir framtíðina. Sjálfsmynd kvenna og byggðastefna að er athyglisvert að kynna sér hug- myndir bændakvenna, sem koma fram í skýrslu landbúnaðarráðu- neytisins og eru það eina sem gefur til kynna hug venju- legra kvenna út um byggðir landsins. Þessar konur líta greinilega á sig sem húsmæður og mæður en þær láta sig einnig miklu skipta stöðu og viðgang búsins og eru virk- ir þátttakendur í því fyrirtæki, sem kallað hefur verið íjöl- skyldubú, hvað sem allri verkaskiptingu líður. Við spurn- ingunni um óskir um atvinnu fyrir utan heimilið svöruðu helmingurinn já, 9 af hundraði nei og 40 af hundraði að þær hefðu ekki persónulegan áhuga en sögðu að nauðsyn- legt væri að önnur störf væru fyrir hendi. Aðeins 5 af hundraði höfðu áhuga á fullu starfi, 23 af hundraði hálfs dags starfi og 72 af hundraði á óreglulegu starfi. Þær fara ekki í grafgötur með það að búið og heimilið gengur fyrir. En þær vilja gjarnan hafa tækifæri til að afla sér einhverra tekna og njóta samstarfs og félagsskapar við aðra af bæ eða vinna að verkefnum heima. Hugmyndirn- ar um viðfangsefni byggjast á heimafengnum auðlindum, eigin þekkingu og sköpunargáfu. Það eru hugmyndir um framkvæmdir, sem ekki kosta mikið og ekki raska miklu og falla inn í meginstraum daglegs lífs. Þessar hugmyndir falla vel að þeim aðgerðum og áform- um sem greina má af framkvæmdavaldsins hálfu. Það er ljóst að engin stórfengleg áform eru um fjárfestingar, engar kvennamilljónir eða stórframkvæmdir. Boðið er upp á námskeið, ráðgjöf og aðstoð við þróunarstarf til að vinna úr hugmyndum og gera úr þeim söluhæfa vöru og koma þeim á markað. Framtíðarhorfur landsbyggðar- kvenna virðast liggja í smáiðnaði, þjónustustörfum, ekki síst ferðaþjónustu, og íjarvinnslu. Hvort þetta nægir til að mæta þörfum þeirra fyrir tekjur og áhugaverð við- fangsefni er ógerningur að spá um. Hvort þetta nægi til þess að koma í veg fyrir að ungu stúlkurnar flytjist á brott í jafn miklum mæli og undanfarið er enn erfiðara að sjá fyrir. En lífvænlegt er það byggðarlag eitt þar sem ungt fólk af báðum kynjum finnur viðfangsefni við sitt hæfi í starfi og leik. Það hlýtur að vera markmiðið - kröfurnar hljóta að miðast við það. 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.